Franskir dagar - 01.07.2012, Page 23
FrANSKIR DAGAR - LeS JOURS FRAN£AIS
Himnesk súkkulaðikaka. Uppskriftin var á baklingi sem kom með simareikningi til Eyrúnar. Dúkurinn
er keyptur á sigaunamarkaði á Spáni.
HIMNESK SÚKKULAÐIKAKA
Vi bolli sterkt kaffi
200 g púðursykur
200 g sykur
350 g smjör
300 g suðusúkkulaði
100 g ljóst rjómasúkkulaði
5 stór egg
Setjið kaffi og sykur í pott og látið suðuna koma upp og hrærið í á meðan.
Takið af hellunni og bætið smjöri og súkkulaðibitum út í. Blandan má
ekki sjóða eftir að súkkulaðið og smjörið er komið út í. Hrærið vel saman.
Hrærið eggin saman og setjið út í blönduna og hrærið vel. Setjið í 26 cm
springform sem er vel smurt. Klæðið formið að utan með álpappír til að
koma í veg fyrir að deigið leki í ofninn. Bakið við 180°C í 60 mínútur.
Kakan er góð með jarðarberjum og þeyttum ijóma.
DJÚPSTEIKTIR BANANAR
4 bananar
3 egg - slegin í sundur
2 dl ljóst brauðrasp (Ströbröd frá X-tra)
2 dl fínt kókosmjöl
olía til steikingar
Veltið 4 banönum upp úr 3 eggjum.
Blandið saman raspi og kókos og veltið banönum upp úr þessu.
Steikið í oh'u, (notaði isio 4 í teflon potti).
Berið fram nýsteikt með rjómaís.
Bananaréttur, sem Tania larði að útbúa af talenskri konu. í Talandi eru ekki beinlínis eftirréttir, en
ávextir gjaman notaðir sem eftirréttir.
Kínóa eftirréttur er úr bókinni Hollir réttirfyrir allafjölskylduna eftir Berglindi Sigmarsdóttur
PERU- OG EPLABAKSTUR
MEÐ KÍNÓA OG PEKANHNETUM - FYRIR 4
1 pera skræld og skorin í teninga
2 epli skræld og skorin í teninga
3 msk. hfrænt hlynsíróp (má líka nota dökkt agavesíróp
en það þarf aðeins minna af því)
Aðferð:
Setjið peru og epli í formið og hellið sírópi yfir.
Setjið álpappír yfir formið og setjið í miðjan ofninn
á 180° C í 20 mínútur.
Á meðan þetta bakast er best að búa til mulninginn sem fer ofan á.
MULNINGUR
100 g fínt spelt
70 g hrásykur
100 g kalt íslenskt smjör, skorið í teninga
70 g kínóakorn
80 g haframjöl
100 g pekanhnetur
Blandið saman spelti, hrásykri, kínóa og haframjöli í skál.
Setjið smjörteninga saman við og kreistið þetta saman í höndunum.
Þegar eplin og perurnar hafa verið í ofninum í 20 mínútur takið þá
út og dreifið deigmulningnum yfir.
Raðið pekanhnetum ofan á.
Setið inn í miðjan ofninn og bakið í 180° C í 20-25 mínútur. Fylgist
með og takið út þegar mulningurinn er orðinn gullinn og passið að
pekanhneturnar brenni ekki.
Berið fram með ís eða rjóma.
23.