Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 9

Iðnaðarmál - 01.04.1961, Síða 9
N Y FRYSTITÆKN I 1. mynd: Pakkar meS heitum tilreiddum matvælum settir á vírbakka, sem fara í gegnum köfnunarefnisúSa og sjóSandi köfnunarefnisvökva. Kœling og frysting matvælanna tekur aSeins 5 mín. í þessu sjálfvirka tœki. Með því að dýja matvœlum ofan í „sjóðandi“ köfnunarejnisvökva, sem sýður við tæplega 200°C frost, fæst mjög snögg og mikil frysting matvœl- anna. Þar sem köfnunarefni hefur engin áhrif á bragð eða samsetningu matvælanna, viðheldur þessi frystiað- ferð mjög vel gœðum þeirra. Aðferöin hefur lengi verið þekkt, en ekki náð neinni útbreiðslu vegna kostnaðar og ýmissa tæknivandamála. En nú virðist hún vera framkvæman- leg, því að vandamál hennar hafa ver- ið leyst á viðunandi hátt, og horfur eru á, að hún verði viðhöfð í stórum stíl. Aðferðin er notuð, hvort heldur er til þess að snöggfrysta ný eða til- reidd matvæli eða til þess að flytja fryst matvæli langar vegalengdir á sjó eða landi, því að ekki þarf, ef hún er notuð. hin dýru frystiflutningatæki, sem nú eru almenn. Þegar hafa nokkur stórfyrirtæki í Bandaríkjunum tekið þessa tækni í þjónustu sína. Upphaflega var það skipafélag í New York. Isbrandtsen Co., sem endurbætti þessa aðferð, svo að því yrði kleift að flytja frosin matvæli til fjarlægra landa, eins og um vanalegan varning væri að ræða, svo að ekki þyrfti að nota sérstök frystiskip til flutningsins. Vandamálið í þessu sambandi tókst að leysa með því að smíða stórar alú- mínkistur ÍS'XB'XB'), klæddar 6" einangrun. I þessar kistur var raðað pökkuðum matvælum, nýjum eða frystum, þar til þær voru fullar, en þær taka um 10 tonn. Þá var þeim lok- að vandlega og köfnunarefnisvökva dælt inn í þær. Um leið og vökvinn kemst í snertingu við matvælin, sýður hann við nær 200° C. Köfnunar- efnið, sem gufar þannig upp, er leitt í loftkenndu ástandi í sérstakt loft- vökvatæki, sem kælir köfnunarefnið og þrýstir því saman í vökva, og er vökvanum síðan dælt jafnóðum í kist- urnar aftur, þar til kæling matvæl- anna er orðin -f- 100°— -j- 150°C, og tekur þessi vökvakæling 2—3 klst. Matvæli, sem kæld hafa verið svona mikið í þannig einangraðri kistu, eru mjög lengi að hitna, jafnvel þótt kist- an standi úti í steikjandi sólarhita dögum saman. Er sagt, að það taki um 50 daga að hita 10 tonn af mat- vælum í einni slíkri kistu úr -j- 100° C niður í ■— 20° C, enda þótt kistan standi í 40° C hita. Fyrrnefnt skipafélag hefur notað þessar einangruðu alúmínkistur til að flytja vikulega fryst matvæli sem vanalegan farm til Bermudaeyja. Einnig hefur það flutt þannig fryst matvæli til herstöðva á Spáni, Græn- landi og í Þýzkalandi með góðum árangri. Þá hefur þetta skipafélag stofnað systurfyrirtæki, „Liquefreeze Co., Inc.“, sem einbeitir sér að því að koma þessari tækni á í samvinnu við járnbrautarfélög og matvælafram- leiðendur. Hefur Liquefreeze Co. lát- ið einangra með lausum einangrunar- plötum 20 ára gamla járnbrautar- flutningavagna. I Kaliforníu voru vagnarnir hlaðnir nýju grænmeti (27.7 smáh), þeim lokað og köfnun- arefnisvökva dælt inn í þá, þar til kælingin er orðin um -f- 195° C. Vagnarnir eru þá tengdir við flutn- ingalest og dregnir til New York-borg- ar. Ferðin tekur um 7 sólarhringa, og er hitastig grænmetisins, komið til New York, tæpar -f- 90° C, og er það þá í fyrsta flokks ástandi. Ekkert eft- irlit þarf að hafa með vögnunum á leiðinni. Liquefreeze Co. hefur smíðað lítil sjálfvirk frystitæki (hafa rúml. 10 m2 gólfflöt) fyrir matvælaframleiðendur, og geta tæki þessi fryst og kælt heit, tilreidd matvæli úr 70—80° C hita niður í -f- 20° C kulda á aðeins 5 mín- útum, en með vanalegum kæli- og frystiútbúnaði tekur þetta 2—3 klst. Með slíkri skyndikælingu og frystingu er tryggt, að bragð og gæði hinna til- IÐNAÐARMÁL 63

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.