Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.06.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 21.06.2012, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Um þessar mundir standa yfir tökur á fyrstu kvikmynd Hamagu pictures í fullri lengd. Um er að ræða hrollvekju af bestu gerð þó svo framleiðandi myndarinnar segi hreint út að myndin fari strax í flokk svokallaðra B-mynda. Það ræðst af því að myndin er framleidd fyrir brot af þeim peningum sem annars myndi kosta að framleiða sambærilega mynd. Kostnaði við framleiðsluna er haldið niðri með því að nær allir gefa vinnu sína. Kv i k my ndin he i t i r Z ombie Island og handritshöfundur, leikstjóri og framkvæmdastjóri verkefnisins er Marteinn Ibsen k v i k my n d a g e rð ar m a ð u r ú r Reykjanesbæ. Á sama hátt og neyðin hafi kennt naktri konu að spinna, þá var það verkefnaskortur sem rak Martein og félaga hans í að framleiða bíómynd. Zombie Island er þjóðfélagsádeila og er saga minnislauss manns rakin þar sem hann gengur inn í samfélag sem er gjörsamlega farið á hausinn. Nóg er af uppvakningum út um allt en að sjálfsögðu finnst fólk á lífi hér og þar. Myndin er blóðug hrollvekja en höfundurinn segir að hins vegar sé ekkert gaman af hrollvekjum nema að þú getir brosað eitthvað af þeim líka. Marteinn segir að allir séu mjög spenntir fyrir verkefninu og allir vilji vera með í gerð myndarinnar. En þar sem ekki sé hægt að greiða laun, þá eiga ekki allir kost á því að taka þátt í verkefninu af fullum krafti og komast ekki alltaf. Marteinn segir að listinn yfir aðstandendur verkefnisins innihaldi yfir 200 manns. Þá segir Marteinn að hjálpsemin sé víða. Þannig hafi kvikmyndataka farið fram í matvöruverslununni Kosti í heilan dag. Verslunin var lokuð og var fyllt af uppvakningum. Þegar viðskiptavinir sáu líf við verslunina hafi þeir streymt að en þeim mættu svo blóðugir uppvakningar. Sumum var brugðið, en allir fengu afgreidda mjólkina sína, þó svo á dagatalinu væri föstudagurinn langi. Valdimar sér um tónlistina Marteinn segist þakklátur fyrir alla þá hjálp sem kvikmynda­ gerðarfólkið hafi fengið. Þannig hafi Brunavarnir Suðurnesja aðstoðað við gerð myndarinnar og einnig lögreglan á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Háskólavellir veittu aðgang að byggingum á Ásbrú. Kvikmynda­ gerðafólkið leigir einnig aðstöðu til kvikmyndatöku í Atlantic Studio sem staðsett er á Ásbrú. Myndin er tekin víða á Reykjanesi, bæði í byggð og á Reykjanestá. Þá kemur tónlistarfólk af Suðurnesjum einnig að myndinni. Þar má nefna Keflvíkinginn Veigar Margeirs son, sem gerir það gott í kvikmynda­ tónlist í Bandaríkjunum, og Valdimar Guðmundsson sem mun vinna að tónlist fyrir myndina með hljómsveit sinni. Í myndinni eru þrettán „tal­ andi“ hlutverk en mun fleiri leika í myndinni. Mikið er lagt upp úr gervum og eru fram leiðendur myndarinnar með förðunar­ fræðinginn Petru Þórðardóttur á sínum snærum sem lærði fagið í Toronto og hefur séð um að gera allt saman ógeðslegt, eins og það á að vera. Myndin er nær öll á ensku eða um 80% talaðs máls. Önnur samtöl fara fram á íslensku. Ástæðuna segir Marteinn vera þá að markaður fyrir hrollvekjur sé mikill erlendis, og þá sérstaklega þessi tegund mynda. Í dag er staðan á verkefninu sú að búið er að taka upp 65% af myndinni. Sú staða er hins vegar komin upp að endurskrifa þarf endir myndarinnar og leikarar sem áttu að koma þar við sögu þurfa að deyja fyrr í myndinni. Ástæðan er að leikararnir þurfa að sinna öðrum verkefnum og geta ekki verið með til loka verkefnisins. Þeir verða því fyrir óvæntri uppvakningaárás og deyja skyndilega. Marteinn segir hins vegar að endir myndarinnar eigi eft ir að verða betri við það að vera endurskrifaður. Ef leikararnir vilja svo koma aftur að myndinni geta þeir bara mætt sem uppvakningar, segir Marteinn og hlær. 20 ár í bransanum Marteinn byrjaði að framleiða stuttmyndir með fél ögum sín­ um árið 1992. Þetta eru þeir Guðmundur Ingvar Jónsson og Halldór Jón Björgvin sson. Þeir leika báðir í Zombie Island og eru með puttana í framleiðslunni. Þeir stofnuðu á sínum tíma félagsskap sem heitir HAMAGU Pictures en framleiðslufyrirtækið Blue Diamond Productions framleiðir myndina. Þar sem tökuliðið er í smærri kantinum taka allir á sig nokkur hlutverk. Halldór Jón er ásamt því að vera í öðru aðalhlutverki aðstoðarleikstjóri og sér um veitingar. Steinar hljóðmaður er einnig aðstoðartökumaður, r u n ne r o g bí l s t j ór i . D av í ð Örn er sviðmyndahönnuður, umsjónarmaður leikmuna og allsherjar reddari. Leikstjórinn tekur að sér hljóðmanns hlutverkið og blandar sér í förðun og sviðsmyndaskreytingu þegar það vantar mannskap. Karl Newman er tökustjóri. Marteinn er menntaður í kvik­ mynda gerð en hann fór í nám til London til þriggja ára eftir að hafa starfað fyrir RÚV og fleiri. Marteinn útskrifaðist árið 2005 ›› Marteinn Ibsen og félagar framleiða hryllingsmyndina Zombie Island: Blóðrauð bíómynd með uppvakningum – tekin upp á Suðurnesjum „Myndin er blóðug hrollvekja hins vegar sé ekkert gaman af hrollvekjum nema að þú getir brosað eitthvað af þeim líka“ Marteinn við klippiborðið.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.