Ægir - 01.04.2011, Síða 42
42
Þ J Ó N U S T A
það traust sem greinin hefur
sýnt okkur öll þessi ár,“ segir
Úlfar í samtali við Ægi.
Mikil breidd og fjölbreytt
verkefni
Ekki hefur verið líflegt yfir
breytingum eða nýsmíðaverk-
efnum í íslenska skipaflotan-
um að undanförnu. Það stað-
festir Úlfar og segir að á viss-
an hátt sé réttast að tala um
kul eða jafnvel alkul í fjárfest-
ingum. Meira er um viðhald á
eldri búnaði og því hafi starf-
semi GO-ON ehf. snúist
meira um varahlutaþjónustu
fyrir hvers kyns búnað. Úlfar
segir ennfremur að talsvert
hafi verið að gera í þjónustu
við smábátaflotann vegna til-
komu aukinna strandveiða.
Með öðrum orðum byggi fyr-
irtækið nú um stundir á mik-
illi breidd og fjölbreyttum
verkefnum, fremur en fáum
og stórum.
„Í því árferði sem nú er
hafa mörg umboð flosnað
upp og leita margir eigendur
skipa og báta eftir þjónustu
okkar. Við getum þess vegna
sagt að starfsemin hjá GO-
ON hafi þróast út frá þeim
aðstæðum sem hér hafa
skapast á markaðnum. Við
einfaldlega leysum málið
hver svo sem búnaðurinn er.
En við sjáum líka mörg dæmi
þess að fyrirbyggjandi við-
hald hefur vikið í þessu
ástandi og í sumum tilfellum
hafa verið keyptir varahlutir
sem ekki uppfylla gæðakröf-
ur. Slíkt segir á endanum til
sín og verður dýrkeypt þegar
upp er staðið,“ segir Úlfar og
segir óvissuna í sjávarútvegin-
um mjög bagalega. Hún birt-
ist meðal annars í ómarkvissu
viðhaldi og frestun á endur-
nýjun búnaðar. „Í óvissu gerir
enginn neitt og það höfum
við einmitt séð að undan-
förnu. Framtíðarstefna sjávar-
útvegsins verður að komast á
hreint hið fyrsta - hver sem
hún verður,“ segir hann.
Rekstraröryggi er mikilvægt
þegar kreppir að
Á löngum tíma hefur Úlfar
upplifað hæðir og lægðir í ís-
lenskum sjávarútvegi. „Í sam-
anburði við aðrar sveiflur á
þeim tíma sem ég hef starfað
í kringum sjávarútveginn þá
er þessi niðursveifla nokkuð
lengri en á margan hátt lík
þeim sem komið hafa reglu-
lega. Mín reynsla er líka sú
að það þarf ekki síður að
gæta sín í uppsveiflu en nið-
ursveiflu því þá er hætt við
að menn fari of geyst. Ég tel
einnig að bankarnir, með út-
lánastefnu sinni og kvótaveð-
setningum, beri töluverða
ábyrgð á því hvernig komið
er fyrir mörgum fyrirtækjum í
greininni ásamt því að hægt
gengur að vinna úr vanda
fyrirtækjanna og ræsa gang-
verk atvinnulífsins sem er
gríðarlega mikilvægt. Þetta
ástand kemur illa niður á
þjónustufyrirtækjum í sjávar-
útvegi, líkt og öðrum grein-
um. Okkar svar við þessu
hefur verið að bregðast hratt
og vel við öllum sem til okk-
ar leita, enda vitum við að
rekstraröryggi og hagkvæm
innkaup viðskiptavina okkar
hefur aldrei verið mikilvæg-
ara en nú. Það hefur fleytt
okkur langt,“ segir Úlfar.
135 hp Mermaid, ein af mörgum bátavélum afgreiddum frá GO–ON á undarförn-
um mánuðum.
GO-ON seldi mikið af búnað í Gretti BA, sem fjallað er um hér í blaðinu. Til að
mynda þennan öfluga 110 t/m SORMEC krana. Efnt var til samkeppni í grunn-
skólanum á Reykhólum um nafn á þessu nýja skipi Þörungavinnslunnar og þar
varð nafnið Grettir til. Og að sjálfsögðu hefur kraninn fengið nafnið „Grettir
sterki“. Enda rammur að afli!
310 kVA ljósavélasamstæða með 100 m3/klst neyðarlensidælu um borð í Grettir
BA-39. Myndir: Óskar P. Friðriksson
Úr stýrishúsinu á Grettir BA-39, skipstjórastóla, glugga, rúðuþurrkur, rafm stjórnbúnað frá GO > ON ehf.