Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 19

Iðnaðarmál - 01.05.1960, Síða 19
Þenslustykki á plastpípur Þegar plastpípulagnir eru á þeim stöðum, þar sem þær verða fyrir mikl- um hitabreytingum, getur þenslan í pípunum stundum valdið erfiðleik- um. Til að ráða bót á þessu hefur nú verið gert sérstakt þenslustykki, sem leyfir 2—12 þuml. þensluhreyfingar, eftir stærð þenslustykkisins. Eins og myndin sýnir, gengur endi stykkisins gegnum O-myndaðan hring, sem myndar höfuðsamskeytin og leyfir „teleskópískar“ hreyfingar á þeim hluta, sem sívalningurinn um- lykur. Endar sívalningsins eru út- búnir með hjálparþéttingu, sem gerir fært að endurnýja þéttinguna og lengja þannig endingartíma útbúnað- arins. Ekki þarf að taka pípuna úr sambandi, meðan þéttingar eru end- urnýjaðar. Utbúnaðinn má nota á pípustærðir frá % til 6 þuml. í þver- mál, og hægt er að smíða einstök stykki fyrir aðrar stærðir, ef óskað er. Þenslustykkið er smíðað úr PVC- pípuefni, sem framleitt er hjá Dura- pipe & Fittings, Ltd. fúr Geon RA 170 High Impact PVC frá British Geon. Ltd.). Framleiðandi er Barflo Ltd., 56 Cavendish Place, Eastbourne, Sussex, Englandi, og er meðfylgjandi mynd frá því fyrirtæki. Ur „Rubber Journal & International Plastics“, janúar 1960. DSIR Tehnical Dig- est no. 1186, júlí 1960. Nýjungar í síldveiðum I Bandaríkjunum er nú verið að reyna algjörlega nýja aðferð við síld- veiðar. Eru engin net eða nætur not- aðar við þessar veiðar, heldur raf- rnagn og loft. Fyrir skömmu komust menn að raun um, að unnt var að búa til í- myndaðan vegg úr loftbólum, sem síldartorfur synda ekki í gegnum. Var þetta t. d. reynt við vesturströnd Bandaríkjanna með því að leggja langa plastpípu út frá firði, sem síld var vön að ganga fram hjá. Pípan var alsett smágötum með 2—3 feta milli- bili og að sjálfsögðu sökkt á hafs- botninn. Samanþjöppuðu lofti var dælt í slönguna (frá landi), svo að veggur af loftbólum myndaðist. Þeg- ar síldartorfur komu að þessum loft- vegg, syntu þær ekki í gegnum hann, heldur meðfram og inn i fjörðinn, þar sem beðið var eftir henni. Nú er verið að reyna þessa aðferð við austurströnd Bandaríkjanna (við strendur Maine-fylkis), en í breyttri mynd. í staðinn fyrir að leggja plast- slönguna út frá landi er henni kastað í kringum síldartorfuna eins og hring- nót á hafi úti frá síldveiðiskipi (Rappahannock, 139 feta bátur) og samþjöppuðu lofti úr loftpressu (52 hestafla loftþjappa, sem framleiðir 5)4 teningsmetra/mín af 5)4 kg/cm2 lofti) er dælt í slönguna. Er síldin þannig umkringd af ímynduðum loft- vegg á allar hliðar nema þeirri, sem að skipinu snýr, og er ætlazt til, að hún syndi þangað. Um leið og hún nálgast skipið, lendir hún inn í raf- magnssvæði, sem lamar hana og fær hana til að synda að stórri slöngu, sem dælir henni viðstöðulaust um borð í skipið. Takist þessi tilraun vel, má búast við gerbyltingu á sviði síldveiða. Þess má geta, að þessi tilraun er gerð á vegum bandariska fiskimálaráðuneyt- isins (Bureau of Commercial Fisher- ies). L. L. Fjáríesting í bandarískum iðnaði í bókinni The Economic Almanac, sem út er gefin af National Industrial Conferance Board, New York, 1958, er að finna eftirfarandi töflu um með- alfjárfestingu í bandarískum iðn- greinum. Þess má geta, að vélvæðing og fjárfesting er yfirleitt meiri í band- arískum iðnfyrirtækjum en í öðrum löndum, og myndu því eftirfarandi tölur líklega að jafnaði vera of háar fyrir samsvarandi iðngreinar í V.- Evrópu. Taflan er fyrir árið 1954 og sýnir fjárfestingu í húsnæði, vélum og tækjum, og eins rekstrarfé miðað við framleiðslustarfsmann (produc- tion worker): Fjárfesting pr. framleiðslustarfsmann Iðngrein Dollarar (1954) Matvæli og drykkir . 14,992 Fataefni (textile) . . 8.009 Föt og klæði 3.523 Leðurvörur 4.106 Gúmvörur 13.579 Timburvörur 6.346 Húsgögn 6.057 Prentun og útgáfustarfsemi 10.194 Málmhlutir 8.387 Rafmagnsvélar 9.779 Aðrar vélar 12.685 Flutningatæki 8.673 Mælitæki 10.639 Olía 90.921 Kemisk efni 25.479 Vörur úr leir, steini eða gleri 10.915 L.L. IÐNAÐARMÁL 91

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.