Neytendablaðið - 01.10.2009, Síða 16
Glöggir neytendur hafa e.t.v. tekið eftir því að fjölbreytni flór-
unnar í svokölluðum orkudrykkjum hefur aukist. Ástæðan er
breyting á reglugerð sem snýr að íblöndun koffíns í drykki. Áður
mátti ekki vera meira en 150 mg af viðbættu koffíni í hverjum
lítra en nú er ekkert hámark. Ef koffínmagnið er meira en 150
mg/l er skylt að merkja sérstaklega á umbúðir; „Inniheldur mikið
koffín,“og skal taka fram hvert magnið er.
Drykkur með varúðarmerki
Deildarstjórar unglingastarfs ÍTR sendu nýlega bréf til foreldra 10
16 ára skólabarna á höfuðborgarsvæðinu vegna orkudrykkjarins
Redfin energy sem hefur verið seldur í 1011. Drykkurinn mun
vera mjög vinsæll hjá börnum og unglingum en svo mikið koffín
er í honum að á umbúðum er varað við því að börn yngri en 18
ára neyti hans. Miði með innihaldslýsingu hefur hins vegar verið
límdur yfir varúðarorðin.
Mikilvægt að fylgjast með neyslu barna
Þórhildur Rafns Jónsdóttir, deildarstjóri Unglingastarfs í Kringlu
mýri, sagði í samtali við Neytendablaðið að starfsmenn í unglinga
starfi hefðu nokkrar áhyggjur af neyslu barna og unglinga á orku
drykkjum með háu koffíninnihaldi. Orku og íþróttadrykkir hafa
verið bannaðir í skólum og á skólaferðalögum en þeir hafa hins
vegar verið leyfðir í félagsmiðstöðvum, þ.e. börnin mega koma með
drykkina með sér. Í ljósi þess að nú eru komnir mun koffínríkari
drykkir á markað en áður og að sumir þeirra eru jafnvel ekki ætlaðir
börnum innan 18 ára aldurs er, að sögn Þórhildar, mikilvægt fyrir
foreldra að vera vakandi fyrir því hvað börn og unglingar geta verið
að setja ofan í sig. „Í góðri trú treystum við neytendamarkaðnum
fyrir því að börnum okkar séu ekki seldar vörur sem ekki eru
ætlaðar þeim. Þótt neysluvenjur barna og unglinga séu í flestum
tilfellum góðar er þó þarft að vekja athygli á þessari neyslu“, segir
Þórhildur.
Er orkudrykkur réttnefni?
Þær tegundir sem nú streyma nýjar á markað innihalda mun meira
koffín en þeir drykkir sem fyrir voru. Auk koffíns innihalda drykk
irnir gjarnan önnur virk efni eins og gingseng og plöntuekstrakt,
auk tauríns sem er örvandi efni. Sumir þessara drykkja innihalda
mikinn sykur en í öðrum er sætuefni.
Neytendasamtökin telja jafn fráleitt að kalla þessa tegund drykkja
orkudrykk og að kalla bland í poka heilsusnakk. Samtökin telja eðli
legra að drykkjunum sé gefið réttnefnið koffíndrykkir.
Hversu mikið er meira en nóg?
Á heimasíðu Matvælastofnunar má sjá áhugaverðar greinar um
koffín. Í bæklingnum „Koffín, neysla og áhrif“ kemur m.a. fram að
dagleg neysla barna og unglinga á koffíni ætti ekki að vera meiri
en 2,5 mg/kg líkamsþyngdar. Það þýðir að 7 ára gamalt barn sem
vegur 24 kíló ætti ekki að neyta meira en 60 mg af koffíni á dag. Í
hálfum lítra af kóladrykk eru 65 mg af koffíni.
Heimild, Mast.
Nýir
„orkudrykkir“
á markað
Hámarksneysla barna og unglinga á koffíni:
Líkamsþyngd Hámarksneysla koffíns á dag
20 kg 5o mg
30 kg 75 mg
40 kg 100 mg
50 kg 125 mg
Skaðlegur kokteill
Erlendis hefur tíðkast að blanda sterkum koffíndrykkjum saman
við áfengi. Þar sem engin takmörk eru nú á innflutningi og
sölu þessara drykkja má gera ráð fyrir að þessi ósiður verði
hluti af drykkjumenningunni hér á landi.
Ástæðan fyrir því að þessi kokteill er varhugaverður er sú að
koffíndrykkur hefur örvandi áhrif á líkamann en áfengi aftur
á móti sljóvgandi áhrif. Áhrif alkóhólsins verða því minni
sem getur gert það að verkum að fólki finnist það ekki eins
drukkið og það raunverulega er. Þetta getur leitt til þess að
fólk drekki meira auk þess sem rannsóknir benda til þess að
þeir sem blanda koffíndrykkjum út í áfengi séu líklegri til
að lenda í slysi eða öðrum skakkaföllum en þeir sem láta sér
áfengið nægja. Heilbrigðisyfirvöld víða um heim hafa varað
fólk við því að neyta áfengis og koffíndrykkja saman. Slíkt
getur valdið hjartsláttartruflunum en það getur líka átt við ef
koffínríkra drykkja er neytt samhliða mikilli hreyfingu.
Í einum kaffibolla (200ml) eru 100 mg af koffíni, en það fer þó eftir tegund og
uppáhellingu. Í bolla af svörtu tei er 35 mg af koffíni.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009