Neytendablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 7
Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir, vara-
formaður Neytendasamtakanna, hefur
um langt árabil sinnt kennslu um fjármál
og neytendarétt víða í menntakerfinu,
svo sem í menntaskólum, og verið með
stundakennslu við Kennaraháskóla Ís -
lands ásamt því að halda námskeið
fyrir almenning. Um þessar mundir sér
Ragnhildur, ásamt fleiri starfsmönnum
Neytenda samtakanna, um námskeið í
heim ilis bókhaldi sem samtökin standa
fyrir meðal félagsmanna og einnig fyr ir
almenning með tilstyrk Reykja víkur-
borgar og fleiri sveitarfélaga á höfuð-
borgar svæðinu.
Neytendablaðið hitti Ragnhildi að máli og
spurði hvort hún ætti einhverjar ráð legg
ingar til lesenda nú rétt fyrir jóla hátíðina.
„Það er alltaf gott að áætla sérstaka viðburði
sem framundan eru, eins og jól, fermingar
og ferðalög, svo kostnaður fari ekki fram úr
ætlun. Slíkt kemur í veg fyrir að fólk þurfi
að horfast í augu við óviðráðan lega greiðslu
kortareikninga eftir áramót“. Ragn hild ur
bendir á að gott sé að áætla kostn að við
jólin og fara yfir það hvað sé til á heimilinu
sem geti nýst sbr. jólaskraut, ónotuð
jólakort, gjafapappír og fleira. Auk þess sé
margt af því sem við teljum okkur trú um
að við þörfnumst aðallega keypt af gömlum
vana og við getum vel verið án þess.
Þurfa jólin að vera dýr?
„Það er hægt að halda yndisleg jól án þess
að kosta miklu til. Margir fara fram úr
sjálfum sér þegar kemur að jólagjöfum en
við skulum hafa í huga að dýrustu gjafirnar
eru ekki endilega þær eftirminnilegustu.
Það er hægt að fara ýmsar skemmtilegar og
hagkvæmar leiðir í jólagjöfum með því að
virkja hugmyndaflugið og nýta hæfileika
sína. Í fyrra gaf ég til dæmis vinkonu minni
í jólagjöf fallega skreytt gjafakort þar sem
ég skuldbatt mig til að koma í garðinn
hennar og klippa tré og runna ásamt því
að vinna vorverkin með henni. Hún var
mjög ánægð með þessa gjöf og við áttum
yndislegar samverustundir við garðverkin.
Gjafir af þessum toga kosta ekki fjárútlát en
geta verið mjög persónulegar og dýrmætar.
Það er alltaf gott að minna sig á að jólin
eiga ekki að snúast um dýra hluti heldur
samveru og gleðina sem fylgja á jólunum.“
Er ekki tilvalið að byrja nýtt ár á því
að halda heimilisbókhald?
„Svo sannarlega er það gott og margir
nota einmitt áramótin til þess að taka sig
á á ýmsum sviðum og þá ekki síst í fjár
málunum. Varðandi heimilisbókhaldið þá
er það ekki bundið við mánaðamót eða
áramót að byrja færslu þess; það er hægt
að byrja hvenær sem er. Markmiðið með
heimilisbókhaldinu er augljóst. Við fáum
betri yfirsýn yfir fjármál okkar og fylgjumst
betur með í hvað peningarnir fara í raun og
veru. Einnig komum við auga á ýmislegt
sem við eyðum ómeðvitað í og getum vel
verið án eða dregið úr þeim útgjöldum.“
„Heimilisbókhald er skemmtileg
vinna sem margborgar sig“
„Nú þegar fyrirsjáanlegt er að víða kreppi að
er upplagt tækifæri fyrir fólk að setjast niður
og skoða málin“ segir Ragnhildur en bætir
við að fjölskyldan verði öll að taka þátt því
það sé líklegra til árangurs. „Aðferðafræðin
skiptir auðvitað máli og það er mikilvægt
að líta á heimilisbókhaldið á jákvæðan og
uppbyggilegan hátt. Markmiðið er jú að ná
tökum á rekstri heimilisins og það getur verið
krefjandi og jafnvel spennandi verkefni. Ég
vil minna lesendur á heimilisbókhaldsforrit
Neytendasamtakanna en félagsmenn hafa
aðgang að því á heimasíðu samtakanna.
Heimilisbókhaldið er í raun afar einfalt
og notendavænt og ég hvet félagsmenn
ein dregið til að notfæra sér það. Að halda
heim ilis bókhald er skemmtileg vinna sem
marg borg ar sig.“
Árgjald Neytendasamtakanna verður
óbreytt á næsta ári eða 4.300 krónur. Stjórn
sam takanna tók þessa ákvörðun vegna
þeirra fjárhagslegu vandamála sem heimilin
standa frammi fyrir. Um leið vill stjórnin
hvetja aðra til að halda verðhækkunum í
lágmarki og helst að hækka einfaldlega ekki.
Minnt er á að Neytendasamtökin hvöttu til
þjóðarsáttar gegn verðhækkunum þegar í
byrjun mars með bréfi til forsætisráðherra.
Ljóst er að þessi ákvörðun þýðir að raun
tekjur Neytendasamtakanna lækka á næsta
ári enda eykst verðbólgan. Félagsgjöldin eru
langstærsti hluti tekna Neytendasamtakanna
og því munar um minna.
Reynslan hefur sýnt að félagsmönnum
fækk ar þegar þrengir að hjá heimilunum.
Um leið leita fleiri til samtakanna til að fá
ráð og leiðbeiningar eða til að kvarta og
leita aðstoðar. Einnig koma margir með
hugmyndir um það sem betur mætti fara.
Þess vegna er starfsemi Neytenda samtak
anna mikilvæg á þeim erfiðu tímum sem
við stöndum frammi fyrir. Þörfin fyrir fleiri
félagsmenn er einfaldlega meiri nú á kreppu
tímum heldur en á tímum „góð æris ins“.
Það er von stjórnar Neytendasamtakanna að
félagsmenn sjái ástæðu til að styðja frjálst
neytendastarf með áframhaldandi aðild, en
einnig að þeir hvetji aðra neytendur til að
gera slíkt hið sama. Það er verk að vinna
fyrir neytendur.
Skynsamleg jólainnkaup
og heimilisbókhald á nýju ári
Óbreytt árgjald hjá Neytendasamtökunum
7 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008