Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 20
20 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Starfsfólk Vita: Halla Hjartardóttir, Lára
Jóhannsdóttir. Soffía Rut Þórisdóttir og Soffía
Helgadóttir.
Fagleg og persónuleg þjónusta við
skipulagningu viðskiptaferða
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA VITA
FERÐASKRIFSTOFAN VITA er óháður ferðaskipuleggjandi. Að sögn Soffíu
Helga dóttur deildarstjóra leitar fyrirtækið eftir hagstæðum lausnum fyrir
viðskiptavini ásamt hagkvæmasta ferðamáta, hvort sem bókað er í bókunar-
kerfi ferðaskrifstofunnar eða á netinu.
Persónuleg þjónusta
„Ferðaskrifstofan VITA er sérlega góður
kostur þegar kemur að skipulagningu
viðskipta og einstaklingsferða. Við
bjóð um upp á persónulega þjónustu
ferða ráðgjafa sem hafa áralanga reynslu í
skipu lagningu viðskiptaferða. Við gerum
samninga við öll helstu flugfélög heims,
hótelkeðjur og einnig bílaleigusamninga.
Þess er ávallt gætt að haldið sé vel utan
um þarfir hvers viðskiptavinar með þætti
eins og vildarnúmer, sætisbókanir og sér
þarfir og við þjónustum bæði hópa og
einstaklinga í áætlunarflugi. Þess má geta
að fyrirtæki sem gera við okkur samning
fá veltutengdan afslátt á flughluta
Icelandair.
VITA-viðskiptaþjónusta sparar tíma og fé
Viðskiptaþjónusta VITA býður upp
á sólarhringsþjónustu fyrir samn ings
bund in fyrirtæki sem þurfa að breyta
ferða áætlun eða bóka ferð utan almenns
af greiðslutíma, sem getur reynst mjög
vel. Fyrirtæki og einstaklingar spara sér
tíma og fé með því að versla við Vita
viðskiptaferðir enda er tíminn dýrmætur
og því lykilatriði að nýta hann vel. Við
störfum einnig náið með ráðstefnudeild
Iceland Travel ef þörf er á að halda utan
um ráðstefnu eða viðburð innanlands
sem utan. Hjá VITA færðu hagstæð far
gjöld og hagkvæma ferðaáætlun, hvort
sem erindið er fundur, ráðstefna, vöru
sýning eða eitthvað annað. VITA er með
samkeppnishæft verð og samninga við
flugfélög og hótel um allan heim.“
VITA-þjónustusamningurinn
VITA-þjónustusamningur veitir
sérhæfða og persónulega þjónustu sem
meðal annars felur í sér:
• Fyrirtækjasamning við Icelandair sem
veitir þínu fyrirtæki afslátt og sérkjör.
• Hagstæðan fyrirtækjasamning við
Iceland Express.
• Samning við öll helstu flugfélög heims
um hagstæð fargjöld og tengiflug.
• Neyðarsíma allan sólarhringinn fyrir
samningsbundin fyrirtæki.
• Hagstæða hótelsamninga.
• Hagstætt verð fyrir bílaleigubíl eða
annan akstur á hverjum stað.
• Vildarnúmer fyrir hvern viðskiptavin,
svo hægt sé að skrá óskir og sérþarfir
viðskiptavina.
VITA viðskiptaþjónusta gerir
samninga við öll helstu
flugfélög heims, hótelkeðjur
og einnig bíla leigu samninga.