Frjáls verslun - 01.08.2010, Side 148
148 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . - 9 . T B L . 2 0 1 0
TEXTI: HILMAR KARLSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Fólk
ANNA AÐALSTEINSDÓTTIR
þýðingaráðgjafi hjá Skjali þýðingastofu
Nafn: Anna Aðalsteinsdóttir
Fæðingarstaður: Akureyri, 11.
mars 1951
Foreldrar: Aðalsteinn Hjaltason
og Kristbjörg Björnsdóttir
Maki: Hilmar Hansson
Menntun: Næringarfræði við
TAFE í Sydney ásamt sölu- og
markaðsfræði við APM í Sydney
Anna Aðalsteinsdóttir.
„Ég á stóran og öflugan
vinahóp sem ég hitti
reglulega og eru
gönguferðir stundaðar
af kappi hér og þar á
höfuðborgarsvæðinu.“
S
kjal þýðingastofa, sem fagnar 10
ára afmæli á þessu ári, býður
upp á alhliða þjónustu er lýtur
að þýðingum, prófarkalestri og
textagerð. Skjal fylgir Evrópustaðli um
þýðingar og hefur innan sinna raða 10
þrautþjálfaða þýðendur í fullu starfi auk
verktaka um allan heim sem fylgja sömu
gæðakröfum og starfsmenn fyrirtækisins.
„Markmið Skjals er að veita sambærilega
og helst betri þjónustu en leiðandi þýð-
ingastofur á alþjóðavísu og virðumst við
vera að ná árangri hvað það varðar því að
á síðustu árum hafa alþjóðleg fyrirtæki
með starfsstöðvar á Íslandi verið að flytja
verkefni til Skjals sem áður voru unnin
af erlendum þýðingastofum. Þannig hafa
þau náð fram hagræðingu og njóta betri
þjónustu en áður. Auk þýðinga býður Skjal
textaskrif af öllu tagi, jafnt á íslensku og
ensku. Meðal ört vaxandi verkefna okkar
eru veftextaskrif fyrir fyrirtæki og stofnanir.“
Anna hóf störf sem þýðingaráðgjafi hjá
Skjali 22. júní 2009. „Mitt starf felst í
góðum samskiptum við okkar mörgu við-
skiptavini og að vera þeim til ráðgjafar um
þýðingar og textagerð, að efla við skipta-
tengsl og byggja upp ný. Starfið er fjölbreytt,
lifandi og hvetjandi. Ég virði viðskiptavini
mína mikils og ber hag þeirra fyrir brjósti,
það má segja að þegar ég fæ verk frá
mínum viðskiptavinum sé ég eins og unga-
mamma yfir þeim þangað til verkinu er
skilað.
Ég tel mig vera lífsglaða manneskju að
eðlisfari og reyni eftir megni að gera alla
daga góða, bæði í leik og starfi. Hef mjög
gaman af að lesa góðar bækur og fylgist vel
með jólabókaflóðinu. Ég á stóran og öflugan
vinahóp sem ég hitti reglulega og eru göngu -
ferðir stundaðar af kappi hér og þar á höfuð -
borgarsvæðinu. Mikill dýravinur er ég og hef
átt nokkrar kisur í gegnum tíðina, á eina
pattaralega 13 ára kisu í dag. Þegar ég tók
þátt í Reykjavíkurmaraþoni nú í sumar hljóp
ég að sjálfsögðu fyrir Kattavinafélagið.
Ég er alin upp í fallegasta bæ landsins,
Akureyri. Eftir hefðbundið nám lá leið
mín til Englands þar sem ég var að vinna
við garðyrkjustörf sumarlangt og einnig
nokkra mánuði í London þar sem ég var
að pakka grænmeti í Covent Garden.
Rétt eftir heimkomuna til Íslands kynntist
ég manninum mínum, Hilmari Hanssyni.
Hilmar var að setja upp tölvukerfi hjá SÍS á
Akureyri, en þar var ég nýfarin að vinna sem
skrifstofudama.
Við Hilmar höfum búið erlendis til fjölda
ára. Fyrst í Kaupmannahöfn og síðan
lágu leiðir alla leið til Sydney í Ástralíu. Í
Kaupmannahöfn og Sydney vann ég hjá
Computer Associates Int. í markaðsdeild
við að sjá um ráðstefnur, stórar sem smáar.
Starfið var mjög fjölbreytt og hafði ég
tækifæri til að ferðast töluvert. Það hefur
verið stórkostleg upplifun að eiga þessi
ár erlendis og höfum við ferðast mikið um
allan heim.
Heim til Íslands fluttum við eftir 13 ára
búsetu erlendis í maí 1997. Frá því að við
komum heim höfum við eytt sumarfríum
talsvert hér heima og ferðast um landið. Við
fórum í fyrsta sinn í heimsókn á Vestfirðina
fyrir nokkrum árum og varð ég algjörlega
heilluð af stórbrotinni nát túrunni. Leiðin
hefur líka legið talsvert til útlanda og
vinahópurinn hefur farið saman til Kúbu og
Ítalíu. Ítalía heillaði mig og eftir heimkomuna
dreif ég mig á ítölskunámskeið. Nú á
haustdögum er saumaklúbburinn minn farinn
að hittast aftur en við erum Akureyrardömur
sem eru búnar að halda sambandi til fjölda
ára. Hópurinn er hress og skemmtilegur
og mjög hávaðasamur. Leikhúsferðir
stundum við Hilmar og einnig finnst okkur
verul ega gaman að halda matarboð fyrir
fjölskyldu og vini öðru hvoru. Ég tel það
vera mjög mikilvægt að rækta fjölskyldu- og
vinasamböndin. Ég er mikil félagsvera og hef
virkilega gaman af því að vera til og vil lifa
lífinu lifandi. Við þurfum að fara út á hverjum
degi því kraftaverk bíða alls staðar.“