Tímarit Máls og menningar - 01.11.1939, Blaðsíða 32
2) Ásökun á hendur samstarfsmönnum okkar um að þeir hafi
í hyggju að gerast samningsrofar við Mál og menningu.
1 enn einni ritgerð í Timanura um félag okkar, 7. október, rœð-
ir alþingismaðurinn um höfunda þá og vísindamenn, sem ým-
ist hafa starfað eða eru starfandi að ritum Máls og menningar.
Hann kemst svo að orði um samstarfsmenn okkar:
„Allir þeir, sem hafa lokið sér af, lýsa yfir hátt og i hljóði,
að þeir muni aldrei framar láta hinn yfirlætisfulla forstjóra
kommúnista (les: Kristinn Andrésson) .... fá frá sér nokkurt
ritað mál til birtingar. Hinir sem eiga eftir að efna heit sín
.... sjá hilla undir marga möguleika til að losna frá skuld-
bindingum sinum.“
Þessi klausa felur í sér tvær aðalstaðhæfingar.
Við fyrri staðhæfingunni er því til að svara, enginn þeirra
ritliöfunda eða vísindamanna, sem samið hafa bækur eða rit-
gerðir fyrir Mál og menningu, hefur enn lýst yfir þvi, hvorki
„liátt né í hljóði“, svo vitað sé, að hann muni „aldrei framar“
láta Mál og menningu „fá frá sér nokkurt ritað mál til birt-
ingar“. Oðru nær, samstarf stjórnar Máls og menningar við
höfunda og fræðimenn hefur, án undantekningar, verið báðum
aðiljum til óblandinnar ánægju, og hinn vinsamlegi grundvöll-
ur, sem þetta samstarf byggist á, hefur ekki raskazt í einu til-
felli, auk heldur fleirum.
í siðari staðhæfingu ofangreindrar klausu eru án fyrirvara
bornar fram blákalt þær ásakanir á hendur höfundum Máls
og menningar, að þeir hafi í hyggju vanefndir á skuldbinding-
um sínum við félagið, þeir eru berum orðum sagðir vera að
búa sig undir svik og samningsrof.
Slík rakalaus aðdróttun á hendur ýmsum nafnkunnustu ágætis-
mönnum íslenzku þjóðarinnar og helztu menningarfrömuðum, á
rót sína að rekja til hugsunarháttar, sem stjórn Máls og menn-
ingar kynokar sér við að skilgreina á þessum stað, enda mun
slíks ekki gerast þörf; aðdróttunin er af því tagi, að hún get-
ur ekki vakið nema eina og aðeins eina kennd í brjóstum hinna
mörg þúsund lesenda, vina og stuðningsmanna Máls og menningar.
Tíminn er eina blaðið, þar sem Mál og menning auglýsir ókeypis.
í dulnefnisgrein í Tímanum er því haldið fram nýlega, /að
takmark Máls og menningar sé að hafa fé út úr mönnum til
styrktar dagblaði Sameiningarflokks alþýðu, Þjóðviljanum; styrk-
urinn sé greiddur blaðinu undir yfirskini borgunar fyrir aug-
86