Neytendablaðið - 01.10.2009, Síða 12
Í írska blaðinu Consumer choice segir frá kröfu ANEC um stöðluð
hleðslutæki fyrir síma. ANEC, sem er samstarfsvettvangur evrópskra
neytendasamtaka um staðlavinnu, hefur óskað eftir því að fram
kvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni til sögunnar samræmdan
staðal fyrir hleðslutæki (fyrir farsíma, lófatölvur, stafrænar
myndavélar og önnur minni raftæki). Eins og neytendur þekkja sitja
þeir uppi með sífellt meira magn af úreltum hleðslutækjum. Slíkt
hefur neikvæð áhrif á umhverfið því gömul hleðslutæki er ekki hægt
að endurýta á neinn hátt. Þau enda því á ruslahaugunum og bætast
við hið mikla magn rafræns úrgangs sem bæði framleiðendur og
ESB segjast vilja minnka. Þess utan fylgir því auðvitað kostnaður að
framleiða ný tæki og það eru neytendur sem bera hann. Stundum
breyta framleiðendur jafnvel hönnun á hleðslutæki fyrir sína eigin
farsíma sem styttir líftíma vöru sem að öðru leyti virkar fullkomlega
vel.
Nokkrir farsímaframleiðendur hafa lofað að þróa staðlað
hleðslutæki fyrir árið 2012. Aðalframkvæmdastjóri ANEC, Stephen
Russell, segir: ,,Þó að við fögnum fréttum af því að nokkrir
framleiðendur vilji þróa staðlað hleðslutæki fyrir farsíma efumst við
um að sjálfviljugt samkomulag sé nógu öflug aðgerð til að tryggja
neytendum alnota hleðslutæki í framtíðinni. Svipuð tilkynning um
útgáfu míkró USB símahleðslutækja kom út árið 2007, en þetta
sjálfviljuga samkomulag hefur enn ekki verið framkvæmt.“
CAI, Neytendasamtök Írlands, eru sammála ANEC og telja að þótt
þetta sé góð byrjun sé ólíklegt að neytendur og umhverfið hafi hag
af skuldbindingu sem taki aðeins á einum vöruhópi. CAI telur að
það þurfi reglugerð frá ESB sem nái yfir allar vörur til að það verði
breyting til frambúðar.
Heimild: Consumer Choice, apríl 2009
Hleðslutæki
sem passar fyrir alla síma
Hagkvæmara og umhverfisvænna
Þegar keyptur er nýr gemsi er allt eins líklegt að gamla hleðslutækið passi ekki.
Slíkt er óþarfa sóun og því til mikils að vinna fyrir neytendur og umhverfi að
stöðluð hleðslutæki verði að veruleika.
Vörugjald var lagt á ýmsar vörur 1. sept-
ember og búast má við því að það sé nú
að mestu komið fram í verðlagi. Hér má
sjá hvað það er í krónum á kíló eða lítra.
16 kr./l
Ávaxtasafar og Gosdrykkir.
Vatn þar með talið ölkelduvatn og loft
blandað vatn (kolsýrt vatn).
Drykkjarvörur úr sojabaunum, hrísgrjónum
og/eða möndlum.
Öl gert úr malti með meira en 0,5% til og
með 2,25% vínanda af rúmmáli.
Vín úr þrúgum með meira en 0,5% til og
með 2,25% vínanda af rúmmáli.
Edik og edikslíki fengið úr ediksýru.
Rjómaís og annar ís.
24 kr./kg
Matjurtir, ávextir og fleira sem varið er
skemmdum með sykri.
Ávextir, hnetur og fleira, unnið eða varið
skemmdum á annan hátt, einnig með við
bættum sykri eða öðru sætuefni eða áfengi.
Sulta og ávaxtahlaup, ávaxtasúpur og
grautar.
30 kr./kg
Kakó.
Efni til framleiðslu á drykkjarvörum.
50 kr./kg
Búðingsduft
60 kr./kg
Sykurvörur (s.s. strásykur, molasykur,
púðursykur og síróp).
Bragðbætt eða litað sykursíróp.
80 kr./kg
Sætt kex og smákökur, vöfflur og kex
þynnur húðað eða hjúpað súkkulaði.
100 kr./kg
Fyllt og ófyllt súkkulaði.
Páskaegg.
120 kr./kg
Sætindi án kakóinnihalds (s.s. tyggigúmmí
(með sykri), möndlumassi, lakkrís, kara
mellur og brjóstsykur).
Sætindi án glúteins og sérstaklega tilreidd
fyrir ofnæmis og efnaskiptasjúklinga.
130 kr./kg
Kakómalt.
Sælgæti sem hvorki inniheldur sykur né
kakó.
Sælgæti.
160 kr./kg
Ávaxtaþykkni (þurrkaðir ávextir til lögunar
á seyði).
Matvælaverð hækkar enn
Ný heimasíða samtakanna
Starfsmenn Neytendasamtakanna vinna nú að því að breyta og
bæta heimasíðuna og ætti ný síða að komast í gagnið innan
skamms. Engar rótækar breytingar eru gerðar en áhersla er lögð
á að flokka allt efni betur og gera síðuna aðgengilegri. Mikið af
áhugaverðu efni er á heimasíðu Neytendasamtakanna og reglulega
eru settar inn fréttir sem samtökin telja að eigi erindi til neytenda.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009