Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Blaðsíða 11
stendur þarna ekki eitt, heldur er það komið inn i vitund allrar
þjóðarinnar, að Arfur íslendinga verður að koma út — og
kemur út.
Félagsmenn geta sparað umboðsmönnum mikið starf með því
að færa þeim sjálfir greiðslu fyrir Arf íslendinga.
Félagsmenn eru beðnir að athuga, að umboðsmenn Máls og
menningar fá litla þóknun fyrir starf sitt, sem þó getur verið
mjög umsvifamikið. Félagsmenn geta sjálfir létt þeim þetta starf
mjög mikið, bæði með þvi að sækja^til þeirra bækurnar, er þær
koma út, og láta þá ekki þurfa að innheimta lijá sér árgjaldið,
heldur færa þeim það á réttum gjalddaga. Við Arf íslendinga
hefur starf umboðsmanna aukizt mjög mikið. Viljum við nú skora
á félagsmenn að taka strax upp þá venju, að færa þeim árstil-
lagið, þegar þeir hafa það til og geta greitt það. Við viljum jafn-
framt taka það fram, að það er mikið öryggi í því fólgið, fyrir
Mál og menningu, að allir félagsmenn greiði styrk sinn i ár
til Arfs íslendinga fyrir áramót. Félagið kynni t. d. strax að
yilja festa kaup á pappír i verkið. Það er líka lang-þægilegast
fyrir félagsmenn sjálfa að greiða gjaldið árlega, svo að ,ekki
safnist fyrir hærri upphæð.
Nýir umboðsmenn.
Nolckrir nýir umboðsmenn liafa bætzt við frá því í marz
og fara nöfn þeirra hér á eftir. Ennfremur hafa nokkrar hreyt-
ingar orðið með umboðsmenn og kann stjórn Máls og menn-
ingar hinum fráfarandi umboðsmönnum beztu þakkir fyrir hið
prýðilegasta starf. Sérstaklega viljum við þakka Sigþór Jóhanns-
syni, Akureyri, fyrir frábæran dugnað og glæsilegan árangur
i starfi sínu fyrir útbreiðslu félagsins, — en hann lætur nú af
störfum sökum þess, að hann flyzt að Laxárvirkjuriinni.
Hinir nýju umboðsmenn eru þessir:
Akureyri: Þórður Valdemarsson, Eiðsvallagötu 20.
Biskupstungur: Stefán Sigurðsson, skólastj., Reykholti.
Bolungarvik: Tryggvi Magnússon.
Eiðar: Þóroddur Guðmundsson, kennari.
Eyrarbakki: Guðmundur Þorláksson, skólastj.
Fáskrúðsfjörður: Snorri Magnússon, rafstöðvarstj.
Fljótin, Skagafirði: Zophonias Gunnlaugsson, Steinholti.
Hafnarfjörður: Gísli Sigurðson, lögregluþjónn.
Höfðahverfi: Sigurbjörn Benediktsson, Ártúni.
65