Frjáls verslun - 01.08.2010, Page 63
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0 63
Hvenær telur þú að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja ljúki og
þau geti byrjað að fjárfesta aftur?
Við búum við offjárfestingu á flestum
sviðum atvinnulífsins og ljóst að fjárhagsleg
endurskipulagning ein sér mun ekki stuðla
að nýjum fjárfestingum við þær aðstæður.
Mestu máli skiptir að skapa hér traust
rekstrarumhverfi og auka tiltrú á markaði.
Það mun laða að fjárfesta, erlenda sem
innlenda, og skapa svigrúm til vaxtar.
Finnur þú á meðal viðskiptavina þinna
að þeir fái ekki nægilega fyrirgreiðslu í
bönkum?
Mér hefur frekar fundist sem gagnrýnin
hafi beinst að seinagangi við úrlausn mála
hjá föllnu bönkunum eða jafnvel að fólk fái
ekki svör. Eðli máls samkvæmt eru miklar
takmarkanir á fyrirgreiðslu við þessar
aðstæður, fólk skilur það, en svo virðist
sem miklar tafir á lúkningu mála fari helst
fyrir brjóstið á viðskiptavinum.
Finnur fyrirtæki þitt beint fyrir því að
gjaldeyrishöftin trufli starfsemi þess?
Svo sannarlega, enda tel ég að nánast
allir þeir sem stunda hér viðskipti álíti
þau skaðleg. Þá hefur Seðlabankinn
verið afdráttarlaus varðandi afstöðuna til
haftanna og boðað afléttingu þeirra eins
fljótt og auðið er.
Er fyrirtæki þitt í samkeppni við
fyrirtæki í eigu banka eða kröfuhafa?
Já.
Hvaða áhrif hefði það á starfsemi
fyrirtækis þíns ef Íslendingar gerðust
aðilar að Evrópusambandinu?
Færi að einhverju leyti eftir því hvernig
staðið yrði að þeirri inngöngu. Innganga
hefði væntanlega minni áhrif hér en hjá
flestum þeim þjóðum sem gengið hafa
þar inn á síðustu árum þar sem okkar
regluverk byggist á EES-samningnum.
Upptaka evru hefði djúpstæðari áhrif á
reksturinn.
Hyggst fyrirtæki þitt bæta við sig fólki á
næstunni?
Við höfum verið í örri uppbyggingu á
síðustu misserum og bætt við fjölda
starfsmanna en ég á ekki von á að við
fjölgum þeim mikið úr þessu enda byggist
viðskiptamódel bankans á einföldum
lausnum og lágum kostnaði.
Ertu hlynntur því að festa vísitöluna í
öllum lánasamningum og kippa þannig
verðtryggingunni úr sambandi?
Ég sé ekki í fljótu bragði hvað það kæmi
til með að leysa. Vaxtakjör munu eftir
sem áður taka mið af undirliggjandi
verðbólgu og þessi ákvörðun myndi fyrst
og fremst skaða lántakendur þegar upp
er staðið. Aftur á móti mætti endurskoða
vísitölugrunninn og formið.
Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag;
hvert yrði þitt fyrsta verk?
Draga úr skattlagningu fyrirtækja, afnema
gjaldeyrishöft sem vissulega myndi
valda tímabundnum skelli og opna
hagkerfið fyrir erlendri fjárfestingu. Því
miður er niðurskurður óhjákvæmilegur á
öllum sviðum efnahagslífsins og skattar
einstaklinga verða að vera tímabundið háir,
sérstaklega hjá þeim tekju- og efnameiri.
Við því er ekkert að gera við þessar
aðstæður, en því fastar sem við tökum á
málum, því fyrr losnum við út úr þessum
þrengingum og getum farið að létta
byrðarnar.
Viðskiptalífið yrði betra ef …
… við horfðumst í augu við stöðuna
sem við erum í. Tækjum ákvarðanir og
hvikuðum hvergi frá þeim. Hættum að
kaupa okkur frest. Við ráðum auðveldlega
við verkefnið ef við tökum á því. Það er
bjart framundan sagði Alli ríki jafnan þegar
myrkrið grúfði yfir rekstrinum – það er
mikið til í því.
Eðli máls
samkvæmt
eru miklar
takmarkanir á
fyrirgreiðslu
banka við þessar
aðstæður
Gunnar Karl Guðmundsson,
forstjóri MP banka.
GUNNAR KARL GUÐMUNDSSON
forstjóri MP banka
Gjaldeyris höftin skaðleg