Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 149
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5 149
Mikil reynsla ICEconsult hóf fyrir tíu árum að þróa heildarlausn í
stjórnun fasteigna og aðstöðustjórnun. Sú þróun hefur verið unnin
í frjóu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði hérlendis
og í Danmörku þar sem fyrirtækið rekur útibú. Niðurstaðan er öflug
og heilsteypt lausn fyrir umsýslu eigna og búnaðar og þjónustu við
þessi viðfangsefni, nefnt Stjóralausnir. Styrkleiki hugbúnaðarins felst
meðal annars í möguleikum á mismunandi sjónarhornum á sama
viðfangsefnið sem þýðir að ólíkir aðilar geta haft mikið hagræði af
notkun þess: „Markaðurinn hefur jafnt og þétt verið að aukast fyrir
slíkar heildarlausnir. Það eru komin sterk fasteignafélög með fjölda
eigna í sinni umsjón, sem við þjónum. Auk þeirra eru í viðskiptahópi
okkar opinberar stofnanir, sveitarfélög, fjármálastofnanir, trygginga-
félög, umboðs- og söluaðilar, heilbrigðisstofnanir, flutningsfyrirtæki,
þjónustuaðilar, verktakar, ráðgjafafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki,
olíufélög, orkufyrirtæki og veitufyrirtæki.“
Kerfi ICEconsult hérlendis og í Danmörku geymir gögn u.þ.b.
6000 mannvirkja, auk húskerfa, innbús, tölvuvélbúnaður og fleira
sem hundruð þjónustuaðila og eigenda sýsla með daglega. Segja
má að flestir stærri mannvirkjaeigendur hérlendis nýti sér lausnir
ICEconsult með einum eða öðrum hætti. Flestir hafa byrjað með
viðhaldslausnir en nú eru margir að taka upp fleiri verkferla eins og
gæðaferli, orkuvöktun, skjalastjórnun, mannaflastjórnun og gæða-
og öryggiseftirlit. Einnig eru tölvudeildir nokkurra af stærstu fyrir-
tækjum landsins farnar að nýta sér Stjóralausnirnar við þjónustu
sína í sama kerfi og í samvinnu við þá aðila sem sjá um að þjóna
mannvirkjum þessara sömu fyrirtækja.
Útibú í Danmörku Nýlega gerði ICEconsult samning við YIT (sem
yfirtók nýlega ABB Service), eitt stærsta þjónustufyrirtæki á Norð-
urlöndum: „Við sinnum nú þjónustu við mörg hundruð mannvirki
í Danmörku, þar á meðal þekkt fyrirtæki eins og Nykredit, Xeros,
IBM, ATP, Statens Museum, National Museet og Novo Nordisk. Þess
má geta að YIT fékk nýverið stóran samning í Danmörku eftir útboð.
Fyrirtækið var ekki með lægsta tilboðið en fékk samninginn á grund-
velli skipulagðra verkferla og gæðakerfis í Stjóralausnum.“
Mörkinni 6
Sími: 5642727
Netfang: info@iceconsult.is
Netsíða: www.iceconsult.is
Verkfræðingarnir Gunnlaugur B. Hjartarson, Guðmundur Ludvigsson og Björn H. Skúlason starfa hjá ICEconsult
og sjá um stjórnun og rekstur fyrirtækisins.
ICEconsult gerði nýverið samning
við YIT, eitt stærsta þjónustufyrir-
tæki á Norðurlöndum, og sinnir nú
þjónustu við mörg hundruð mann-
virki í Danmörku.