Víkurfréttir - 21.06.2012, Page 16
16 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Um þessar mundir standa yfir tökur á fyrstu kvikmynd
Hamagu pictures í fullri lengd.
Um er að ræða hrollvekju af
bestu gerð þó svo framleiðandi
myndarinnar segi hreint út
að myndin fari strax í flokk
svokallaðra B-mynda. Það ræðst
af því að myndin er framleidd
fyrir brot af þeim peningum sem
annars myndi kosta að framleiða
sambærilega mynd. Kostnaði við
framleiðsluna er haldið niðri með
því að nær allir gefa vinnu sína.
Kv i k my ndin he i t i r Z ombie
Island og handritshöfundur,
leikstjóri og framkvæmdastjóri
verkefnisins er Marteinn Ibsen
k v i k my n d a g e rð ar m a ð u r ú r
Reykjanesbæ. Á sama hátt og
neyðin hafi kennt naktri konu að
spinna, þá var það verkefnaskortur
sem rak Martein og félaga hans í að
framleiða bíómynd.
Zombie Island er þjóðfélagsádeila
og er saga minnislauss manns
rakin þar sem hann gengur inn í
samfélag sem er gjörsamlega farið á
hausinn. Nóg er af uppvakningum
út um allt en að sjálfsögðu finnst
fólk á lífi hér og þar. Myndin er
blóðug hrollvekja en höfundurinn
segir að hins vegar sé ekkert gaman
af hrollvekjum nema að þú getir
brosað eitthvað af þeim líka.
Marteinn segir að allir séu mjög
spenntir fyrir verkefninu og allir
vilji vera með í gerð myndarinnar.
En þar sem ekki sé hægt að
greiða laun, þá eiga ekki allir kost
á því að taka þátt í verkefninu
af fullum krafti og komast ekki
alltaf. Marteinn segir að listinn
yfir aðstandendur verkefnisins
innihaldi yfir 200 manns. Þá segir
Marteinn að hjálpsemin sé víða.
Þannig hafi kvikmyndataka farið
fram í matvöruverslununni Kosti í
heilan dag. Verslunin var lokuð og
var fyllt af uppvakningum. Þegar
viðskiptavinir sáu líf við verslunina
hafi þeir streymt að en þeim
mættu svo blóðugir uppvakningar.
Sumum var brugðið, en allir fengu
afgreidda mjólkina sína, þó svo
á dagatalinu væri föstudagurinn
langi.
Valdimar sér um tónlistina
Marteinn segist þakklátur fyrir
alla þá hjálp sem kvikmynda
gerðarfólkið hafi fengið. Þannig
hafi Brunavarnir Suðurnesja
aðstoðað við gerð myndarinnar og
einnig lögreglan á Suðurnesjum,
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
og Háskólavellir veittu aðgang að
byggingum á Ásbrú. Kvikmynda
gerðafólkið leigir einnig aðstöðu til
kvikmyndatöku í Atlantic Studio
sem staðsett er á Ásbrú. Myndin
er tekin víða á Reykjanesi, bæði í
byggð og á Reykjanestá. Þá kemur
tónlistarfólk af Suðurnesjum
einnig að myndinni. Þar má nefna
Keflvíkinginn Veigar Margeirs son,
sem gerir það gott í kvikmynda
tónlist í Bandaríkjunum, og
Valdimar Guðmundsson sem mun
vinna að tónlist fyrir myndina með
hljómsveit sinni.
Í myndinni eru þrettán „tal
andi“ hlutverk en mun fleiri leika
í myndinni. Mikið er lagt upp úr
gervum og eru fram leiðendur
myndarinnar með förðunar
fræðinginn Petru Þórðardóttur á
sínum snærum sem lærði fagið í
Toronto og hefur séð um að gera
allt saman ógeðslegt, eins og það
á að vera.
Myndin er nær öll á ensku eða um
80% talaðs máls. Önnur samtöl fara
fram á íslensku. Ástæðuna segir
Marteinn vera þá að markaður fyrir
hrollvekjur sé mikill erlendis, og þá
sérstaklega þessi tegund mynda.
Í dag er staðan á verkefninu sú
að búið er að taka upp 65% af
myndinni. Sú staða er hins vegar
komin upp að endurskrifa þarf
endir myndarinnar og leikarar sem
áttu að koma þar við sögu þurfa að
deyja fyrr í myndinni. Ástæðan er
að leikararnir þurfa að sinna öðrum
verkefnum og geta ekki verið með
til loka verkefnisins. Þeir verða því
fyrir óvæntri uppvakningaárás og
deyja skyndilega. Marteinn segir
hins vegar að endir myndarinnar
eigi eft ir að verða betri við
það að vera endurskrifaður. Ef
leikararnir vilja svo koma aftur að
myndinni geta þeir bara mætt sem
uppvakningar, segir Marteinn og
hlær.
20 ár í bransanum
Marteinn byrjaði að framleiða
stuttmyndir með fél ögum sín
um árið 1992. Þetta eru þeir
Guðmundur Ingvar Jónsson og
Halldór Jón Björgvin sson. Þeir
leika báðir í Zombie Island og eru
með puttana í framleiðslunni. Þeir
stofnuðu á sínum tíma félagsskap
sem heitir HAMAGU Pictures
en framleiðslufyrirtækið Blue
Diamond Productions framleiðir
myndina.
Þar sem tökuliðið er í smærri
kantinum taka allir á sig nokkur
hlutverk. Halldór Jón er ásamt
því að vera í öðru aðalhlutverki
aðstoðarleikstjóri og sér um
veitingar. Steinar hljóðmaður
er einnig aðstoðartökumaður,
r u n ne r o g bí l s t j ór i . D av í ð
Örn er sviðmyndahönnuður,
umsjónarmaður leikmuna og
allsherjar reddari. Leikstjórinn
tekur að sér hljóðmanns hlutverkið
og blandar sér í förðun og
sviðsmyndaskreytingu þegar það
vantar mannskap. Karl Newman er
tökustjóri.
Marteinn er menntaður í kvik
mynda gerð en hann fór í nám
til London til þriggja ára eftir að
hafa starfað fyrir RÚV og fleiri.
Marteinn útskrifaðist árið 2005
›› Marteinn Ibsen og félagar
framleiða hryllingsmyndina
Zombie Island:
Blóðrauð
bíómynd með
uppvakningum
– tekin upp á Suðurnesjum
„Myndin er blóðug hrollvekja
hins vegar sé ekkert gaman af
hrollvekjum nema að þú getir
brosað eitthvað af þeim líka“
Marteinn við klippiborðið.