Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 18

Neytendablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 18
tilraun stóð yfir í 36 vikur) þrátt fyrir að fólk kæmi til með að nota lyfið til mun lengri tíma. Ráðleggingar til fjölmiðla Höfundar benda á að fjölmiðlafólk ætti að hafa varann á þegar það fær upplýsingar um nýja sjúkdóma sem náð hafa mikilli útbreiðslu á skömmum tíma. Ef sjúkdómur er algengur og verulega til ama er ótrúlegt að enginn hafi heyrt um hann áður. Fjölmiðlar þurfa að spyrja spurninga eins og hvernig sjúkdómurinn sé skilgreindur, hvort aðferðir við greiningu séu réttar og hvort rannsóknarhópurinn endurspegli almenning. Þá sé vert að setja spurningarmerki við tilhneiginguna til að trúa því að meðferð sé alltaf réttlætanleg; er það t.d. þess virði að skipta á fótaóeirð fyrir ógleði, svima og þreytu? Varhugaverð umfjöllun Höfundar segja umfjöllunina um fótaóeirð varhugaverða. Þeir telja hana ýkja tíðni sjúkdómsins og þörfina fyrir meðferð og segja hana ekki taka tillit til þeirra vandamála sem ofgreining hefur í för með sér. Fjölmiðlar virðast hafa verið fengnir til liðs við framleiðendur til að ýta undir sjúkdómavæðinguna. Höfundar segja þó auðvelt að skilja af hverju fjölmiðlar stökkvi á þessar fréttir svo að segja gagnrýnilaust. Sögurnar eru vissulega dramatískar. Algengur, en þó lítt þekktur sjúkdómur herjar á almenning. Persónulegar frásagnir eru sannfærandi. Læknar eru áhugalausir og fáfróðir og lækningin felst í kraftaverkalyfi. Raunveruleikinn ekki jafn spennandi? Hin hliðin kemur hins vegar ekki fram. Það er kannski engin heilsufarsógn, frásagnir sjúklinga gefa ekki endilega rétta mynd að reynslu þeirra sem haldnir eru kvillanum, það getur verið rétt af læknum að greina ekki sjúkdóm út frá vægum einkennum sem eiga sér ekki trúverðugar skýringar og meðferð og bati eiga ekkert skylt við kraftaverk. Fjölmiðlar ættu, að mati Woloshin og Schwarz, að segja fréttir af heilbrigðismálum án þess að ýta undir sjúkdómavæðinguna og það geri þeir með því að nálgast fréttir af nýstárlegum sjúkdómum af meiri gagnrýni. Það sé enda hlutverk fjölmiðla að upplýsa lesendur sína en ekki gera þá veika. Fyrir nokkrum árum birtist grein í hinu virta læknariti British Medical Journal þar sem fjallað var um nýjan og áður óskilgreindan sjúkdóm, „Motivational deficiency disorder“, sem gæti útlagst á íslensku sem yfirgengileg leti. Taugafræðingurinn Leth Argos, sem starfar við Newcastle­háskólann í Ástralíu, var einna fyrstur til að skilgreina sjúkdóminn. Hann telur að allt að einn af hverjum fimm Áströlum þjáist af sjúkdómnum en lítið er vitað um orsakir hans. Væg einkenni geta t.d. verið þau að fólk eigi erfitt með fara á fætur á morgnana eða hafi sig ekki í að sinna einföldustu húsverkunum. Í verstu tilfellum getur letin þó náð slíkum tökum á fólki að það hættir að hafa fyrir því að anda. Sjúkdómurinn getur því reynst lífshættulegur. Sem betur fer er þó til lyf við honum, Strivor, sem hefur gagnast vel. Nú eru eflaust farnar að renna tvær grímur á lesendur. Hið rétta er að það er ekkert til sem heitir Motivational deficiency disorder. Greinin sem birtist í British Medical Journal var skrifuð af blaðamanninum Ray Moynihan og var aprílgabb. Markmiðið var að sýna fram á hvernig sjúkdómar eru búnir til og seldir almenningi. Moynihan hefur skrifað heilmikið um sjúkdómavæðinguna og m.a. gefið út bókina Selling Sickness: how the world´s biggest pharmaceutical companies are turning us all into patients (Að selja sjúkdóma: Hvernig stærstu lyfjafyrirtæki heimsins breyta okkur í sjúklinga). Á heimasíðu alþjóðasamtaka neytenda, undir www.marketingover­ dose.org, má sjá grín­auglýsingar og myndskeið sem gerð voru í kjölfar frétta um tilvist letisjúkdómsins. Einnig er hægt að sjá auglýsingarnar á Youtube. Markmiðið með herferðinni Marketing Overdose er að berjast geng óábyrgri markaðssetningu á lyfjum. BP Leti - sjúklegt ástand? Á ársfundi alþjóðasamtaka neytenda (Consumers International) árið 2007 var sjúkdómavæðingin eitt meginumræðuefnið. Samtökin hafa áhyggjur af þróuninni og telja að markaðs­ setning lyfjafyrirtækja sé óábyrg og ósiðleg. Samtökin vilja að sett verði lög sem banna lyfjafyrirtækjum að útdeila gjöfum til lækna. Slíkt hefur ætíð tíðkast en lyfjafyrirtækin eiga mikið undir því að læknar ávísi „réttu“ lyfjunum. Þá krefjast samtökin þess að allar upplýsingar um styrki lyfjafyrirtækja til hagsmunahópa sjúklinga (patient groups) séu uppi á borðinu. Þá má nefna að neytendasamtök í Evrópu eru alfarið á móti því að auglýsingar á lyfseðilskyldum lyfjum verði leyfðar eins og tíðkast t.d. í Bandaríkjunum. 1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.