Víkurfréttir - 21.06.2012, Blaðsíða 19
19VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012
Skólarnir þrír í Innri Njarðvík, þ.e. Akurskóli og leikskólarnir
Akur og Holt hafa nú tekið í notkun
sameiginlegt útinámssvæði í
Narfakotsseylu og langar okkur
af því tilefni að rekja aðdraganda
þess í stuttu máli. Hugmyndir
um uppbyggingu útinámssvæðis
kviknuðu haustið 2008 hjá þeim
Önnu Sofiu og Karólínu og var
frá upphafi ákveðið að þetta yrði
samfélagslegt samstarfsverkefni
skólanna þriggja í Innri Njarðvík
þar sem nemendur og börn frá
tveggja ára til sextán ára aldurs
tækju virkan þátt í verkefninu frá
upphafi til enda. Hugsjónin á bak
við verkefnið er að nemendur og
börn komist í nánara samband
við náttúruna, umhverfið og
samfélagið á merkingarbæran hátt
í gegnum nám. Útikennslusvæðið
var hugsað sem aðstaða fyrir
nemendur, börn og kennara í
útináminu en einnig fyrir aðra
íbúa og gesti.
Stýrihópur með fulltrúum skólanna
var settur á laggirnar til að halda
utan um framgang verkefnisins.
Haustið 2009 hittust kennarar
skólanna þriggja í Akurskóla og
átti sameiginlegan starfsdag við
undirbúning verkefnisins en í
kjölfarið hófst hugmyndavinna og
þróun verkefnisins innan skólanna.
Á vorönn 2010 hittust nemendur
skólanna til að ræða saman og
viðra hugmyndir. Í kjölfarið var
lögð fram tillaga um uppbyggingu
útinámssvæðis í Kópu sem kynnt var
fyrir Umhverfis- og skipulagsráði
Reykjanesbæjar. Þeirri tillögu var
hafnað og í kjölfarið hófst nýtt ferli
þar sem m.a. var leitað eftir nýrri
staðsetningu. Landslagsarkitektinn
Guðmundur Hrafn Arngrímsson
var fenginn til samstarfs og lagði
hann fram áhugaverðar hugmyndir
um að nýta sérstöðu svæðisins
við Narfakotsseylu og vinna út
frá hugmyndum um sjósókn og
atvinnuhætti fyrri tíma. Vann hann
m.a. út frá þeim hugmyndum sem
nemendur og leikskólabörn höfðu
unnið.
Skemmtilegt uppbyggingarferli
h ó f s t í s e p t e m b e r 2 0 1 1
þegar fjölþjóðlegur hópur frá
sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS
mættu til leiks og unnu með
okkur í tvær vikur. Í framhaldi
hittust börn, foreldrar og kennarar
skólanna og unnu að áframhaldandi
uppbyggingu.
Náið samstarf hefur verið haft
að leiðarljósi í öllu ferlinu þar
sem börn, foreldrar, kennarar
og stjórnendur hafa lagt sitt af
mörkum. Með samstilltu átaki
er þetta skemmtilega verkefni nú
orðið að veruleika og á eftir að
nýtast skólunum og samfélaginu
um ókomin ár.
Við viljum færa öllum kærar þakkir
sem hafa komið að verkefninu og
hjálpað til að gera það að veruleika.
Jafnt þeim sem komið hafa að
beinni uppbyggingu svæðisins sem
og stjórnendum skólanna og þeim
sem styrkt hafa verkefnið með
beinum hætti s.s. Manngildissjóði
og Umhverfis- og skipulagssviði
Reykjanesbæjar. Einnig þökkum
við Magma Energy fyrir veittan
stuðning.
Stýrihópurinn
Anna Sofia Wahlström, Cynthia
Grinspan, Erna Ósk Steinarsdóttir,
Karólína Einarsdóttir og Magnús
Valur Pálsson
Þakklát fyrir útikennslu-
svæðið í Narfakotsseylu