Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 14

Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 14
Nytsamar nýjungar 6 ÍSO i *$0 Hentugur sekkjahleðsluútbúnaður fyrir flutningavagna Tvískiptur, samsettur færibandsút- búnaður, sem nota má við marg- breytilegar aðstæður til hleðslu. Vélknúinn hleðsluútbúnaður, sér- staklega gerður til aS lilaða sekkjum beint af áfyllingarstað á burðarpalla flutningavagnanna, er samsettur af tvískiptu færibandi, með hæðarstill- ingu, sem gengur fyrir vökvaþrýsti- þjappara. Teikningin sýnir á glöggan hátt, hvernig hleðslustarfið fer fram. A er „fóðurbandiS“ sem leikur á sigur- naglaútbúnaði um C, en hinn endinn hvílir á D, yfir upphækkuðum palli hleðslustykkisins, sem myndar annan hluta útbúnaðarins. Síðara færiband- ið gengur allavega eftir pallinum, sem hægt er að sveifla til á ýmsa vegu, og er auðvelt að framkvæma þær hreyf- ingar með handafli. Höfuðkostur þessa útbúnaðar er sá, hve auðvelt er að samræma not- hæfni hans við hin ólíkustu efni, ópökkuð og pökkuð, í alls konar um- búðum og við flutningavagna af öll- um gerðum. Með honum má ná mikl- um hraða í hleðslu án mikillar líkams- áreynslu, og hann veitir ágæta vörn gegn skemmdum við meðhöndlun sekkjavöru. Framleiðandi er Etablissements métallurgiques Boyer, Saint-Quentin, Aisne, Frakklandi. Úr „Manutenion", október 1959. E.T.D. nr. 3657. 86 Lyftisegull af „smóralaufsgerð" Segultæki til að lyfta málmhlutum; er samsett úr fjórum smærri segul- stykkjum, sem komið er fyrir á ein- um ramma. Oft verða skemmdir á vörum og efni til iðnaðar, þegar krókar eða vél- knúnar gripklær eru notaðar til að lyfta því. Segulstykki með stóru þver- máli hafa verið notuð til að lyfta sí- völum málmrenningum af hinum margvíslegu stærðum, sem framleidd- ar eru, en segulstykki þessi eru þung í vöfum og óhagkvæm. Nýtt segul-lyftitæki hefur nú verið gert, og er það samsett af fjórum smærri segulstykkjum, sem komið er fyrir á einum ramma, og má stilla tækið þannig, að segulstykkin falli nákvæmlega innan í málmrenningana og nái þannig hámarks-lyftikrafti. Framleiðandi er Rapid Magnetic Machines Ltd., Lombard Street, Birmingham, Englandi, og hefur fyr- irtækið látið meðfylgjandi mynd í té. Úr „Mechanical World“, ágúst 1959. E. T.D. nr. 3672. Flöskur gerðar úr plastþynnum í Frakklandi hefur þessi plastflaska hlotið miklar vinsældir sem óviðjafn- anleg nýjung í umbúðatækni. Hún hefur reynzt sérlega hagkvæm til vörudreifingar fyrir hreinsiefnafram- leiðandann, sem tók hana til notkun- ar. Aðferðin við framleiðslu flöskunn- ar er einstæð. Fullkomlega sjálfvirk vél, sem starfar í sjálfri verksmiðj- unni, þar sem áfyllingin fer fram, skilar 30 ódýrum, sambræddum flösk- um á mínútu, og er hver þeirra gerð úr einni plastþynnu. Efnið er 14-mil polyvinyl chloride. Þar sem umbúðir um hreinsiefni þurfa ekki að endast langan tíma, vildi framleiðandinn fá efni, sem væri óvandaðra, endingar- minna og ódýrara en gler, eða blásið polyethylene. Hann telur, að sparnað- IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.