Ægir - 01.02.2010, Qupperneq 34
34
V E I Ð A R F Æ R I O G V E I Ð I T Æ K N I
„Hemmer þvernetstrollið er í
dag í notkun hjá stórum hluta
íslenska togaraflotans. Í sam-
anburði við hefðbundin troll
fólst megin breytingin í hönn-
un þess í því að netinu er snú-
ið um 90º. Það gerir að verk-
um að möskvar opnast betur,
minna net þarf í trollið, tog-
mótstaða minnkar og olía
sparast. Það er mikilvægt at-
riði á tímum hás olíuverðs,“
segir Jón Einar Marteinsson,
framkvæmdastjóri Fjarðanets
í Neskaupstað um árangurinn
af Hemmer þvernetstrollinu
sem Fjarðanet kom fram með
fyrir þremur árum.
Jón Einar segir mikilvægt
að eiga í nánu samstarfi við
sjómenn og útgerðarmenn
um þróun veiðarfæra. Fylgja
eftir þeim áherslum sem út-
gerðin hafi hverju sinni.
Dæmi um þetta eru gulldepl-
uveiðarnar. „Fjarðanet hefur í
samvinnu við Hampiðjuna
sett upp gulldeplupoka sem
hefur virkað vel. Við fram-
leiðum einnig flottrollspoka
fyrir loðnu-, kolmunna- og
síldveiðar og höfum gert í
mörg ár,“ segir hann.
Mikil samanlögð reynsla í
veiðarfæragerð
Fjarðanet rekur veiðarfæra-
þjónustu á fjórum stöðum,
þ.e. Ísafirði, Akureyri, Nes-
kaupstað og Fáskrúðsfirði. Í
Neskaupstað og á Ísafirði rek-
ur Fjarðanet einnig gúmmí-
bátaþjónustu. Hjá Fjarðaneti
starfa í dag um tuttugu manns
og er fyrirtækið hluti af
Hampiðjan Group.
„Verkefnin á netaverkstæð-
um okkar eru misjöfn. Fyrir
norðan og vestan er mest
unnið í botntrollum og snur-
voðum, meðan að fyrir austan
er stærri hluti verkefnanna
tengdur uppsjávarveiðum.
Okkar styrkur liggur í víð-
tækri og breiðri þjónustu,
bæði landfræðilega og þjón-
ustulega. Við erum gamalgró-
ið fyrirtæki sem við erum býr
yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu í veiðarfæragerð. Veiðar-
færi Fjarðanets byggja á ís-
lensku hugviti og reynslu ís-
lenskra sjómanna í gegnum
árin. Þetta tel ég vera einn af
þeim þáttum sem hafa lagt
grunninn að því hversu öflug-
ur fiskveiðiflotinn okkar er,“
segir Jón Einar.
Meira en bara veiðarfæri
En Fjarðanet er meira en bara
veiðarfæri. Fyrirtækið saumar
yfirbreiðslur eftir máli og í
Neskaupstað og á Ísafirði rek-
ur Fjarðanet einnig skoðunar-
stöðvar fyrir gúmmíbjörgunar-
báta. Hagræði felst í því fyrir
útgerðarmenn að geta látið
skoða björgunarbátana þar
sem skipin koma til löndunar
og algengt er að þá séu tæki-
færin notuð til skoðunar á
björgunarbátum.
„Fjarðanet er eina fyrirtæk-
ið á Íslandi sem er sérhæft í
þjónustu við fiskeldi, með
rekstri á þvottastöð fyrir fisk-
eldispoka ásamt framleiðslu á
nýjum pokum. Ég tel að það
sé mikilvægt fyrir þau fiskeld-
isfyrirtæki sem starfa í land-
inu, og fyrir framtíðarupp-
byggingu fiskeldis, að til sé
fyrirtæki á Íslandi sem sér-
hæfir sig í slíkri þjónustu.
Fyrirtækin sem við þjónustum
eru á Austfjörðum, Norður-
landi og Vestfjörðum,“ segir
Jón Einar.
Fjarðanet er einnig með
víðtæka þjónustu við verk-
taka, sveitarfélög og aðra
framkvæmdaaðila. Það nýj-
asta segir Jón Einar fram-
leiðslu og sölu á hífingarbún-
aði, keðjuslingum, stroffum
og tengdum vörum.
„Við seljum hífingarbúnað
frá Gunnebo Lifting í Svíþjóð
og byggum þjónustna upp í
samvinnu við Hampiðjuna
sem er umboðsaðili Gunnebo
á Íslandi. Um framleiðslu á
hífingarbúnaði gilda strangar
reglur og til að geta veitt
þessa þjónustu höfum við
sent starfsfólk á námskeið hjá
Gunnebo í Svíþjóð. Fjarðanet
gerði á síðasta ári samning
við Alcoa Fjarðaál á Reyðar-
firði um sölu og þjónustu á
hífingarbúnaði í álverinu.
Þjónustan fellst í sölu á bún-
aði, ásamt eftirliti með búnaði
í notkun og námskeiðahaldi
fyrir starfsmenn Alcoa Fjarða-
áls,“ segir Jón Einar Marteins-
son.
Fjarðanet rekur alhliða veiðarfæraþjónustu á fjórum stöðum:
Hemmer þvernetstrollið hefur
sparað útgerðum dýrmæta olíu
Jón Einar Marteinsson, framkvæmdastjóri Fjarðanets, í sal fyrirtækisins í
Neskaupstað.