Franskir dagar - 01.07.2012, Blaðsíða 8
Norðurljósamyndir vekja athygli
Mikil spenna var meðal áhugamanna um norður-
ljósamyndatökur þann 8. mars 2012. Oflugasta
sólgos til margra ára hafði orðið að veruleika deg-
inum áður. Miklar líkur voru á fallegum norður-
ljósum í kjölfarið. Ljósmyndarar víða um heim
svo og áhugafólk um norðurljós báru saman
bækur sínar um hvar helst væru möguleikar á að
ná myndum. Meðal annars komu um 800 manns
til Islands gagngert í þeirri von að sjá norður-
• 8
ljósin skarta sínu fegursta. Skýjahula var víða um
land en bjart var þó yfir Austurlandi. Lítil virkni
var í byrjun kvölds en það var síðan kl. 22:30 að
virknin jókst skyndilega og falleg norðurljósa-
kóróna myndaðist yfir Digratindi og geislaði
síðan í allar áttir. Jónína Guðrún Óskarsdóttir
var tilbúin með myndavélina og náði þessari
mynd sem vakti heimsathygli og hefur verið birt
víða í blöðum, tímaritum og vefmiðlum. Nefna
má að NASA, bandaríska geimferðastofnunin,
óskaði sérstaklega eftir að fá myndina og birti
hana á vefsíðu sinni. Einnig mátti sjá myndina
t.d. hjá Spiegel, Bild, Discovery News, space-
weather.com, norska dagblaðinu og alþjóðlega
fréttaveitan Associated Press dreifði myndinni
mjög víða. BBC hafði einnig samband vegna
norðurljósamyndanna.