Ægir - 01.02.2010, Blaðsíða 23
23
L Í N U Ú T G E R Ð Í N O R E G I
„Líkt og heima þarf að
leggja á sig mikla vinnu til að
ná árangri og vinna sam-
kvæmt því kerfi sem er við
lýði hverju sinni. Hér er þó
verð á kvóta er ekki eins hátt
og heima á Íslandi. Síðan eru
frjálsar veiðar ákveðnum teg-
undum fyrir báta undir 28
metrum, þ.e. á meðan heild-
arkvótanum í viðkomandi
tegundum fyrir landið er ekki
náð. Þetta á við um t.d. ýsu
og keilu og við erum að
fleyta okkur langt á þeim teg-
undum. Síðan erum við með
svolítinn þorskkvóta sem við
nýtum í meðafla og skiptum
yfir á þorsk þegar ýsan geng-
ur út af grunnslóðinni yfir
sumarið,“ segir Helgi en
óhætt er að segja að árangur
þeirra á Ástu B frá áramótum
sé eftirtektarverður. Frá ára-
mótum hefur báturinn fiskað
um 185 tonn af ýsu og er
raunar fjórða aflahæsta ýsu-
skip í öllum norska skipaflot-
anum þá þessu tímabili.
Pokabeitutækning heldur
betur að sanna sig
Þennan mikla og góða árang-
ur þakkar Helgi ekki síst
hinni nýju pokabeitu frá
Bernskunni í Súðavík og
pokabeitningavélinni frá KM
stáli. Sem kunnugt er hefur
Bernskan í kjölfar árangurs
Ástu B gert samning um
pokabeitningarvélar og sölu á
beitu til Vísis hf. í Grindavík,
og fleiri útgerðir eru áhuga-
samar.
„Þessi búnaður hefur held-
ur betur sannað sig og slegið
í gegn. Ýsan virðist mjög
sólgin í pokabeituna og við
getum nánast sagt að allir
krókar sem fara beittir út úr
bátnum skili fiski inn þannig
að árangurinn er frábær. Við
erum líka að sjá að stórþorsk-
urinn, 20+ fiskurinn, er að
taka þessa beitu en við sjáum
betur þegar við förum að
snúa okkur meira að þorskin-
um hvaða beitu hann vill. Við
erum bara búnir að prófa
eina gerð af pokabeitu frá
Bernskunni og vitum hvað
ýsan vill en getum síðan
fikrað okkur áfram. Við höf-
um samanburð við Sögu K,
þar sem er hefðbundin línu-
beiting og sjáum að pokabeit-
an er að skila miklu betri ár-
angri,“ segir Helgi og bætir
við að aðal ýsuveiðitíminn á
svæðinu sé á haustin og fram-
undir vorið.
„Norðmennirnir standa
bara á kæjanum og skilja
ekkert í fiskiríinu á okkur.
Meðan þeir eru að koma með
sín 2-3 tonn í róðri erum við
með 8-10 tonn af sömu mið-
um,“ segir Helgi.
Öflugur bátur
Eins og áður segir er Ásta B
af gerðinni Cleopatra 50 en
Saga K er Cleopatra 36 og
Úr brúnni. Eins og sjá má er rúmt um skipstjórnendur og mikill tækjabúnaður um borð.