Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 24
FRÉTTIR
24 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
Þ
að var býsna frumlegt þegar
Eimskip hélt haustfagnað
sinn á skemmtistaðnum
NASA eitt föstudagskvöldið
nýlega þar sem forstjóri félags-
ins, Baldur Guðnason, kynnti
nýtt skipurit félagsins. Segja
má að þarna hafi vinnu og
skemmtun verið blandað saman.
Nýja skipuritið gerir ráð fyrir að
tekjusvið félagsins verði þrjú;
millilandasvið, alþjóðasvið og
innanlandssvið. Þá hefur Eimskip
gert samstarfssamning við DHL
sem felur í sér aukna flutninga
fyrir Eimskip og aðgang að flutn-
ingsneti DHL.
Nýir yfirmenn einstakra sviða:
Guðmundur Nikulásson, fram-
kvæmdastjóri innanlandssviðs.
Ragnar Þór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri millilandasviðs.
Bragi Þór Marinósson, fram-
kvæmdastjóri alþjóðasviðs.
Hanna Katrín Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri stjórnunarsviðs.
Baldur kynnti skipuritið á NASA
Lea Þórarinsdóttir, Stefanía Erlingsdóttir og
Þórdís Ingvarsdóttir.
Baldur Guðnason, forstjóri
Eimskips.
Ólafur Páll Rafnsson,
Gunnar J. Gunnarsson
og Þröstur Freyr
Hafdísarson.
Hulda Guðmundsdóttir, Heiðrún Helgadóttir, Elín
Hjálmsdóttir og Drífa Sigurðardóttir.
Að bera fé: að afklæða kind.
Aflafé: kindur sem stunda
veiðiskap.
Áhættufé: fífldjarfar sauð-
kindur.
Eigið fé: kindur sem maður
á sjálfur.
Fégræðgi: að vera einstak-
lega sólgin í sauðaket.
Féhirðir: smali.
Félag: lag sem samið er um
sauðfé.
Félegur: eins og sauður.
Féleysi: þegar skorið hefur
verið niður vegna riðuveiki.
Fjárhagur: einhver sem er
afar laginn við sauðfé.
Fjárhirslur: geymslur fyrir
sauðfé.
Fjárlög: mörg lög sem samin
eru um suðfé.
Fjármagn: þegar margar ær
koma saman.
Fjármál: tungumál sauð-
kinda/jarm.
Fjármálaráðherra: yfirsmali.
Fjármunir: lausamunir í eigu
sauðkinda.
Fjárnám: skóli fyrir kindur.
Fjárplógsstarssemi: jarðyrkja
þar sem sauðfé er beitt fyrir
plóg.
Fjársöfnun: smalamennska.
Fjárútlát: þegar ærnar eru
settar út á vorin.
Fjárveitingar: þegar boðið
er upp á sauðaket í matar-
boðum.
Fjáröflun: smalamennska.
Fundið fé: kindur sem búið er
að smala.
Glatað fé: fé sem ekki hefur
komið af fjalli.
Grímsá: kind í eigu Gríms.
Hlutafé: súpuket.
Langá: einstaklega löng á.
Lausafé: kindur sem eru á
afréttinum.
Norðurá: kind að norðan.
Opinbert fé: fé í eigu ríkisins.
Sauðburður: þegar handbært
fé er borið á milli staða.
Sparifé: kindur sem ekki eru
notaðar hversdags.
Stofnfé: fyrstu kindur sem
maður eignast.
Tryggingarfé: öruggt sauðfé .
Veltufé: afvelta kindur.
Þjórfé: drykkfelld ær.
Þverá: þrjósk kind.
FRÉTTASKÝRINGAR UM FÉ – BRANDARAR Á NETINU