Frjáls verslun - 01.08.2010, Blaðsíða 46
46 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Ef stjórnvöld eru tilbúin til samstarfs
tel ég að bæði fjármálafyrirtæki og
hagsmunasamtök í atvinnulífinu vilji hraða
þessu ferli. Með skipulagningu og öguðum
vinnubrögðum ætti því að geta verið lokið
innan 12 mánaða.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Hrun fjármálakerfisins hefur valdið bæði
lagalegri óvissu og forsendubresti
sem speglast í efnahagsreikningi
margra fyrirtækja og það er
skiljanlega erfiðara fyrir fyrirtæki
sem eru með óvissu í sínum
efnahagsreikningi að fá fyrirgreiðslu.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því
að gjaldeyrishöftin trufli starfsemi
þess?
Nei, en vissulega óbeint.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Fyrirtæki innan minnar samstæðu eru
í harðri samkeppni við íslenska ríkið,
sem beitir markvisst undirverðlagningu á
auglýsingamarkaði, og svo erum við einnig
að keppa við fyrirtæki sem hafa skipt
um kennitölu eða fengið stórum hluta af
skuldum sínum breytt í hlutafé.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Með aðild að EES eru innleiddar tilskipanir
um sjónvarp og útvarp, aðild hefur því ekki
bein áhrif á starfsumhverfið. Ein helsta
ógnin við sjónvarpsrekstur á Íslandi, fyrir
utan umsvif ríkisins á auglýsingamarkaði,
er áhættan af óstöðugum gjaldmiðli.
Þar sem okkar innkaup eru að mestu í
dollurum er upptaka evru ekki trygging
fyrir meiri stöðugleika.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Nei.
Ertu hlynnt því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Verðtrygging kemur til móts við
fjármagnseigendur vegna viðvarandi
vandamála í efnahagsmálum landsins.
Fjármagnseigendur vilja ávaxta fé sitt, ef
þeir geta það ekki hérlendis þá gera þeir
það erlendis. Ég vil gera verðtrygginguna
óþarfa með betri efnahagsstjórn. Það á að
vera óviðunandi að Ísland sé annars
flokks land.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn
dag; hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ég myndi tryggja að hæfasta fólk
landsins væri við stjórnvölinn með
mér.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja
gætu einbeitt sér að því að skapa
meiri verðmæti. Til þess þarf skýrar
leikreglur, nýtt jafnvægi eftir hrunið og sátt
við stjórnvöld.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri Skjásins.
Í harðri samkeppni
við ríkið sem
beitir markvisst
undirverðlagningu
SIGRÍÐUR MARGRÉT
ODDSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Skjásins
Í harðri
samkeppni
við íslenska ríkið