Ægir - 01.04.2011, Page 22
S J Á V A R A F U R Ð I R
Árið 2010 nam verðmæti út-
flutningsframleiðslu sjávaraf-
urða rúmum 220 milljörðum
króna og jókst um 10% frá
fyrra ári. Er þar um að ræða
samtölu útflutnings og birgða-
breytinga sjávarafurða. Fram-
leiðslan, mæld á föstu verði,
jókst um 6%. Fluttar voru út
sjávarafurðir að verðmæti
220,5 milljarðar króna og
jókst verðmæti þeirra milli ára
um 5,7% en dróst saman í
magni um 5,5%. Árið 2010
voru flutt út 632 þúsund tonn
samanborið við 669 þúsund
tonn árið áður.
Þetta kemur fram í skýrslu
um útfluttar sjávarafurðir sem
Hagstofa Íslands hefur birt.
Þar kemur fram að frystar af-
urðir skiluðu 55% af heildar-
útflutningsverðmæti. Af ein-
stökum afurðum vóg verð-
mæti blautverkaðs saltfisks úr
þorski mest eða 13,5 milljörð-
um króna. Af heildarútflutn-
ingi sjávarafurða fóru 73% til
Evrópska efnahagssvæðisins,
9,1% til Asíu og 5,3% til
Norður-Ameríku.
Samdráttur milli ára
Útflutningur sjávarafurða
dróst saman á milli áranna
2009 og 2010 um 5,5% eða
tæp 37 þúsund tonn. Árið
2010 voru flutt út 632 þúsund
tonn samanborið við 669
þúsund tonn árið áður.
Rúm 245 þúsund tonn
voru flutt út af botnfiskafurð-
um. Þar af námu þorskafurðir
96 þúsund tonnum en voru
árið áður 109 þúsund tonn.
Útfluttar afurðir flatfiskteg-
unda námu rúmum 17 þús-
und tonnum árið 2010 sam-
anborið við 21 þúsund tonn
árið 2009. Afurðir grálúðu
vega þyngst í flatfiskafurðum
og nam hlutur hennar tæpum
10 þúsund tonnum sem er
um 21% minni afli en árið áð-
ur.
Hlutur uppsjávartegunda
var 47,9% af heildarútflutn-
ingi sjávarafurða og nam 303
þúsund tonnum, sem er tæp-
lega 13 þúsund tonnum
minni afli en árið áður. Síld-
arafurðir skipuðu stærstan
sess í útflutningi uppsjávaraf-
urða líkt og undanfarin ár, en
þær voru um 160 þúsund
tonn, sem er rúmlega 49 þús-
und tonna samdráttur frá
árinu áður. Aukning var í út-
flutningi loðnuafurða milli ár-
anna 2009 og 2010.
Samtals voru flutt út 57
þúsund tonn af loðnuafurð-
um árið 2010 samanborið við
18 þúsund tonn árið áður.
Tæp 54 þúsund tonn voru
flutt út af makrílafurðum, sem
er um 307% aukning frá
2009, en töluvert magn af
fiskimjöli er ekki tegunda-
skipt í útflutningsskýrslum og
flokkast því utan aflategunda.
Þetta mjöl er að stærstum
hluta uppsjávarfiskur og voru
tæplega 68 þúsund tonn flutt
út af því.
Útflutningur skel- og
krabbadýra nam 18 þúsund
tonnum, sem er um 3 þúsund
tonna aukning frá árinu 2009.
Stærsti hluti þess útflutnings
voru tæplega 15 þúsund tonn
af rækju.
Saltfiskurinn skilaði mestu
Hlutur sjávarafurða af heildar-
verðmæti vöruútflutnings
landsins dróst saman á árinu,
var 39,3% samanborið við
41,7% árið 2009. Blautverkað-
ur saltfiskur úr þorski skilaði
13,5 milljörðum króna, þá
ferskt sjávarfang úr þorski
annað en nýkældur eða ísvar-
inn fiskur, sem skilaði 11,8
milljörðum, og fryst rækja 11
milljörðum. Fryst sjávarfang
úr þorski annað en sjófryst/
landfryst flök eða heill fiskur
skilaði 10,8 milljörðum króna
og sjófrystur heill karfi 10,3
milljörðum.
Útflutningur sjávarafurða á síðasta ári:
Yfir 70% afurðanna til Evrópu
Blautverkaður saltfiskur skilaði 13,5 milljörðum í fyrra.
plastker og bretti
Sendum sjómönnum,
fiskvinnslufólki
og fjölskyldum þeirra
bestu kveðjur
á sjómannadaginn
22