Frjáls verslun - 01.02.2008, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 8
K
yn
n
in
G
K
yn
n
in
G
Ásbjörn Björnsson, stjórnarformaður Ernst & Young á Íslandi.
Hjá okkur starfar frábært starfsfólk,
sambland af ungum og kraftmiklum
einstaklingum og eldri
reynsluboltum.
Víðtæk og fagleg þjónusta á sviði endurskoðunar og ráðgjafar
Ernst & Young er alþjóðlegt fyrirtæki sem veitir víðtæka og faglega þjónustu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar. Viðskiptavinir Ernst & Young eru í öllum greinum atvinnu -lífsins og er hlutverk Ernst & Young að hjálpa þeim að ná markmiðum sínum í krafti kunnáttu, árvekni og vand -
virkni. Ásbjörn Björnsson, endurskoðandi, er stjórnarformaður Ernst
& Young á Íslandi:
„Í stórum dráttum má segja að þjónusta okkar í dag sé á fjórum
sviðum og er endurskoðunar- og reikningsskilasvið stærst en þar sinnum
við endurskoðun og annarri staðfestingarvinnu fyrir viðskiptavini okkar
auk þess að aðstoða stjórnendur fyrirtækja við framsetningu reiknings -
skila. Á skattasviði erum við, auk almennrar skattframtalsþjónustu,
að veita ráðgjöf um réttindi og skyldur erlendra aðila hér á landi, og
skattlagningu Íslendinga erlendis, en í þeirri vinnu njótum við góðs af
styrkleika Ernst & Young sem alþjóðlegs fyrirtækis með starfsemi í um
140 löndum. Við veitum þjónustu á ráðgjafarsviði okkar varðandi verð-
mat fyrirtækja, sameiningar og slit félaga, áreiðanleikakannanir og
áætlanagerð svo eitthvað sé nefnt. Þá erum við með mjög öfluga bók-
haldsdeild þar sem við sinnum smærri fyrirtækjum og einstaklingum
í bókhaldi, launaútreikningum, virðisaukaskattsuppgjörum og fleiru.
Fyrirtækið hefur verið í stöðugum vexti hér á landi frá stofnun þess
árið 2002. Starfsemin hófst í Ármúla 6 með rúmlega 20 starfsmönnum
Í ársbyrjun 2006 var starfsemi félagsins flutt að Borgartúni 30 og í dag
eru starfsmenn að nálgast 40. Við erum vel staðsettir í Borgartúninu
og með alla okkar starfsemi á einni hæð sem er mikill kostur. Í störfum
okkar leggjum við áherslu á trúnað við viðskiptavini, persónulega
þjónustu og gott aðgengi að sérfræðingum félagsins. Hjá okkur starfar
frábært starfsfólk, sambland af ungum og kraftmiklum einstaklingum og
eldri reynsluboltum. Í heild mjög góður og samheldinn hópur sem
hjálpar viðskiptavinum okkar að ná markmiðum sínum.“
Umhverfi endurskoðandans hér á landi er ofarlega í huga Ásbjörns:
„Eitt vandamál sem við glímum við er að vernda okkar lögverndaða
starfsheiti. Endurskoðandi á að baki langt og strangt nám og þeir
einir hafa rétt til að nota starfsheitið endurskoðandi sem hlotið hafa
löggildingu til endurskoðunarstarfa. Því miður gerir almenningur oft
ekki greinarmun á endurskoðendum og öðrum sem sinna svipaðri þjón-
ustu og það er brýnt að endurskoðendur og samtök þeirra standi vörð
um fagið, bæði með fræðslu og ástundun faglegra vinnubragða.“
Ernst & Young
www.ey.is
Hugaðu að
eigin hagvexti
Ernst & Young hefur það að markmiði að fólk
nýti hæfileika sína til að vaxa og dafna í ögrandi
starfsumhverfi.
Traust fólk sem sýnir áreiðanleika, ábyrgð
og frumkvæði í starfi.
Hjá Ernst & Young byggjum við samskipti
okkar á heiðarleika og það er takmark okkar
að viðskiptavinurinn nái markmiðum sínum.
Þannig tryggjum við þinn hag.