Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Nú eru rúm tvö ár liðin frá falli bankanna
– og enn er mjög langt í land, það mun
því taka væntanlega eitt til tvö ár í viðbót,
sem er alltof langur tími. Ég er hræddur
um að skuldsetning eftir fjárhagslega
endurskipulagningu verði of mikil á
fyrirtæki og það verði ekki nægjanlegt
rými til fjárfestinga næstu árin.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Já, staðan er mjög snúin hjá mjög
mörgum fyrirtækjum.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Nei – fyrstu dagar og vikur eftir fall
bankanna voru snúnir, en þetta hefur
„rúllað“ í raun vel frá áramótum
2008/2009.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfu
hafa?
Já.
Hvaða áhrif hefði það á
starfsemi fyrirtækis þíns ef
Íslendingar gerðust aðilar að
Evrópusambandinu?
Myntin myndi breyta miklu – en
það þarf samt sem áður fyrst
og síðast að ná betri árangri í
hagstjórninni sjálfri.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Við gerum ráð fyrir að umsvif í efnahagslífi
á næsta ári verði á sömu rólegu nótunum
og á þessu ári – það verður eitthvað um
nýráðningar, en í litlum mæli þó.
Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Til að ná árangri til lengri tíma er
lykilatriðið að ná mun betri stýringu á
hagstjórninni, það er mjög langt í land og
á meðan svo er er það ekki endilega lausn
að aftengja verðtrygginguna.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Ef ég fengi að vera aðeins lengur en einn
dag myndi ég stuðla að því að Ísland
hf. yrði rekið á sama grunni og önnur
vel rekin fyrirtæki, þ.e. samfélagið væri
með skýra framtíðarsýn, samhentan
hóp stjórnenda og starfsfólks, góða og
hvetjandi samsetningu á tekjuhliðinni og
horfa vel í kostnaðinn og reka
fyrirtækið af dugnaði og koma
í veg fyrir öfgafullar sveiflur í
okkar litla hagkerfi – mér finnst
vanta mjög mikið upp á hjá
ríkisstjórninni.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… farið væri af krafti í að
leysa brýnustu hagsmunamál
þjóðarinnar, sem eru að „afskulda“
alltof skuldug fyrirtæki og einstaklinga,
fá inn erlenda fjárfestingu og draga úr
at vinnuleysi með arðbærum fjárfest -
ingum.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.
Óttast að skuldsetning
fyrirtækja eftir fjárhags
lega endurskipu
lagningu verði of mikil
ÁSBJÖRN GÍSLASON
forstjóri Samskipa
Lykilatriði að ná betri stýringu
á hagstjórninni