Frjáls verslun - 01.08.2010, Síða 29
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 29
FERLA-
STJÓRNUN
ER MÁLIÐ
ÞAU HAFA ORÐIÐ
GRÆJUR09
Páll Stefánsson, ljósmyndari:
FRJÁLS EINS OG
FUGLINN
Íkarus, í Grikklandi hinu forna, var fyrsti maðurinn til að fljúga. Hann setti á sig fjaðrir, sem hann festi á með vaxi, á flótta frá eyjunni Krít, en gleðin yfir að geta flogið varð skynseminni yfirsterkari; hann flaug of nálægt sólinni, sem bræddi vaxið, svo hann féll í hafið og drukknaði.
Hafið milli Grikklands og Krítar ber nafn hans enn í dag. Nú loksins, 4.000
árum seinna, hefur þýska fyrirtækið JETLEV sett á markaðinn flugtól sem
notar vatnsþrýsting til að fljúga. Tækið er auðvelt í notkun, þú getur náð 10
metra hæð og hraðinn er 35 kílómetrar á klukkustund. Fyrstu tækin hafa
tveggja tíma flugþol, en í náinni framtíð koma tæki sem hafa flugþol upp í
300 kílómetra. Þess má geta að Þjórsá, lengsta á landsins, er 230 km löng
frá upptökum til ósa. Fjögurra strokka mótor knýr JETLEVflugfarið áfram.
Flugmaðurinn getur verið allt að tveggja metra hár og burðargeta flugfarsins
er 120 kíló. Það tók tólf ár að hanna flugfarið og verðið er 129.000 evrur,
eða aðeins 21 milljón króna. Örugglega stórkostlegt tæki fyrir laxveiðimenn;
hægt að skanna ána upp og niður, finna hvar laxinn heldur sig. Eða fyrir
Vestmannaeyinga – korter í land, Landeyjahöfn hvað!
Sniðið að þörfum
þíns fyrirtækis
Gott dreifikerfi og traust þjónusta skiptir
lykilmáli. Hafðu samband við söluráðgjafa
í 599 9500 og við finnum leið sem hentar
þínu fyrirtæki.
Treystu Vodafone fyrir þínum
fjarskiptamálum
vodafone.is