Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 2

Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 2
 NEYTENDABLA‹I‹ 3. tbl., 55. árg. – október 2009 Útgefandi: Neytendasamtökin, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík Sími: 545 1200 Fax: 545 1212 Veffang: www.ns.is Netfang: ns@ns.is Ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson Ritstjóri: Brynhildur Pétursdóttir Ritnefnd: Jóhannes Gunnarsson, Þuríður Hjartardóttir, Hildigunnur Hafsteinsdóttir Yfirlestur: Finnur Friðriksson Umbrot og hönnun: Uppheimar ehf. Prentun: GuðjónÓ ehf. – vistvæn prentsmiðja Forsíðumynd: iStockphoto Upplag: 11.800 eintök, blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum Ársáskrift: Árgjald Neytendasamtakanna er 4.300 krónur og innifalið í því er Neytendablaðið, 4 tölublöð á ári. Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. Óheimilt er þó að birta heilar greinar eða töflur án leyfis Neytendasamtakanna. Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að nota í auglýsingum og við sölu nema skriflegt leyfi Neytendasamtakanna liggi fyrir. Lykilorð á heimasíðu: pera10 Leiðari ritstjóra 2 Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustan 3 Glóperur bannaðar 4 Seðilgjöld 7 Gæðakönnun á sjónvörpum 8 Viðtal við Ian Watson 10 Sparnaðarráð Ians 11 Vörugjöld á mat 12 Frá formanni 13 Saga stuttermabolsins 14 Koffíndrykkir 16 Sjúkdómavæðingin 17 Ábyrgðatími á bílum 18 Villandi lánaskilmálar 19 Hlutir sem endast 21 Kartöflur 22 Matvælamerkingar 23 Efni Blaðið er prentað á umhverfisvænan hátt. Brynhildur Pétursdóttir Óskiljanlegur hægagangur Fyrir 18 árum stóðu Neytendasamtökin fyrir ráðstefnu um gjaldþrot heimila þar sem nýtt úrræði var kynnt til sögunnar; greiðsluaðlögun. Lög um greiðsluaðlögun voru þegar í gildi á hinum Norðurlöndunum og töldu Neytendasamtökin mjög mikilvægt að tryggja réttarstöðu fólks sem stefndi í gjaldþrot. Árið 1994 var frumvarp um greiðsluaðlögun fyrst lagt fram á Alþingi. Það var síðan lagt fram 10 sinnum til viðbótar allt til ársins 2009 en þá brá svo við að þrjú frumvörp sama efnis komu fram svo að segja á sama tíma. 15 árum eftir að fyrsta frumvarpið var lagt fram voru allir flokkar loksins komnir á þá skoðun að þessi lög væru mikilvæg. Þingmenn hefðu þó betur greitt málinu farveg í eitthvert þeirra 11 skipta sem það lá fyrir þingi í stað þess að bíða eftir þjóðargjaldþroti. Það er verulega bagalegt að engin reynsla sé komin á þetta úrræði núna þegar mikið mun reyna á það. Það tekur nefni­ lega tíma að sníða vankanta af nýrri löggjöf, sérstaklega þegar um flókna framkvæmd er að ræða eins og í þessu tilfelli. Þá má leiða að því líkur að lánveiting undanfarin ár hefði verið ábyrgari ef lög um greiðsluaðlögun hefðu verið í gildi. Annað baráttumál Neytendasamtakanna um langt skeið eru lög um ábyrgðarmenn. Eins og margir muna eflaust var hér við lýði alveg sérstakt ábyrgðarmannakerfi þar sem vinir og ættingjar gengu í ábyrgð hver fyrir annan enda nær ómögulegt að fá lán út á eigið ágæti. Lánveitendur miðuðu gjarnan útlánin við stöðu ábyrgðarmanna og ófá dæmi eru um að gengið hafi verið að húsum þeirra og þeir misst aleiguna. Árið 1997 var fyrst flutt frumvarp um ábyrgðarmenn á Alþingi en það náði ekki í gegnum þingið. Ári síðar stóðu Neytendasamtökin fyrir mikilvægu samkomulagi við banka og sparisjóði sem bætti réttarstöðu ábyrgðarmanna til muna en samtökin kölluðu jafnframt eftir lagasetningu. Frumvarp um ábyrgðarmenn var ítrekað lagt fram í þinginu næstu árin en það var ekki fyrr en í 7. atrennu að það var samþykkt og tóku lögin gildi í apríl sl. Lög um innheimtuþóknun eru enn eitt dæmið um forgangsröðun á Alþingi. Frumvarp var lagt fyrir þingið 7 sinnum, fyrst árið 1998, en það varð ekki að lögum fyrr en í fyrravor. Þessi þrjú mál vitna ekki um mikla framsýni þingmanna eða vilja til að breyta rétt í þágu almennings. Er furða að maður velti fyrir sér hvaða hagsmunir hafi eiginlega ráðið ríkjum í þjóðfélaginu? Það er síðan hreint með ólíkindum að sama fólk og stóð í vegi fyrir sjálfsagðri réttarbót almenningi til handa skyldi hafa samvisku til að rusla hinum alræmdu eftirlaunalögum í gegnum þingið. Það vafðist aldeilis ekki fyrir mönnum og tók engin 15 ár. Neytendasamtökin kalla eftir því að sett verði lög um hópmálssókn en þar er um að ræða mjög mikilvægt úrræði fyrir neytendur. Þá þarf að setja lög sem skylda banka og lánveitendur að gera raunhæft greiðslumat líkt og víða þekkist og er í raun forsendan fyrir ábyrgum lánveitingum. Við sættum okkur ekki við að bíða í ár eða áratugi eftir þessum breytingum.  NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.