Iðnaðarmál - 01.04.1961, Side 19
NYTSAMAR NYIUNGAR
Steinsteypu logskurSartæki
Ací brjótast í gegnum þykka stein-
steypuveggi getur oft verið erfitt og
vandasamt verk, hvort sem um niður-
rif á húsum eða breytingar er að
ræða. Sérstaklega er þetta erfitt, ef
gæta verður að skaða ekki aðra hluta
byggingarinnar samhliða verkinu.
Vinna með loftborum er seinleg og
dýr, og sprengingar geta verið hættu-
legar.
Lausn á þessu vandamáli virðist
vera fólgið í notkun á steypu-logsuðu-
tæki, sem nýlega hefur verið full-
komnað í Bandaríkjunum (Linde Co.,
Division of the USA’s Union Carbide
Corp.). Steypuskurðurinn er fram-
kvæmdur með því að blása járn- og
alumíndufti í vanalegan súrefnis-ace-
tylene logsuðuloga. Við brennslu
málmduftsins hækkar hitastig logans
nægilega mikið til þess að bræða
steinsteypu. Járnbinding í steypunni
flýtir fyrir logskurðinum, þar sem
járnið brennur við skurðinn og eykur
hitastig logans.
Auk þess sem logskurðartækið er
bæði fljótvirkt og nákvæmt og unnt
að skera með því beina eða boga-
myndaða skurði (eftir línum), þá
fylgir enginn titringur við logskurð-
inn. Tækið er tiltölulega létt, ódýrt og
fyrirferðalítið. Meðfylgjandi mynd
sýnir tækið í notkun, en það getur
skorið í sundur allt að 45 cm þykka
steinsteypu, og er skurðhraði þess 2,5
—6,0 cm á mínútu, óháður þykkt
steypunnar, þar sem gas- og málm-
duftsmagnið er bara aukið við þykk-
ari veggi.
Hver sá, sem kann að nota venjuleg
logsuðutæki, á að geta meðhöndlað
þetta skurðartæki. Þó þarf að gæta
ýmissar varúðar við notkun þess, t. d.
getur hin brædda steypa valdið
íkveikju, ef ekki er að gætt, og eins
myndast töluverður reykur við bruna
járnsins (þó ekki eitraður), og þarf
því góða loftræstingu, ef tækið er not-
að í lokuðum herbergjum. Með sæmi-
lega góðri aðgæzlu ætti þetta tæki að
geta komið byggingariðnaðinum að
góðum notum.
L. L.
Plast úr fiskúrgangi
í Noregi (Wm. A. Mohn and Sn
A/S, Bergen) er framleitt tiltölulega
ódýrt og allgott plastefni úr fiskroð-
um og nýlegum fiskúrgangi, sem fæst
úr frystihúsum. Um 5 tonn af fiskúr-
gangi þarf til að framleiða 1 tonn af
plasti.
A fyrsta stigi vinnslunnar eru að-
eins eggjahvítuefnin brotin lítið eitt
niður og síðan látin ganga í samband
við formaldehyde, og myndast þá
fyrrgreint fisk-plastefni. Þetta plast-
efni (thermosetting) hefur töluverða
tilhneigingu til að draga í sig raka,
en til að draga úr þessum ókosti er
blandað saman við það litlu magni af
öðru plastefni (ca. 5% af þunga
þess), og verður þá vatnsdrægni
plastsins aðeins ca. % af vatnsdrægni
kasein-plastefna, auk þess sem aðrir
eiginleikar eru endurbættir, svo sem
auðveldari þrýstimótun, meiri harka
mótaðra plasthluta o. s. frv.
Eiginleikar þessa blandaða fisk-
plastefnis eru sagðir vera allgóðir
samanbornir við önnur algeng plast-
efni (thermosetting). Gagnsæja hluti
má framleiða úr því, og ekki er held-
ur þörf á fylliefnum. Þá er mjög gott
að slípa hluti úr þessu plastefni.
Heimildarrit: Plastics World, Jan. 1954.
Hjólpartæki við hitavinnslu
á hitaplastefnum
(thermoplastics)
Einföld áhöld og tæki fyrir smáfram-
leiðslu.
I litlum og meðalstórum verkstæð-
um, þar sent unnið er að framleiðslu
úr hitaplasti, svo sem polyethylene-
pípum, plötum o. fl., er unnt að auka
mjög framleiðsluhraðann, ef notuð
eru tæki, er sérstaklega eru til þess
gerð að hjálpa við slík störf. Auk
þess mun framleiðsluvaran verða
gæðameiri, ef notuð eru tæki, sem
sérstaklega eru samhæfð eiginleikum
og hegðun hitaplastefnisins.
1. Kragamótunaráhald
Oft er dýrt að tengja plastpípur
með kragatengingu. Mynd 1 sýnir
kragamótunaráhald, sem er samsett
af ytri hitunarhring og kragaermi.
Pípan er klemmd innan í hringnum.
Barmurinn er hitaður upp í vinnslu-
hita (svo að hægt sé að forma efnið
án þess að brjóta), og er það gert með
því að dæla heitu lofti inn um grópin
í hringnum. Því næst er kraginn gerð-
ur með skrúfuþrýstingi.
2. Stúfsuðutœki
Mynd 2 sýnir hitavinnsluborð, sem
tekið getur plötur eða þiljur af 2000
mm breidd og 15 mm þykkt. Plöturn-
ar eru skorðaðar í stöðu með fót-
pressustöng. Rafhituð blöð, stillt með
IÐNAÐARMAL
73