Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Hvenær telur þú að fjárhags
legri endur skipu lagn ingu
fyrirtækja ljúki og þau geti
byrjað að fjárfesta aftur?
Gera má ráð fyrir að
endurskipulagning flestra
fyrirtækja verði að baki í lok árs
2011, þannig að viðskiptalífið
gæti farið að þokast aftur í
eðlilegra horf á árinu 2012.
Finnur þú á meðal viðskipta
vina þinna að þeir fái ekki
nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Ýmsir viðskiptavinir eru
augljóslega í þannig stöðu, en
erfitt að meta hve margir þeir
eru.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir
því að gjaldeyrishöftin trufli
starfsemi þess?
Gjaldeyrishöftin hafa valdið
verulegri röskun á okkar
starfsemi, einkum vegna
vöruinnflutnings okkar. Menn
læra hins vegar að lifa með
höftunum og laga starfsemina að þeim,
með tilheyrandi tilkostnaði.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Allir helstu keppinautar Nýherja og
dótturfélaga eru nú í eigu kröfuhafa,
banka eða tengdra aðila með einni
undantekningu. Sú staðreynd hefur
raskað verulega samkeppnisstöðu okkar á
markaðnum.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Í fyrstu má gera ráð fyrir að það
einfaldaði starfsemi Nýherja og
dótturfélaga okkar erlendis og
samkeppnismöguleika þar.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta
við sig fólki á næstunni?
Gerum ráð fyrir að verkefni
vaxi þegar fer að líða á árið
2011 og samhliða því skapist
aftur grundvöllur til fjölgunar
starfsmanna.
Ertu hlynntur því að
festa vísitöluna í öllum
lánasamningum og kippa
þannig verðtryggingunni úr
sambandi?
Tel að ekki hafi verið færð
fram trúverðug rök fyrir slíkri
breytingu á fjármálamarkaði
okkar, en hins vegar er
mikilvægt að fundin verði leið
til að lánasamningar hér verði
með svipuðum hætti og í
öðrum Evrópulöndum.
Ef þú yrðir forsætisráðherra
í einn dag; hvert yrði þitt
fyrsta verk?
Leggja til að skipuð yrði samdægurs
utanþingsstjórn sem starfaði fram að
næstu kosningum.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… bankarnir og tengdir aðilar létu af þeirri
samkeppni sem þeir hafa staðið fyrir við
fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum.
Allir helstu keppinautar
Nýherja eru nú í eigu kröfu
hafa, banka eða tengdra
aðila
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja.
ÞÓRÐUR SVERRISSON
forstjóri Nýherja
Gjaldeyris höftin hafa valdið
verulegri röskun