Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.06.2012, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 21.06.2012, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Sendum frítt hvert á land sem er Mægðurnar Kristín Hrönn Ragnarsdóttir og Ragnheiður Kristín Benónýsdóttir MINNING Kristín Hrönn, eða Hrönn eins og hún var oftast kölluð, lést í Bandaríkjunum þar sem hún hefur búið í rúm 40 ár, þann 29. maí sl . Við Hrönn vorum bekkjarsystkini al lt okkar skyldunám í Keflavík og einmitt á þeim tímapunkti sem hún kvaddi þetta líf voru liðin 50 ár frá því að við lukum námi í Barnaskólanum í Keflavík. Frá því að hún fullorðnaðist fylgdist ég lítið með lífi hennar eða þar til ég kynntist dóttur hennar Ragnheiði Kristínu, sem kölluð var Heiða. Kynni okkar Heiðu voru mjög góð og frá því að þau hófust fyrir um þremur árum vorum við bestu vinir. Þann tíma fylgdist ég í gegnum Heiðu með veikindastríði Hrannar í Bandaríkjunum, en hún var mikill sjúklingur hin síðari ár. Heiða varð bráðkvödd á heimili sínu í Keflavík 10. febrúar sl. og nokkrum mínútum áður vorum við þrír, ég, barnsfaðir hennar Fr iðr ik Fr iðr iksson og sonur þeirra Stefán Jón Friðriksson heima hjá henni. Þar sem hún var þreytt og vildi leggja sig fórum við þrír í sendiferð fyrir hana og er við komum til baka 10-15 mínútum síðar var hún öll. Báðar voru þær mæðgur fæddar í Keflavík, móðirin þann 7. júní 1949 og dóttirin 1. maí 1968 og þær voru jarðsettar í Hólmsbergskirkjugarði í Keflavík. Ragnheiður Kristín, þann 24. febrúar sl. og Kristín Hrönn, þann 18. júní sl. Blessuð sé minning þeirra Emil Páll Jónsson Birgir Guðbergsson, Sike Quan, Jóna Kristín Birgisdóttir, Jóhannes Stefánsson, Hjálmtýr Birgisson, Tinna Rósantsdóttir, Gunnar Birgisson. Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 26. júní frá Keflavíkurkirkju kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð sem stofnaður hefur verið til minningar um Eirík sem nýttur verður til góðgerðarmála tengt barnastarfi Sameinuðu þjóðanna. Reikningsnr. 0542 14 402626, kt. 120769-3679. Eiríkur Mussima Quan Birgisson, f. 4. janúar 2003 - d. 16. júní 2012, lést eftir stutt veikindi. Elskulegur sonur okkar, bróðir og mágur, Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu John Richard Brantley Kristín Hrönn Ragnarsdóttir Brantley, Savannah, Missouri (áður Smáratúni 44, Keflavík) Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir, lést á heimili sínu 29. maí sl. eftir langvarandi veikindi. Minningarathöfn hefur farið fram. AFMÆLISFUNDUR Í tilefni af 40 ára afmæli AA samtakanna í Keavík verður haldinn hátíðarfundur þar sem allir eru velkomnir. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 22. júní kl. 20:00 í KK salnum að Vesturbraut 17, Reykjanesbæ. Kaveitingar verða í boði á eftir. Suðurflug fagnaði í síðustu viku 40 ára afmæli sínu. Slegið var upp heljarinnar veislu og komu fjölmargir nágrannar flugfélagsins af Keflavíkurflugvelli í heimsókn og fengu sér kaffisopa og góðgæti sem var á boðstólum. Ýmis skemmtiatriði voru í boði en Guðmundur Hermannsson sá að mestu leyti um að skemmta fólkinu. Hljómsveitirnar Klassart og Eldar litu líka við og tóku nokkur lög. Í dag starfa 16 manns hjá Suðurflugi en félagið hefur verið starfandi í 40 ár eins og áður segir. Suðurflug var stofnað á grunni flugfélagsins Þórs þann 12. júní árið 1972. Fyrst í stað var starfsemin útsýnis- og leiguflug en síðan var hafinn rekstur flugskóla. Nú fæst félagið aðallega við afgreiðslu á öllu öðru flugi en áætlunar- og leiguflugi. Suðurflug hélt upp á 40 árin með glæsibrag Starfsmenn Suðurflugs í nýjum afmælisfatnaði. Valdimar og Björgvin Ívar í Eldum. Fjölmargir gestir litu við. Fornbílar á Fitjum Fornbílaáhugi á Íslandi er mikill og margir Suðurnesjamenn eru í hópi fornbílaeigenda. Þessi mynd var tekin af fornbílum sem var raðað upp á Fitjum í Njarðvík um síðustu helgi. Þarna mátti sjá marga glæsivagna.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.