Franskir dagar - 01.07.2012, Síða 12
Franskir dagar - Les JOURS FRAN9AIS
Oddný A. Jónsdóttir
Vertu ávallt vina mín
vör ipínum orðum.
Sjáðu ávallt sómapinn
með sanngirni á borðum.
Lifiu heil við svanasöng
sól og langa daga.
Ævin gangi Ijúf og löng
líkt og ástarsaga.
Lfiu heil um lífsins tíð
Ijúfa vinan bjarta.
Ollpín verði œvin blíð
óska e'g af hjarta.
Að setja saman stökur var nánast
þjóðaríþrótt áður fyrr. Börn ólust
upp við bundið mál. Vísur, þulur og
lcvæði voru gjarnan það fyrsta sem
þau lærðu.
Þannig var það með móður mína, Oddnýju á
Sunnuhvoli, eins og hún var oftast nefnd.
Þess var farið á leit við mig að ég gerði nokkra
grein fyrir lífshlaupi hennar og hvernig hið
bundna mál fylgdi henni frá fyrstu tíð og allt til
enda. Stökurnar hér á undan eru meðal margra
sem söfnuðust upp í gamla möppu. Þær eru
flestar skrifaðar á notuð umslög, servíettur eða
aðra pappírssnepla. Ymist eru þetta vísur eftir
hana sjálfa eða þær sem hún hafði eftir öðrum.
Innan um eru líka sendibréf þar sem kveðist er
á við einhvern hagyrðing. Eg settist niður með
systldnum mínum dagpart og við rifjuðum upp
nokkur minningabrot:
Oddný Aðalbjörgjónsdóttir hét hún fúllu nafni
og var fædd á Þorvaldsstöðum í Breiðdal þann 18.
mars 1923. Foreldrar hennar voru hjónin Guðný
Jónasdóttir frá Hóli í Breiðdal og Jón Björgólfs-
son, fæddur í Snæhvammi Breiðdal. Oddný var
miðbarn í hópi þrettán systkina. Vegna veikinda
móður sinnar var hún send í fóstur og átti það
að vera tímabundið, en hún ólst upp hjá Kristínu
Helgu Þórarinsdóttur og bróður hennar Birni
Þórarinssyni á Dísastöðum í Breiðdal frá fimm
ára aldri fram að fermingu. Þá fór hún aftur að
Þorvaldsstöðum og var þar til tvítugs. Síðan lá
leiðin á Fáskrúðsfjörð til að vinna við fatasaum
hjá Kaupfélaginu ásamt systur sinni, Kristínu
Björgu. Fljótlega eftir komuna bast hún Þor-
valdi Jónssyni.
Hann var fæddur á Tanga Fáskrúðsfirði þann
18. ágúst 1908 og lést á gamlársdag árið 1995.
Móðir hans var Jóhanna Hólmfríður Kristjáns-
dóttir og faðir Jón Davíðsson, verslunarmaður
á Tanga til ársins 1933 að Kaupfélagið keypti
eignirnar. Fjölskyldan flutti þá á Sunnuhvol.
Þorvaldur starfaði lengst af sem afgreiðslumaður
Eimskipafélags íslands og Skipaútgerðar ríkisins.
Þau Oddný og Þorvaldur giftu sig í stofúnni á
gamla- Sunnuhvoli á vordögum 1943. Við það
húsheiti hefúr fjölskyldan jafnan verið kennd,
þó að flutt væri í nýtt hús neðar í túninu bar
það sama heiti. Börn þeirra eru: Jóhanna Ásdís,
Guðný Björg, Jóna Kristín og Kristján.
Oddný taldi sig ekki til skálda og tók það alltaf
skýrt fram, sagði hins vegar um systur sínar að
þær væru skáldmæltar eins og foreldrarnir, Jón
og Guðný á Þorvaldsstöðum. En eftir
þau öll hafa birst ljóð á prenti og ljóða-
bækur eftir systurnar Helgu Björgu
og Þóreyju.
Vísur Oddnýjar bera þó með sér að
hún hafi sjálf verið ágætlega hagmælt.
Hið knappa form ferskeytlunnar hent-
aði henni vel, ekkert málæði, heldur
tjáning í fáum orðum með fúllri
meiningu. Þannig ferskeytla getur
líka verið góð vísa. Bréfin sem hún
skrifaði til uppkominna barna sinna
voru stundum í bundnu máli. Kvað
þá jafnan við mildan tón og hlýjan,
en orðhvöss gat hún verið og skoð-
anarík. Hún skrifaðist á við Brynhildi
H. Jóhannsdóttur, eiginkonu Alberts
Guðmundssonar, hins kunna stjórn-
málamanns, í vísnaformi. Margar
skemmtilegar vísur eru að finna í
bréfúm þeirra á milli og gjarnan um
póh'tíkina sem gat verið skrautleg þá ekki síður
en nú. Oddnýstuddi Sjálfstæðisflokkinn. En hún
var stuðningskona Alberts Guðmundssonar og
fylgdi honum að málum með Borgaraflokkinn,
flokk litla mannsins, þegar hann klauf Sjálfstæðis-
flokkinn í alþingiskosningunum 1987 og tók af
honum mikið fylgi. Um kosningabaráttuna er
ort í einu bréfanna:
Hvaða flokkar fara í stjórn
flestirprá að vita.
Þá mun einhverfiera fórn
sem jysir par að sitja.
Enginn vafi er ápví
ýmsa munpað gruna
að stærstiflokkur stefnir í
stjómarforustuna.
Erpið gangið upp á svið
öllpá saman standi.
Góðum málum leggið lið
svo leysist allur vandi.
Látið ekki Gunnar, Geir
grípa afykkur völdin.
Eitthvað sjóða erupeir
oft á bak við tjöldin.
Afmæliskveðjur voru oft í bundnu máli, þá
stundum heilræði, sem sýndu afstöðu hennar til
h'fsins, eins og eftirfarandi staka:
Þú skalt lifa og leika pér
lífsins reyndu að njóta best,
pvístuttur timi ævin er
og ‘enni lýkurfyrir rest.
Barnabörnin fengu marga kveðjuna í vísuformi.
Eitt þeirra, Berta Dröfn Ómarsdóttir, tekur þátt
í tónleikum á Frönskum dögum ásamt Bergþóri
Pálssyni og Garðari Thór Cortes. Af því tilefni
hefúr hún samið lag við ljóð ömmu sinnar sem
frumflutt verður á tónleikunum. Til þessarar
ömmustelpu sinnar orti Oddný einhverju sinni:
Fjölskyldan á Sunnubvoli: Fyrir aftan standa peer systur Guðný ogjóbanna, og
pau Jitlu systkininuKristján ogjóna Kristín ífangiforeldranna.
.12