Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 21
Polysulphide-þéttiefni Nýtt „Thiokol“-þéttiefni til al- mennra nota, gætt frábærum eigin- leikum. Þetta nýja þéttiefni er samsett af tveimur efnablöndum: Þéttinum, er byggist á .,Thiokol“-polysulphide, og herðinum. Fyrir notkun skal blanda saman þétti og herði í hlutfallinu 9:1. Blandan inniheldur 100% föst efni, hefur eðlisþyngd 1.35 og þarfnast ekki hita eða þrýstings til herzlu eftir notkun. Herzla byrjar þremur klukkustund- um eftir notkun, og innan 24 klst. er þéttleiðin norðinn svipaður gúmi, ef blandað er við venjulegan stofuhita. Viðloðun er mjög góð. Fyrir notk- un þarf yfirborðið að vera þurrt og ryklaust. Ef um steinsteypu eða timb- ur er að ræða, eykur grunnmálning viðloðunina. Þetta nýja efni hefur marga af- burðakosti. í fyrsta lagi skreppur það mjög lítið saman vegna hins mikla innihalds fastra efna. Það er gætt mikilli staðfestu á hitasviði allt frá -1- 50° C til 120° C, sprunguþétt við mjög lágt hitastig og rennur ekki, jafnvel við 120°C. Staðfesta þess er endingargóð, og það veitir frábært viðnám gegn veðrun, sjávarlöðri, súr- efni, ozone, ýmsum upplausnarefnum og kemískum efnum (sýrum, bösum, olíum o. fl.) Þá má nefna eiginleika eins og tog- þol, 20—40 kg/cm2, mikið svigþol og þrýstiþol, höiku og þéttleika gegn gufum. Unnt er að teygja það um 300%, áður en það brestur. Það myndar góða festingu við næstum allt byggingarefni: stein og stein- steypu, gler, við, stál, kopar, bronz og hörð polyvinyl chloride plastefni. Eina undantekningin er polyethylene. Þetta „Thiokol“ þéttiefni er not- hæft við næstum hvers konar bvgg- ingarstarfsemi. Einkum er það mikil- vægt við byggingu gluggat j alda- veggja í nýtízku byggingum. Þá má nota það við skipabyggingar, þar sem það getur komið í stað hampþétting- ar, pípufóðranir, þéttingar á geymum o. fl. Efnið er fáanlegt í nokkrum litum: svörtum, brúnum, rauðum og alúmín. Þá eru einnig fáanlegar sértegundir, miðaðar við sérstakar þarfir sam- kvæmt ósk kaupenda. Framleiðendur eru N. V. Fabriek van Chemische Producten „Saba“, Dinxperlo, Hollandi, og Thiokol Chemical Corp., Trenton, N.Y. USA. E.T.D. no. 3497. HraSteikniútbúnaður Gerður hefur verið einfaldur og fyrirferðalítill teikniútbúnaður til að auðvelda gerð tæknilegra uppdrátta. Hann er samsettur af gagnsærri sniðplötu, sem er nákvæmlega tilskor- in og fest við grunnspjald með stækk- unarútbúnaði (pantograph) á tvö- földum hjörum. Grunnspjaldið er not- að sem teikniborð, og er það útbúið með hornum, er halda teikningunum í réttum skorðum. Ollum útbúnaðin- um er komið fyrir í hulstri, er fella má saman og er með sérstökum vasa í lokinu fyrir teiknipappír. Stensillinn er útbúinn með öllum venjulegum hornum, hringum og sporbaugum, ásamt mörgum öðrum gagnlegum táknum og mælikvörðum. Hann innifelur einnig ágætt kerfi fyr- ir sniðstrikun, án þess að meta þurfi fjarlægðir milli lína. Framleiðandi er The Quickdraw Co. Ltd., 127 Gunnersbury Avenue, London, W. 3. Ur „Engineering Materials and Design", sept. 1960. — DSIR Technical Digest no. 1294. Plasthúöaðar stálþynnur Ýmsir stálframleiðendur í Banda- ríkjunum, Bretlandi og víðar eru nú farnir að húða stálþynnur sínar með vinyl-plasti, um leið og plöturnar eru framleiddar. Með þessu móti sameina þeir kosti þessara tveggja efna, um leið og þeir standa betur að vígi í samkeppninni við aukna notkun plast- platna í stað stálþynna. Þessi plast- húðun er allflókin, þar eð ekki má setja plastið beint á völsuðu plöturn- ar, heldur eru þær fyrst hreinsaðar með kemiskri aðferð. Síðan er yfir- borð þeirra hrufað lítið eitt með sýru og rafmagni, áður en þær eru grunn- aðar með hitaherzlulími (plasti) og hitaðar. Þá fyrst er vinyl-plasthúðin völsuð á stálþynnumar (öðrum meg- in). Helztu kostir þessara vinyl-húðuðu stálþynna (%—1% mm) eru þeir, að vinna má þær eins og blikk án þess að eiga á hættu að plasthúðunin skemm- ist eða rifni af stálinu. Plasthúðin, sem fæst í mörgum litum og áferðum (hrjúf eða slétt), er endanleg áferð hins smíðaða hlutar, og þarf því ekki neitt að hugsa um hreinsun, sprautun eða bökun á honum. Sparar þetta mikinn kostnað og vinnu við fram- leiðslu ýmissa hluta, sem jafnframt hafa mjög sterka varnarhúð og fallegt yfirborð, sem er hlýtt viðkomu (ólíkt lökkuðu eða máluðu stáli). Þessar plast-stálþynnur má beygja 180 gráður, djúpmóta (pressa), högg- skera, rafsjóða (bak) o. s. frv. án þess að skemma á nokkum hátt plasthúð- ina eða án þess að hún losni frá stál- IÐNAÐARMÁL 75

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.