Frjáls verslun - 01.08.2005, Page 14
FRÉTTIR
14 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
O
verTheEdge er danskt fyrir-
tæki með íslensku ívafi.
Það er í eigu þriggja ungra
manna, Íslendingsins Davíðs
Helgasonar og Dananna Nicolas
Francis og Joachim Ante. Fyrir-
tækið hefur vakið athygli að
undanförnu fyrir tölvuforritið
Unity sem er forrit til að búa til
tölvuleiki. Kostir þess eru að
það er mjög kröftugt fyrir fagfólk
en líka sáraeinfalt fyrir þá sem
eru skemmra á veg komnir. Það
virkar bæði í Windows og Mac-
umhverfi.
Eins og margar aðrar tölvu-
afurðir varð Unity til fyrir hálf-
gerða tilviljun. Fyrir tæpum
þremur árum voru strákarnir þrír
að þreifa sig áfram með að gera
tölvuleik og leikjahönnunarfor-
rit, sem þeir slógu saman til að
spara tíma.
Leikurinn, GooBall, var gefinn
út í vor af Ambrosia, gamalgrónu
leikja- og forritadreifingarfyrir-
tæki. Leikurinn er fyrir Apple-
tölvur og hefur fengið mikið hrós
í tölvublöðum og tölvuslóðum
fyrir glæsilega og óvenjulega
grafík og tónlist.
Í fyrra þegar leikurinn var tilbú-
inn réðust þremenningarnir í það
ásamt nokkrum starfsmönnum
að fullvinna leikjahönnunarforritið.
Unity var hannað fyrir Apple-
tölvur, sem eru yfirgnæfandi
notaðar af hönnuðum í ýmsum
geirum. Margvísleg þrívíddartól
eru til fyrir Apple en ekkert fyrir
leikjagerð. Þess vegna fengu
nokkrir yfirmenn hjá Apple auga-
stað á Unity.
Árlega heldur Apple stóra
ráðstefnu, Apple World Wide
Developers Conference, í San
Francisco. Á ráðstefnunni í júní
fór einn yfirmanna Apple upp á
sviðið eftir ávarp Steve Jobs og
kynnti fjögur þúsund ráðstefnu-
gestum Unity sem kom út þann
dag. Apple hefur haldið áfram að
kynna Unity.
Í ágúst sl. kom útgáfa Unity
fyrir Windows og þar með opn-
ast mun stærri markaður. Það
hefur einnig sýnt sig að Unity
hentar ekki aðeins í tölvuleiki
heldur einnig í hvers kyns þrívídd-
arhönnun, nýtist því vel á auglýs-
ingastofum, arkitektastofum og
annars staðar þar sem þarf að
gera þrívíðar hreyfanlegar skjá-
myndir.
Þó fyrirtækið sé í Kaup-
mannahöfn eru viðskiptavinirnir
annars staðar: helmingurinn af
sölu OverTheEdge er til annarra
Evrópulanda, hinn helmingurinn
til Bandaríkjanna. Ýmsir hönnun-
arskólar hafa keypt Unity til að
nota í kennslu í leikjahönnun,
þar á meðal hinn þekkti Parson’s
School of Design í New York.
Næsta verkefni OverTheEdge
er að þróa tölvuleik um átök Ísra-
ela og Palestínumanna. Leikurinn
er unninn í samvinnu við Elect-
ronic Arts og Sameinuðu þjóð-
irnar. Frekari upplýsingar: www.
otee.dk eða david@otee.dk
Helgi, Nicolas og Joachim eru OverTheEdge
Fyrirtækið hefur framleitt töfraforritið Unity til að búa til
tölvuleiki og annað sem hreyfist á skjánum.
Á ráðstefnunni í júní fór
einn yfirmanna Apple
upp á sviðið á eftir
ávarpi Steve Jobs og
kynnti fjögur þúsund
ráðstefnugestum Unity
sem kom út þann dag.
Íslendingurinn Davíð Helga-
son lengst til hægri á mynd-
inni. Með honum eru Dan-
irnir Peter, Nicolas Francis
og Joachim Ante. Mynd:
Ólafur Rafnar Ólafsson.