Franskir dagar - 01.07.2012, Síða 28

Franskir dagar - 01.07.2012, Síða 28
Franskir dagar - Les JOURS FRAN9AIS að það væri nú ekki nema í góðan klukkutíma. Hann sagði farir sínar ekki sléttar, eftir þriggja tíma suðu væru þær enn grjótharðar. Konan fór með honum yfir og í Ijós kom að hann hafði keypt poppmaís í baunasúpuna. Hlátrasköllin aukast nú til muna og annarri sögu er bætt við: Ung stúlka og óreynd í matseldinni fór í næsta hús og spurði hversu mikið hún ætti að salta saltkjötið. Skúli rifjar upp að þegar verið var að draga fyrir nót í fjöruborðinu, sá hann skringilegan hlut og hljóp að honum. „Gunni Guðjóns sagði mér að láta hana vera en þetta var koníaksflaska. Ekki vissi ég um innihaldið og braut flöskuna. Þá hélt ég að Gunni mundi ganga frá mér, hann varð alveg brjálaður. Þá var ég fljótur að hlaupa í burtu á mínum stuttu fótum.” Skúli tóklítið þátt í skemmtunum en vann öllum stundum til að safna fyrir lyftingagræjunum sem hann keypti árið 1970. Lyftingagræjurnar kost- uðu 70 þúsund og komu með Heklunni. Skúli, sem var bíósjúkur, fór út af miðri sýningu til að taka á móti græjunum. „Margir krakkar hópuðust í kringum kassana og héldu að ég tæki þetta undir hendina. Það gerðist hins vegar ekki heldur fékk ég vörubíl til að skutla þeim í Laufás.” Draumur Sigurbjargar var að eignast ísskáp þegar hún byrjaði að búa 18 ára gömul á loftinu í Pét- ursborg. „Eftir fyrstu síldarvertíðina átti að kaupa ísskáp en þá vorum við að bygga húsið Artún og ekki var hægt að kaupa ísskáp. Næsta haust á eftir var þetta eins, peningarnir fóru í annað. Þriðju vertíðina pantaði ég mér fínan Atlas ísskáp að sunnan, sem dugði vel og lengi alveg þangað til við flúðum gosið í Heimaey árið 1973. Þá fór sjór í hann og svo ekki söguna meir,”segir Sigurbjörg. Skúli grípur þetta á lofti og segir frá því að hann hafi unnið einn dag á vertíð í Eyjum. „Þá hófst eldgosið og ég þurfti að fara í land og ég fékk daginn aldrei borgaðan,” segir hann hlæjandi. Og fleiri sögur bætast við: Karl Indriðason á Eyri var síldarmatsmaður, einhverju sinni eftir langa og erfiða lotu ætlar Bergur Hallgrímsson að skutla Kalla heim til sín. Sjá þeir þá hvar bát- urinn Dagfari kemur að bryggju. Bergur snarast út úr bílnum til að bjóða þá velkomna. Nokkru síðar stígur hann upp í bílinn og brunar út að Eyri. Ut við Sævarborg mætir hann Nilla (Níels Sigurjónssyni) sem var verkstjóri á planinu. Þeir stoppa og taka tal saman. Þá var Nilli að koma frá því að skutla Kalla heim en Bergur tók ekki eftir því að hann vantaði í bílinn. SVO HVARF SILDIN Þessi síldarár og stemningin sem þeim fylgdi koma aldrei aftur. Fjörðurinn sofnaði þegar síldin hvarf og vaknaði ekki aftur fyrr en göngin og álverið komu. Þau eru öll sammála að þau færu aftur í síld ef hún kæmi núna. „Það rennur eitt- hvað æði á alla og við tækjum þátt í því.” Frá vinstri: Haukur Vilhjálmsson, baksvipur á Agli Guð/augssyni, skoðunarmaður á st/d, Skú/i Óskarsson og Guðmundur Hjaltason. Einar ríki Sigurðsson útgerðarmaður i Vestmannaeyjum hringdi í Oddnýju á Sunnuhvoli og bað hana að taka mynd af Gullborginni pegar hún kom inn til Fáskrúðsjjarðar með fullfermi. Mynd: Oddný A. Jónsdóttir. • 28 Hilmisplanið og Pólarstld.

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.