Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 23
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 23
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Pennans.
Í Hallarmúlaverslunum okkar er hægt að kaupa allt sem þarf til dag legs skrifstofuhalds og afþreyingar, eins og pappír, húsgögn, ritföng, tóner,
kaffi, tímarit, bækur, myndlistarvörur og
fleira. Mörg fyrirtæki eru þar í daglegum
viðskiptum sem starfsfólk okkar er farið að
þekkja vel. Stærri og millistór fyrirtæki versla
beint í gegnum fyrirtækjaþjónustuna og fá
því vörurnar sendar heim að dyrum. Við
erum með verslanir á landsvísu og þjónum
breiðum hópi með mismunandi þarfir.
Nýr vörubæklingur
Penninn þjónar bæði einstaklingum og
fyrirtækjum með það að leiðarljósi að
viðskiptavinir geti ætíð gengið að þægilegri
og fjölbreyttri þjónustu. Söluráðgjafar eru
fyrirtækjum innan handar með faglega
ráðgjöf og persónulega þjónustu. Fyrirtæki
í föstum viðskiptum njóta aukins ávinnings
í formi afsláttar sem ræðst af umsvifum
viðskipta auk þess sem þau fá upplýsingar
um sértilboð í hverjum mánuði.
Nýlega kom út nýr vörubæklingur frá
Pennanum sem dreift var á öll fyrirtæki á
landsvísu. Bæklinginn er jafnframt hægt að
nálgast í öllum verslunum Pennans. Hann
endurspeglar það úrval sem við bjóðum
upp á en er þó hvergi nærri tæmandi listi –
aðeins brot af því besta.
Öflug vefverslun
Vefverslun Pennans er öflug og þar er hægt
að gera pantanir á fljótlegan hátt og að
sjálfsögðu sendum við hvert á land sem er.
Í vefverslun okkar er hægt að fletta upp
fjölbreyttu vöruúrvali, skoða lagerstöðu og
leggja fram pantanir á einfaldan og fljótlegan
hátt. Viðskiptavinir geta fengið séraðgang
og útbúið sína eigin körfu með sérvöldum
vörum og flýtt þannig fyrir næstu pöntun.
Á heimasíðu okkar er jafnframt hægt að
nálgast umsókn um reikningsviðskipti.‘‘
Breytingar í verslun og nýr vörubæklingur
PENNINN
Nýverið hafa staðið yfir breytingar í verslun Pennans í Hallarmúla 2. Að sögn Ingibjargar Ástu Halldórsdóttur, markaðsstjóra
Pennans, er búið að endurskipuleggja og þétta verslunina og gera þannig vöruúrvalið ennþá meira spennandi og aðgengi-
legra fyrir viðskiptavini. Jafnframt hefur verið sett upp notaleg kaffiaðstaða út við gluggann sem snýr að Hallarmúlanum.
Þar geta viðskiptavinir látið líða úr sér, sest niður og fengið sér gott kaffi og gripið í nokkur blöð til lestrar.
„Penninn þjónar bæði einstakl ingum og fyrirtækjum með það
að leiðarljósi að viðskipta vinir gæti ætíð gengið að þægi legri
og fjölbreyttri þjónustu.‘‘
Í verslun Pennans Hallarmúla 2.