Ægir - 01.02.2010, Qupperneq 38
38
S T R A N D V E I Ð A R
K R O S S G Á T A
Í skriflegu svari Jóns Bjarna-
sonar, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, við fyrir-
spurn Einars K. Guðfinnsson-
ar, alþingismanns, kemur fram
að rösklega 17% strandveiði-
aflans fóru síðastliðið sumar
til kaupanda í löndunarhöfn.
Ef tölurnar eru skoðaðar
kemur í ljós að af rösklega
4100 tonna strandveiðiafla
voru 715 tonn seld til aðila í
löndunarhöfn, þar af tæplega
600 tonn í beinum kaupum
aðila á sama stað og tæp 120
tonn á markaði. Ef aftur á
móti er litið á strandveiðiafla
sem seldur var utan löndun-
arhafnar sést að þá fór mikill
meirihluti, eða 2800 tonn á
markað, rösklega 500 tonn í
beina sölu og 86 tonn til út-
flutnings. Samtals var afli
seldur utan löndunarhafnar
rúmlega 3400 tonn af strand-
veiðiaflanum.
Séu einstakar hafnir skoð-
aðar þá fór um helmingur
strandveiðiaflans sem landað
var í Vestmannaeyjum til að-
ila þar í bæjarfélaginu en
magnið var hins vegar ekki
nema um 38 tonn. Stærstu
löndunarhafnir strandveiðiafl-
ans voru Patreksfjörður, Bol-
ungarvík og Grímsey, með á
bilinu 220 til 250 tonn. Á
Patreksfirði voru um 13%
keypt af aðila í löndunarhöfn,
16% í Grímsey og 41% í Bol-
ungarvík.
Í Hrísey fór hins vegar all-
ur strandveiðiafli sem þar var
landað til kaupenda í heima-
höfninni, en ekki var þó um
að ræða nema 0,6 tonn. Á
Flateyri fóru 99,8% aflans til
aðila í heimahöfn, 100% á
Borgarfirði eystri og sömu-
leiðis var hlutfallið yfir 90% á
Suðureyri.
Strandveiðiaflinn:
Kaupendur sjaldnast í löndunarhöfn