Iðnaðarmál - 01.04.1961, Blaðsíða 27
Vinnurannsóknir og ákvæðisvinna Framh. af 59. bls.
þess og taki virkan þátt í ráðstöfunum til að skapa skilyrði til, að svo megi
verða. Að sú áætlun um þjálfun manna í vinnurannsóknum, sem hér hefur ver-
ið minnzt á, geti orðið að veruleika og borið góðan árangur, er því að veru-
legu leyti undir því komið, að jafnt samtök launþega sem atvinnurekenda séu
fús til að veita málinu stuðning sinn og áhuga. Takist að skapa skilyrði til að
hagnýta vinnurannsóknir í ríkum mæli í þágu íslenzkra atvinnuvega í náinni
framtið, má fullyrða, að aðstaðan til að bæta lífskjörin mun batna til muna.
S. B.
H'c^um 0(8 ejjni a jjleili tcetznisélþceðincjuml
Mikið er um það talað, að hér á landi þurfi fleiri vel menntaða,
tæknisérfróða menn til að fylgjast með hinni öru tækniþróun erlend-
is og beina henni inn í atvinnulíf okkar, annaðhvort með bættum
starfsaðferðum og tækjum eða með hagnýtri rannsóknarstarfsemi og
upplýsingastarfsemi. Ekki er að efa, að þetta sé rétt, enda hafa ýmsar
athuganir erlendis sýnt, svo að ekki er um villzt, að aukin tœknikunn-
átla er helzli þátturinn í vaxandi framleiðni og ejnahagslegri velmeg-
un iðnaðarþjóða (sbr. síðasta hefti Iðnaðarmála, bls. 38, „Dulið
afl“).
Þó virðist þróunin hér í þessum málum vera öll á annan veg. Fjöldi
tæknisérfróðra manna flyzt nú af landi burt eða kemur alls ekki heim
að loknu námi erlendis vegna lélegra kjara og starfsskilyrða. Sama
máli gegnir í rannsóknarstarfsemi okkar, en samkvæmt athugunum
rannsóknarráðs er kjörum og starfsskilyrðum sérfræðinga þeirra
mjög ábótavant og starfskraftar þeirra illa nýttir. Auk þess þarf að
veita miklu meira fé en gert er í rannsóknarstarfsemi í þágu atvinnu-
veganna, til þess að hún geti sýnt verulegan árangur.
Þegar svo er komið, að mikill hluti færustu tæknisérfræðinga okk-
ar flyzt úr landi og sérhæfir starfskraftar þeirra, sem ennþá sitja
heima, eru illa nýttir og vanmetnir, þá er ekki hægt að segja, að við
höfum efni á fleiri „fræðingum“.
En er þá ekki kominn tími til að taka þessi mál til alvarlegrar end-
urskoðunar?
L. L.
Reglur um vinnurannsóknir
Framh. af 72. bls.
lialdið sínum venjulegu tekjum vegna
tímataps- eða vinnuaðferðarannsókn-
anna, skulu fá tryggð meðallaun sín á
klst., meðan rannsóknir þessar standa
yfir.
3. Þegar ákvæðisvinnutaxtar eru
ekki fyrir hendi, skal greiða fyrir
ákvæðisrannsóknartímann þann á-
kvæðisviðauka, sem ákveðinn er í
taxtasamningi eða í eigin samkomu-
lagi, að því tilskildu, að störfin séu
unnin með venjulegum ákvæðisvinnu-
hraða, meðan á rannsókn stendur.
Oslo, 19. júlí 1955
Norska vinnuveitendasambandið
Tryggve Klappe
John Andrésen
Landssamband verkalýðsfél.
Konrad Nordahl
Alf Andersen
Síarfsniannasliipti
í maíbyrjun tók Þórir Einarsson
viðskiptafræðingur til starfa í Iðnað-
armálastofnun Islands. Þórir lauk
kandídatsprófi í viðskiptafræðum
vorið 1957, en hefur frá hausti sama
árs stundað framhaldsnám í hagfræði
við Hamborgarháskóla. Síðari hluta
þessa tímabils hefur hann sérstaklega
lagt stund á iðnaðarmál við Institut
fiir Industri- und Gewerbepolitik, sem
er í tengslum við háskólann í Ham-
borg.
Með þessu hefti IÐNAÐARMÁLA
tekur Þórir Einarsson sæti í ritnefnd,
en hann mun eirinig gegna starfi skrif-
stofustjóra eins og fyrirrennari hans,
Guðmundur H. Garðarsson.
Þá hefur frú Maja Olafsson verið
ráðin til stofnunarinnar í byrjun árs-
ins til að annast gæzlu Tæknibóka-
safns IMSI. Er nú safnið opið mun
lengur en áður, og sömuleiðis hefur
þjónusta þess verið aukin til muna við
komu bókavarðarins.
Stjórn og starfslið Iðnaðarmála-
stofnunarinnar vilja nota þetta tæki-
færi til að bjóða þau Maju og Þóri
velkomin til starfs.
S. B.
•IÐNAÐARMAL
79