Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 45
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 45
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Ég treysti mér ekki til að segja til um það,
en sjálf erum við sem betur fer þannig sett
að við vorum að tilkynna fjárfestingu fyrir
um 57 milljarða króna.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Nei, en þó er vert að nefna að við verðum
talsvert vör við það hjá innlendum birgjum
okkar að viðskiptin við okkur skipti þá
meira máli en áður og stundum er kannað
hvort unnt sé að flýta greiðslum.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Nei.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Nei.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Fyrir utan breyttan gjaldmiðil, sem myndi
draga úr sveiflum í innlendum kostnaði
(þar sem við gerum upp í dollurum),
yrðu helstu áhrifin líklega auknir tollar
á innflutt súrál, sem er helsta hráefni
okkar og tollfrjálst á Íslandi en ekki í ESB.
Hugsanlega næðust þó samningar um að
fella niður tolla á það.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við
sig fólki á næstunni?
Já, fjárfestingarverkefnin sem
við höfum nú ráðist í skapa um
30 störf til frambúðar, en yfir
framkvæmdatímann kalla þau á
samtals 620 ný ársverk.
Ertu hlynnt því að
festa vísitöluna í öllum
lánasamningum og kippa
þannig verðtryggingunni úr
sambandi?
Þótt verðtrygging sé sér-
íslenskt fyrirbæri og orki mjög
tvímælis má heldur ekki gleyma
því að henni var komið á til
að fólk tapaði ekki á því að
spara. Ég er ekki sannfærð
um að óhætt væri að afnema
hana án þess að rústa þeim
sparnaði sem þó er til í landinu
(einkum í lífeyrissjóðum) en
það er sjálfsagt að taka það til
gaumgæfilegrar skoðunar, því
hún er mjög sársaukafull þeim
sem skulda og að mörgu leyti
ósanngjörn.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í
einn dag; hvert yrði þitt fyrsta
verk?
Að leita allra leiða til að koma
í veg fyrir að fólk sé hneppt í ævilangt
skuldafangelsi, til dæmis með þeirri leið
sem nefnd hefur verið, að húsnæðislán
sem fólk ræður ekki við verði felld niður,
kröfuhafinn eignist fasteignina upp í
skuldina, og lántakinn fái að leigja eignina.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… kappi fylgdi forsjá.
RANNVEIG RIST
forstjóri Rio Tinto
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto.
Á leið í fjárfestingar
fyrir um
57 milljarða króna
Fjár festingar verkefni
skapa ný störf