Ægir - 01.04.2011, Qupperneq 11
11
við úthlutun takmarkaðra
gæða, af því tagi sem
byggðakvótinn er, gert það
að skilyrði að þeim sem út-
hlutað er inni af hendi sér-
staka fjárgreiðslu verður al-
mennt að vera fyrir hendi
sérstök lagaheimild. Oft og
tíðum verður sú niðurstaða
studd þeim sérstöku rökum
að sá opinberi aðili sem gæð-
unum úthlutar áskilur að
greiðslan eða endurgjaldið
skuli renna til hins opinbera,
en í slíkum tilvikum koma til
stuðnings kröfu um laga-
heimild þau almennu sjónar-
mið sem gilda um tekjuöflun
ríkisins og skattheimtu og
mikilvægi skýrrar lagastoðar í
því sambandi. Í þessu máli er
á hinn bóginn uppi sú að-
staða að ráðherra hefur með
því að ákveða að úthlutun
umrædds byggðakvóta skyldi
fara fram samkvæmt sam-
starfssamningnum kveðið á
um skyldu þeirra sem úthlut-
að var til að greiða ótiltekna
fjárhæð í sérstakan kvótasjóð
sem ekki var á vegum opin-
berra aðila, ríkis eða sveitar-
félagsins, heldur á vegum
sjálfstæðs einkaaðila sem
greiðendurnir áttu að vísu að-
ild að. Ég fæ ekki séð að full-
nægjandi lagagrundvöllur
verði sóttur í áðurgildandi 9.
gr. laga nr. 38/1990 fyrir því
að setja slíkt skilyrði fyrir út-
hlutun byggðakvóta úr hendi
sjávarútvegsráðherra. Ég
bendi á að umræddur sjóður
laut ekki að reglum um fjár-
mál og stjórnsýslu opinberra
aðila og þá áttu þeir sem
fengið höfðu úthlutað um-
ræddum byggðakvóta, sbr.
gr. 9.1 í samstarfssamningn-
um, yfir höfði sér málshöfðun
fyrir dómstólum af hálfu
stjórnar verkefnisins ef þeir
stóðu ekki við skuldbindingu
um greiðslu í sjóðinn.
Byggðakvóti er jafnframt
takmörkuð gæði. Á grund-
velli verndarsjónarmiða er að-
eins tilteknu magni úthlutað
af honum. Óheft sókn í slíkar
aflaheimildir með fiskiskipum
leiðir til óhagkvæmra veiða
en getur í versta falli leitt til
verulegrar röskunar lífríkis
sjávar og jafnvel til hruns í
þeim fiskveiðitegundum sem
byggðakvóti samanstendur af.
Jafnframt fá ekki öll skip út-
hlutað byggðakvóta. Aðeins
þau sem uppfylla þau skilyrði
sem gilda um úthlutun
byggðakvótans fá úthlutað.
Þar sem byggðakvóti er
takmörkuð og eftirsóknarverð
gæði er ljóst að stjórnvöld
verða að huga að reglum um
jafnræði þegar slíkum afla-
heimildum er úthlutað. Af
jafnræðisreglunum leiðir að
stjórnvöld verða að gæta þess
að þeir sem eiga möguleika á
að fá úthlutað byggðakvóta
sitji við sama borð við úthlut-
unina. Ein ráðstöfun til að
tryggja það er að auglýsa
með opinberum hætti að fyr-
irhugað sé að úthluta
byggða kvótanum. Í dæma-
skyni er hægt að nefna í
þessu sambandi álit umboðs-
manns Alþingis frá 17. janúar
2003 í máli nr. 3699/2003. Þar
kemur meðal annars eftirfar-
andi fram:
„Ég tek fram að í því laga-
umhverfi sem nú er til staðar
hér á landi, þar sem löggjaf-
B Y G G Ð A K V Ó T I
Hér birtist fyrsta grein af
þremur um byggðakvóta en
höfundur þeirra er Ottó
Björgvin Óskarsson,
lögfræðingur hjá embætti
umboðsmanns Alþingis.
Greinarnar eru byggðar á
yfirlitsgrein um þetta efni
sem Ottó Björgvin skrifaði í
tímarit lögfræðinga í lok
nóvember 2010.
Sjómannadagurinn
VM- félag vélstjóra og málmtæknimanna óskar sjómönnum
og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
V M - F é l ag V é l s t j ó r a o g M á l M t æ k n i M a n n a - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is