Ægir - 01.04.2011, Blaðsíða 32
32
S J Ó M E N N S K A N
Líkt og margir aðrir íslenskir
sjómenn heillaðist Stefán
Birgisson, stýrimaður á Vest-
mannaeyjatogaranum Dranga-
vík VE-80, af sjómannsstarf-
inu á unglingsaldri og allar
götur síðan hefur sjórinn verið
hans starfsvettvangur. Stefán
er Siglfirðingur að uppruna og
hóf sinn sjómannsferil í túr á
togarnum Dagnýju SI um
fimmtán ára aldurinn. Í gegn-
um ferilinn hefur Stefán
kynnst flestum veiðiskap og
bæði unnið hjá öðrum og verið
í eigin útgerð. Síðustu
fimmtán árin hefur hann verið
á Drangavíkinni - segir það
góðan vinnustað, enda kunni
hann alltaf best við togarasjó-
mennskuna. Ægir spjallaði við
stýrimanninn Stefán í einu
löndunarstoppinu nú í maí um
sjómennskuna, sjómannadag-
inn og að sjálfsögðu tóm-
stundagamanið sem á hug
hans allan - hestamennsk-
una!
„Ég er fæddur og uppalinn
á Siglufirði og þar var mín
sjómennska fyrsta áratuginn, í
upphafi á togurunum Dag-
nýju, Sigluvík og Stálvík en
síðan lá leiðin um tíma í eigin
útgerð,“ segir Stefán en hann
stofnaði til útgerðar með Arn-
þóri Þórssyni, vélstjóra, um
stálbátinn Gissur hvíta sem
gerður var út á rækju, línu og
net. Stefán segir þessa ungu
útgerðarmenn hafa verið fulla
eldmóði og bjartsýni en út-
gerðin fékk þó snöggan endi
þegar báturinn var á skel-
veiðum á Breiðafirði og sökk
í landlegu við Brjánslæk.
Hann var þá nýkominn úr
miklum lagfæringum. Enginn
var um borð þegar óhappið
varð en Stefán segir að þar
sem nýlegar endurbætur hafi
ekki verið komnar inn í
tryggingamat hafi tjónið verið
tilfinnanlegt.
Fyrir tilviljun til Eyja
Í kjölfar þessa sneri Stefán sér
að smábátaútgerð, keypti
Sómabát og réri á honum
nokkur sumur en var síðan á
frystitogara á veturna. Það var
síðan fyrir einskæra tilviljun
að leiðin lá til Vestmannaeyja.
„Við komum hingað í
heimsókn hjónin vorið 1990
Kann alltaf
best við
trollveiðarnar
- Stefán Birgisson, stýrimaður í Vestmannaeyjum
hefur verið sjómaður frá fimmtán ára aldri
Fullt að gera við höfnina á sjómannadagshátíðinni. Hér er Stefán með félaga sínum í sjómannadagsráðinu í Vestmannaeyjum,
Guðjóni Gunnsteinssyni, vélstjóra á Kap VE.