Neytendablaðið - 01.10.2009, Page 19
Mikill fjöldi mála hefur borist til Evrópsku neytendaaðstoðarinnar
nú í haust og er þar fyrst og fremst um að ræða mál vegna bílaleigu
þar sem neytendur hafa fengið mjög háa bakreikninga vegna
skemmda á bílum.
Mjög algengt er að bílaleigubílum sé skilað á sérstök bílaplön og
þeir þá ekki sérstaklega skoðaðir við skilin.
Ef bílaleigan tekur svo eftir skemmdum á bílnum síðar meir sendir
hún reikning vegna skemmdanna til þess neytanda er síðast var
með bílinn. Erfitt getur þá reynst að sanna hvenær eða hvernig
skemmdirnar komu til og oft er um töluverðar peningaupphæðir
að ræða.
Einnig hafa komið upp mál þar sem skemmd er á bíl við leigutöku
sem ekki hefur verið merkt inn á þar til gert eyðublað sem neyt
andinn á að fá til sönnunar því að hann hafi ekki valdið umræddri
skemmd.
Mikilvægt er því fyrir neytendur að hafa í huga við leigu á bíl að
skoða bílinn vel við afhendingu og láta strax vita ef skemmd finnst
og fá þá bílaleiguna til að fylla út eyðublað og kvitta fyrir skemmd
inni. Einnig er mikilvægt að biðja um að bíllinn sé skoðaður við skil
og fá þá kvittun fyrir því að bíllinn hafi verið í lagi við skilin.
Skemmdir á bílaleigubílum
Mikilvægt að skoða bílinn bæði við afhendingu og þegar honum er skilað
Þess misskilnings gætir víða að kaupendum nýrra bifreiða sé skylt
að fara með bílinn í reglulegar þjónustuskoðanir hjá umboðinu til
að viðhalda ábyrgð. Hið rétta er að neytendum ber engin skylda til
þessa. Þegar keyptur er nýr bíll á neytandi rétt á úrbótum vegna
galla óháð því hvar hann lætur þjónusta bíl sinn. Kjósi fólk að
sinna viðhaldi á öðru verkstæði en hjá umboðinu er því ekkert sem
kemur í veg fyrir það.
Hvað er löng „ábyrgð“ á bíl?
Mörg umboð hafa boðið viðskiptavinum sínum 3 ára ábyrgð með
þeim skilyrðum að komið sé með bílinn í hefðbundnar skoðanir hjá
umboðinu. Samkvæmt lögum er frestur til að tilkynna galla hins
vegar fimm ár. Í mörgum tilvikum má rekja bilanir sem upp koma
til notkunar en ekki galla og líkurnar á því verða að sjálfsögðu meiri
eftir því sem bifreiðin er eldri.
Mikilvægt að sinna viðhaldi
Rétt er að benda á að viðhald og reglulegt eftirlit bifreiða er af hinu
góða og leiðir til betri endingar. Ef upp kemur galli gæti það veikt
réttarstöðu neytandans ef hann hefur ekki sinnt viðhaldi bílsins sem
skyldi. Það er hins vegar af og frá að seljandi geti neitað kaupanda
um úrbætur vegna galla þótt þjónustuskoðanir hafi farið fram á
öðru verkstæði.
Ný bók um neytendarétt
Nýlega kom út bókin Neytendaréttur eftir Ásu Ólafsdóttir og Eirík
Jónsson. Bókin er meðal annars ætluð til kennslu í neytendarétti
í laganámi. Efnistökum og framsetningu hefur þó verið hagað
með þeim hætti að bókin nýtist lögfræðingum, samtökum og
öðrum þeim sem á sviðinu starfa, sem og einstaklingum hér á
landi sem vilja glöggva sig á réttarstöðu sinni.
Bókin er fyrst sinnar tegundar hér á landi og Neytendasamtökin
fagna útgáfu hennar. Að því tilefni bjóða Neytendasamtökin
félagsmönnum sínum sérstakt tilboðsverð á bókinni á 5.300 kr.
sem er um 20% afsláttur af heildsöluverði (6.540 kr.) Sjá nánar
um bókina á vef samtakanna.
Þjónustuskoðanir á nýjum bílum
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009