Iðnaðarmál - 01.04.1961, Side 22
inu. Þær hafa þegar verið notaðar
með góðum árangri á alls konar heim-
ilistæki (ytra byrði þvottavéla, vatns-
hitara, borðtoppa, bakka, útvarps-
skápa o. s. frv.), á bílahluti (yfir-
byggingar, mæliborð, klæðning að
innan o. s. frv.), í verksmiðjur (borð-
toppa, tæki og húsgögn í kaffistofur,
þvottatæki, stáltunnur, tæki í tilrauna-
stofur, loftleiðslur o. s. frv.), og í
byggingar, innan eða utan (í lyftur,
vegg- og þilklæðning, utanhússklæðn-
ing í hljóðeinangrandi loft o. s. frv.).
Samkvæmt upplýsingum frá brezk-
um stálframleiðanda (John Summers
and Sons Ltd., Shotton, Chester, Eng-
landi), sem jafnframt framleiðir slík-
ar plast-stálþynnur (kallaðar Stelve-
tite), eru þessar plötur fáanlegar í 10
þykktum frá V2 mm (26 B. G.) upp í
1 Vo mm (16 B. G.) með ca. 0,35 mm
vinyl-húð (öðrum megin).
Verksmiðjuverð á þessum plötum
er um kr. 120/m2 (ca. 30 kr/kg) fyr-
ir þynnri (Y2 mm) plöturnar en um
200 kr/m2 (ca. 18 kr/kg) fyrir þær
þykkari (lþi mm stál) miðað við
stórar pantanir (5000 ferfet) en um
30 kr/m2 hærri fyrir litlar pantanir
(undir 1.500 ferfetum). Nánari upp-
lýsingar má fá frá ofangreindum stál-
framleiðanda.
Sjálfvirk vél
fyrir brotthreinsun fitu
Franskt fyrirtæki hefur gert sjálf-
virka vél, sem talið er að muni ryðja
sér skjótt til rúms á sviði fituhreins-
unar í iðnaði. Ætti hún að geta brúað
bilið milli handhreinsunar og sam-
felldra hreinsiaðferða og gert litlum
og meðalstórum fyrirtækjum fært að
njóta kosta sjálfvirkrar meðhöndlun-
ar.
Helzta einkenni í gerð vélarinnar
er loftþrýstiknúinn lækkunar- og lyfti-
búnaður, samstilltur við starfsemina í
fituhreinsihólfinu og staðsettur utan
við hreinsigufusvæðið. Sjálf hreinsi-
starfsemin er fólgin í einfaldri um-
ferð í gegnum upplausnargufu (per-
chlorethylene). Hreinsunin fullkomn-
ast á þurran hátt.
Hreinsiaðgerðin fer fram sem hér
segir:
1. Straumur settur á niðurdýfingar-
hitarana. Perchlorethylene hita upp í
suðumark (120.8° C).
2. Karfan látin síga niður. Dyrum
lokað og þyrla stöðvuð.
3. Brotthreinsun fitunnar: Körf-
unni er haldið í geymi, þar sem upp-
lausnargufan stígur upp. Hreinsunin
verður með þeim hætti, að upplausn-
arþéttivökvinn flæðir um yfirborð
hlutanna í körfunni.
4. Hitastillibúnaður slekkur á hit-
uninni, þegar gufurnar ná fyrirfram
ákveðnu hitastigi.
5. Lyfting körfunnar.
6. Dyr opnaðar. Þyrla sett í gang
(til að hrekja gufuna niður og kæla
hlutina).
Hægt er að láta vélina starfa í sam-
bandi við sjálfvirk færikerfi (t. d.
færibönd á veltikeflum).
Venjulegur hreinsunartími er 10
mín. fyrir 50 kg hleðslu og orkuneyzl-
an aðeins 7.5 kW. Sem aðra kosti má
nefna verulegan sparnað á upplausn-
arefnum og bætt vinnuskilyrði við
hreinsunina.
Framleiðandi er La Détersion In-
dustrielle, 57 bis, rue Emériau, Paris
15-e.
E.T.D. no. 4223.
Færanlegir kranar
Séð fyrir greiðum aðgangi með því
að koma hreyfibúnaðinum fyrir aft-
an við höfuðsúluna.
Ný gerð af krönum er nú fram-
leidd, þar sem allur vélbúnaðurinn er
staðsettur aftan við hina lóðréttu höf-
uðsúlu. Kraninn getur því nálgazt fyr-
irferðarmikla hleðslu eða ökutæki al-
veg upp að súlunni, og öll undirhlið
lyftiássins er frjáls.
Til þess að auðvelt sé að fella kran-
ann saman og flytja hann til, eftir þvi
sem þörf krefur, er súlan þannig út-
búin, að unnt er að losa hana frá
grunnstykkinu með því að skrúfa
lausa tólf bolta. Annars er kraninn
sterklega samsoðinn úr „kassabitum“
(box sections).
Kranarnir eru fáanlegir bæði með
vökvaþrýstibúnaði og vélbúnaði. Á
vökvaþrýstikrananum er þjappan aft-
an við súluna. Vélkraninn er búinn
sterkri vindu með „epicyclic“ gang-
skiptingu og er fullkomlega sjálfstyrk-
ur undir hleðslu.
Framleiðandi er Mann Egerton &
Co. Ltd., Cromer Road Works, Nor-
wich, Englandi.
Ur „Production Equipment Digest“, okt.
1960. — E.T.D. no. 4156.
Raflýsandi
auglýsingaspjöld
Heimsþekkt fyrirtæki í Eindhoven,
Hollandi, framleiðir nú lýsandi plöt-
ur, samsettar af venjulegu rúðugleri,
er myndar uppistöðu. Þunnri húð af
tin-oxide er sprautað á, við hátt hita-
stig, öðrum megin á plötuna. Þetta
lag myndar leiðslubak. Lag af lýsandi
efni — virku sink-sulphidedufti — er
borið á leiðslubakið. Síðan er annarri
húð af tin-oxide sprautað yfir hið lýs-
andi lag. Þetta myndar nokkurs kon-
76
IÐNAÐARMAL