Neytendablaðið - 01.12.2008, Síða 3
Frá leiðbeininga- og kvörtunarfljónustunni
Farsími eða auglýsing?
Kona nokkur leitaði til leiðbeininga og kvörtunarþjónustunnar eftir að hafa keypt sér
farsíma. Eftir að heim var komið og búið að taka símann í gagnið tók konan eftir því
að hann var merktur ákveðnu símafyrirtæki – þannig að nafn fyrirtækisins var brennt
inn í símann sjálfan, en þetta hafði hún ekki getað séð af símanum sem var til sýnis í
versluninni. Þar sem hún vildi ógjarnan taka að sér að auglýsa tiltekið fyrirtæki á þennan
hátt leitaði hún til verslunarstjóra og fór fram á riftun kaupanna og endurgreiðslu símans.
Ekki var fallist á þær kröfur. Eftir milligöngu leiðbeininga og kvörtunarþjónustunnar féllst
fyrirtækið þó á sjónarmið konunnar og endurgreiddi henni símann.
Ekki liggja á inn eignarnótum og gjafa
bréfum!
Nú sem endranær eru neytendur hvattir til að nýta sér inneignarnótur og gjafabréf sem þeir
eiga og gæta þess að slíkir pappírar dagi ekki uppi og falli úr gildi. Sér í lagi getur verið
erfitt að innheimta slíkar kröfur ef kemur til þess að verslanir verða gjaldþrota. Ljóst er að
einhverjir seljendur munu verða gjaldþrota í því ófremdarástandi sem nú ríkir. Engin leið er
að vita hvaða fyrirtæki hverfa af markaði og því eru neytendur hvattir til nýta gjafabréf og
inneignarnótur fyrr en síðar.
Leigjendamál
Undanfarnar vikur og mánuði hefur leið
beininga og kvörtunarþjónustan tekið á
móti talsverðum fjölda erinda sem varða rétt
leigjenda. Leigumál geta verið afar flókin og
margs konar ágreiningur getur komið upp.
Því er mjög mikilvægt að leigjendur eigi sér
málsvara eða hagsmunasamtök. Í fæstum
til vikum er um eiginleg neytendamál að
ræða, þar sem yfirleitt eiga í hlut einstakl
ingar sem leigja húsnæði af öðrum ein
staklingum og því í raun takmarkað hvað
leiðbeininga og kvörtunarþjónustan getur
gert. Neytendasamtökin hafa farið þess á
leit við Jóhönnu Sigurðardóttur, fél ags og
tryggingamálaráðherra, að ráðu neyt ið og
Neytendasamtökin geri með sér þjón ustu
samning þannig að Neytenda sam tök in geti
sinnt málum fyrir leigjendur. Oft hef ur verið
þörf en nú er nauðsyn!
Mikil aukning
mála hjá ENA
Evrópska neytendaaðstoðin (ENA/ECC)
hef ur fengið til meðferðar tuttugu kvört
unarmál það sem af er árinu, en allt árið
í fyrra voru málin til ENA aðeins sjö. Í
heildina hafa borist um sjötíu erindi til
ENA það sem af er árinu. Það er vissulega
fagnaðarefni að Evrópska Neytendaaðstoðin
virðist vera orðin nokkuð vel þekkt þó
vitaskuld sé leiðin legt að viðskipti milli
landa mæra gangi ekki snurðulaust fyrir sig.
Nánar má fræðast um ENA á www.ena.is.
Afpantanir á pakkaferðum
Talsvert er um fyrirspurnir vegna afpantana á pakkaferðum þessa dagana, en mörg um
hugnast illa að fara til útlanda eins og staða krónunnar er. Leiðbeininga og kvört
unarþjónustan hefur tekið saman yfirlit um þá skilmála sem gilda við afpantanir og má
finna það á heimasíðunni, www.ns.is, undir Molar.
Margir hafa afpantað utanlandsferðir að undanförnu vegna þess óvissuástands sem nú ríkir.
3 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008