Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 12

Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 12
Matvælaframleiðandinn Danone selur jógúrt undir nafninu Essensis og í aug - lýsingum kemur m.a. fram að þessi undra- jógúrt „næri húðina innan frá“ og „geri húð ina heilbrigðari og fallegri“ Frönsku neytendasamtökin Que choisir ákváðu að rannsaka hvort þessar fullyrð­ ingar ættu við rök að styðjast. 100 konur tóku þátt í rannsókninni og var þeim skipt í fimm hópa: Hópur eitt borðaði eina dós af Essensis­jógúrt á dag; hópur tvö borðaði tvær jógúrtdósir á dag, en það er skammturinn sem Danone mælir með; hópur þrjú borðaði eina dós af hefðbundinni jógúrt á dag; hópur fjögur borðaði tvær dósir af hefðbundinni jógúrt á dag og fimmti hópurinn breytti engu í sínu mataræði. Allar konurnar fengu síðan rakakrem og áttu að bera það samviskusamlega á hendurnar. Niðurstaðan var skýr. Rakakremið gerði sitt gagn en enginn merkjanlegur munur var á húð kvennanna hvort sem þær borðuðu Essensis eða ekki. Í framhaldinu gerðu samtökin þá kröfu til franskra stjórnvalda og Evrópusambandsins að reglugerð um markfæði (matur sem hefur verið breytt þannig að hann hafi heilsu samlega eiginleika) yrði bætt þannig að framleiðendur gætu ekki kastað fram stað hæfingum sem eiga ekki við rök að styðjast. Jógúrt sem nærir húðina innan frá? Neytendasamtökin hafa á undanförnum árum gagnrýnt auglýsingaherferðir bank- anna og hefur verið af nógu að taka. Það var líkt og bankarnir vissu ekki hvað þeir ættu að gera við peningana sem virtust flæða úr skúffum og skápum og það kom m.a. fram í endalausum auglýsinga- herferðum fyrir þjónustu sem í mörgum tilfellum var nærri því óskiljanleg. Í hvert skipti sem ný „afurð“ leit dagsins ljós þurfti að splæsa í nýja herferð. Öllu var til tjaldað og bankarnir beittu ýmsum brögðum til að toppa hver annan. Heimsfrægir leikarar voru jafnvel kallaðir til. Reyndar er ekki gott að skilja af hverju bankarnir þurftu að minna svona rækilega á sig. Reynslan sýnir nefnilega að fólk skipt ir frekar um maka en banka. Eftirfarandi gagnrýni á auglýsingaherferð Kaupþings birtist á heimasíðu Neytenda­ samtakanna um mitt ár 2006. Kaupþing var þá að kynna nýja leið til langtímasparnaðar undir heitinu „Þegar“, en um var að ræða fjárfestingar í mismunandi fjárfestingar­ sjóðum Kaupþings. Á heimasíðu Neytenda­ samtakanna segir: „KB banki auglýsir nýja sparnaðarleið „Þegar“ og hafa auglýsingarnar vakið at hygli og sitt sýnist hverjum. Ein auglýs­ ingin sýnir strætisvagnabílstjóra sem geng ur út úr vagninum að því er virðist í miðri áætlun og er þar með hættur að vinna. Eftir sitja farþegarnir forviða en skilaboðin virðast einna helst vera þau að ekki sé á strætó treystandi. Önnur auglýsing virðist fara meira fyrir brjóstið á fólki en í henni má sjá leikfimi­ kennara sem hættir í miðri kennslustund og skilur börnin eftir í reiðileysi. Eitt barnið hangir meira að segja í kaðli en vonandi eru aðrir ábyrgari starfsmenn á staðnum sem koma barninu til hjálpar. Þetta verða að teljast harla sérkennileg starfslok. Hvað varð eiginlega um að ljúka starfsferlinum á ábyrgan hátt og jafnvel kveðja samstarfs­ menn? Vonandi þurfa viðskiptavinir bankans ekki að eiga von á að starfsmenn hans rjúki á dyr þegar minnst varir.“ Sölumennska á þinn kostnað Peningamarkaðssjóður Landsbankans hef ur verið mikið í fréttum undanfar ið en við skipta­ vinir voru hvattir til að færa sparn að sinn í sjóðinn til að njóta betri ávöxtunar. Sú viðleitni bankans að ýta undir sparnað við skiptavinanna var þó ekki ný af nálinni. Eftirfarandi er frétt Neytenda samtakanna frá því 2006. „Neytendasamtökunum hafa borist nokkr ar ábendingar frá viðskiptavinum Lands­ bank ans. Nú bregður svo við að þegar við skiptavinir bankans hringja til að fá upp gefna stöðu eða láta millifæra upphæðir eru þeir spurðir hvort þeir vilji ekki leggja í sparnað. Einn viðskiptavinur sagðist þegar vera með sparnað hjá bankanum en þá spurði starfsmaðurinn hvort hann vildi ekki spara enn meira. Starfsmaður Neytenda samtakanna fékk sömu þjónustu eftir að millifærslubeiðni fór fram í símtali. Starfsmaður bankans hélt honum í 10­15 mínútur á kynningu um sparnaðarleiðir og hafði um leið aðgang að sögu viðskipta­ vinarins þar sem hann hafði gefið upp kennitölu vegna upphaflega erindis síns. Starfsmaður bankans var mjög ýtinn og vildi helst ganga frá breytingum strax en viðskiptavinurinn vildi að sjálfsögðu fá frest til að skoða betur stöðuna. Þetta er mjög merkileg þróun, sérstaklega þar sem viðskiptavinir bankans eru að kaupa þjónustu af bankanum (upplýsingar um stöðu og millifærslubeiðni kosta 95­ 100 krónur), en lenda í sölumennsku sem þeir báðu ekki um. Það eru auk þess viðskiptavinirnir sem borga símtalið.“ „Þegar“ öllu er á botninn hvolft . . . 12 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.