Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 2
Breyíing á síarfsregluiii IMSÍ
(2ög um verUstjóratiámskeib
Axel Kristjánsson Benedikt Gröndal
Björgvin Frederiksen Björn Bjarnason
Harry O. Frederiksen Magnús J. Brynjólfsson
llinn 5. apríl s.l. gerði iðnaðarmálaráðu-
neytið þá breytingu á starfsreglum Iðnaðar-
málastofnunar Islands frá 20. maí 1957 að
veita tveimur nýjum samtökum aðild að
stjórn stofnunarinnar. Þessir nýju aðilar eru
Alþýðusamband Islands, sem hefur tilnefnt
Björn Bjarnason sem fulltrúa sinn, og
Vinnuveitendasamband Islands, sem hefur
tilnefnt Benedikt Grönc'al verkfræðing.
Fyrir í stjórn stofnunarinnar voru þeir
Axel Kristjánsson form., skipaður án til-
nefningar af ráðherra, Björgvin Fredriksen
fulltrúi Landsambands iðnaðarntanna,
Harry Fredriksen fulltrúi Sambands ísl.
samvinnufélaga, Magnús .1. Brynjólfsson
fulltrúi Verzlunarráðs íslands, Oskar Hall-
grímsson fulltrúi Iðnsveinaráðs A.S.l. og
Sveinn Guðmundsson fulltrúi Félags ísl.
iðnrekenda. c D
Á síðasta Alþingi voru samþykkt
lög um verkstjóranámskeið. Þar sem
IÐNAÐARMÁL þykjast þess fullviss,
að margir lesendur hafi áhuga á verk-
stjórnarfræðslu telja þau rétt að birta
lögin í heild.
LÖG
um verkstjóranámskeid.
Forseti Islands gjörir kunnugt: Alþingi hef-
ur fallizt á lög þessi og ég staðfest þau með
samþykki mínu:
1. gr.
Halda skal, að fengnu samþykki ráð-
herra, námskeið í verkstjórn árlega, eða oft-
ar, ef þörf krefur.
2. gr.
Stjórn námskeiðanna annast þrír menn,
sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn,
samkvæmt tilnefningu Verkstjórasambands
íslands, Vinnuveitendasambands Islands og
Iðnaðarmálastofnunar Islands. Ráðherra
skipar formann námskeiðsstjórnar úr hópi
tilnefndra stjórnarmanna. Varamenn skulu
skipaðir með sama hætti.
Ráðherra iðnaðarmála fer með yfirstjórn
þessara mála.
3. gr.
Ráðherra ákveður með reglugerð inn-
tökuskilyrði á námskeiðin.
4. gr.
Ráðherra setur ákvæði um það með
reglugerð, að fengnum tillögum Verkstjóra-
sambands íslands, Vinnuveitendasambands
Islands og Iðnaðarmálastofnunar íslands,
hvaða námsgreinar skuli kenna og hverjar
prófkröfur skuli vera, svo og um það, hvern-
ig kennslu, prófum, einkunnagjöf og útgáfu
prófskírteina skuli hagað, um skólagjald og
annað, er að kennslu og undirbúningi lýtur.
5. gr.
Próf skulu haldin að lokr.u námskeiði.
Ráðherra skipar prófdómendur, að fengn-
um tillögum stjórnar námskeiðanna.
Skýrslur um prófið, ásamt fullu nafni
hvers próftaka, fæðingarstað, degi og ári,
svo og einkunnum þeim, sem hann hefur
h.lotið, skal rita í bækur, sem ráðuneytið
löggildir til þess. Prófdómendur og stjóm
rámskeiðanna skulu staðfesta skýrslumar
með undirskrift sinni.
6. gr.
Stjórn verkstjóranámskeiöanna skal hai \
samstarf við samtök framleiðenda og aðra
aðila, sem hagsmuna hafa að gæta, og gera
árlega tillögur um, hvar, hvenær og með
hvaða sniði verkstjóranámskeið skulu hald-
in næsta ár á eftir.
Kostnaðaráætlun skal fylgja slíkum til-
lögum hverju sinni.
Iðnaðarmálastofnun íslands skal annast
framkvæmd námskeiðanna í umboði nám-
skeiðsstjórnar og hafa á hendi fjárreiður
þeirra og varðveita gögn þau og muni, sem
námskeiðunum tilheyra.
7. gr.
Jafnframt verkstjóranámskeiðum skal
stjórn námskeiðanna heimilt að starfrækja
bréfaskóla í verkstjórn, ef henta þykir.
8. gr.
Kostnaður við verkstjóranámskeið og
bréfaskóla samkvæmt lögum þessum greið-
ist úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt í
fjárlögum.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 29. marz 1961.
Asgeir Asgeirsson.
(L. S.)
Bjarni Benediktsson.
Stjórn námskeiÖanna hefur nú ver-
ið skipuð í samræmi við 2. gr. lag-
anna, og eiga þessir menn sæti í
henni: samkvæmt tilnefningu Verk-
stjórasambands íslands Adolf Peter-
sen og til vara Þórður Þórðarson,
samkvæmt tilnefningu Vinnuveitenda-
sambands íslands Gústaf E. Pálsson
og til vara Óttar Hansson og sam-
kvæmt tilnefningu Iðnaðarmálastofn-
unar Islands Axel Kristjánsson og
til vara Óskar Hallgrímsson. Ráð-
herra hefur skipað Gústaf E. Pálsson
til að gegna störfum formanns nám-
skeiðsstjórnar og Adolf Petersen til
vara. Ráðherra iðnaðarmála fer með
yfirstjórn þessara mála, eins og íekið
er fram í 2. gr. Ætlazt er til, að Iðn-
aðarmálastofnun Islands annist fram-
kvæmd námskeiðanna í umboði nám-
skeiðsstjórnar og hafi á höndum fjár-
reiður þeirra, eins og fram kemur í
6. gr.
S. B.
Sveinn Guðmundsson
58
IÐNAÐARMAL