Frjáls verslun - 01.08.2005, Síða 160
160 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
300STÆRSTU SETIÐ FYRIR SVÖRUM
Þyrping hf, Kringlunni 4–12, 103 Reykjavík
594 4200
594 4201
thyrping@thyrping.is
www.thyrping.is
sími
fax
netfang
vefslóð
þróunarfélag property development
N
Skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 26 til leigu
hz
et
a
eh
f
Að Borgartúni 26 mun rísa sérhannað 12.000 m2
skrifstofu- og verslunarhúsnæði.
Bílageymslur verða undir húsinu og munu þær
rúma um 200 bíla.
Húsnæðið verður á átta hæðum á þessum
mikla útsýnisstað í hjarta helsta fjármálahverfis
Reykjavíkur. Það verður sérhannað út frá þörfum
leigutaka, með rúmgóðum skrifstofum
í háum gæðaflokki.
Húsnæðið afhendist tilbúið til innréttinga í byrjun
árs 2007.
norður
vestur
suður
austur
SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
VINNSLUSTÖÐVARINNAR
Hvað hefur komið þér mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Sú gegndarlausa bjartsýni sem hvarvetna verður vart í efnahagslífinu
kemur á óvart. Nánast allir þættir, aðrir en þeir sem snúa að sjávar-
útvegi, eru upp á við. Við slíkar aðstæður er alltaf hætta á yfirskoti í
hagkerfinu, að plúsarnir verði of stórir og mínusar of miklir.
Mun afkoma fyrirtækis þíns verða betri í ár en í fyrra?
Hún verður eitthvað lakari. Áætlanir okkar miðast við að framlegðin
verði einn milljarður og hagnaður um 400 milljónir. Ég býst við að
markmiðin náist og þá erum við í þokkalegum málum samanborið við
önnur fyrirtæki. Almennt er ég þó fjarri því sáttur með útkomuna.
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og mun
það ná settum markmiðum? Starfsemi Vinnslustöðvarinnar síðustu
misserin hefur einkennst af varnarbaráttu. Við höfum hagrætt á öllum
sviðum og þurfum alltaf að vera vakandi gagnvart því sem betur má
fara.
Telur þú að aðstæður í efnahagslífinu batni eða versni á árinu
2006? Ég er hræddur um að svolítill hasar, úfinn sjór, verði í hagkerf-
inu á næsta ári og þeir sem standa í pusi úti á dekki þjóðarskútunnar
þurfa að halda fast í lunninguna.
Telur þú að verð á íslenskum hlutabréfamarkaði haldi áfram að
hækka? Ég þori ekki að spá fyrir um þróun markaðarins. Minni þó
á að þrátt fyrir miklar fjárfestingar Íslendinga erlendis er lítill hluti af
veltu íslensks hlutabréfamarkaðar kominn erlendis frá. Það er veik-
leiki.
SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
FORSTJÓRI TÆKNIVALS
Hvað hefur komið þér mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Það er jákvætt hve margar konur hafa fengið stjórnunarstöður í fyrir-
tækjum á þessu ári. Ég vona að sú þróun haldi áfram.
Mun afkoma fyrirtækis þíns verða betri í ár en í fyrra?
Ef miðað er einungis við tekjur af rekstri verður afkoma Tæknivals
töluvert betri í ár en í fyrra.
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og mun
það ná settum markmiðum? Uppbyggingarstarf og tiltekt eru orð
sem lýsa rekstri þessa árs best. Við munum ná settu markmiði.
Telur þú að aðstæður í efnahagslífinu batni eða versni á árinu
2006? Verðbólga og of lítið atvinnuleysi sem og allt sem því fylgir mun
gera fyrirtækjum erfitt fyrir á komandi misserum.
Telur þú að verð á íslenskum hlutabréfamarkaði haldi áfram að
hækka? Ég tel að íslenski hlutabréfamarkaðurinn nái stöðugleika.
Það hefur sýnt sig að hann var ofmetinn.
Velta: 4,0 milljarðar
Hagn. f. skatta: 548 milljónir
Eigið fé: 2,3 milljarðar
Velta: 2,5 milljarðar
Hagn. f. skatta: 753 milljónir
STÆRSTA STÆRSTA
„Margar konur hafa fengið stjórnunarstöður
á þessu ári.“
-Sigrún Guðjónsdóttir, forstjóri Tæknivals.
9771
„Þeir sem standa í pusi úti á dekki þjóðar-
skútunnar þurfa að halda fast í lunninguna.“
- Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar.