Ægir - 01.04.2011, Blaðsíða 46
46
F R É T T I R
Við tökum á
móti netum
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 520 2220
www.efnamottakan.is
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
• netaafskurði
• hlutum úr f lottrolli
• nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
„Hér er ráðist í grundvallar-
breytingar á því kerfi sem nú
er við lýði. En einmitt vegna
þess að hér er víða leitað
fanga og margir hafa komið
að getur enginn í þeim hópi
vænst þess að verða full-
komnlega ánægður með út-
komuna, hvorki úr hópi þeirra
sem gagnrýnt hafa núverandi
kerfi mest né úr hópi þeirra
sem hafa viljað standa vörð
um sama kerfi og stuðla að
því að breytingar á því verði
sem minnstar,“ segir í frétt
frá sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu vegna ný-
framkominna tveggja frum-
varpa sem boða breytingar á
fiskveiðistjórninni.
Stjórnvöld boða breyting-
arnar með eftirfarandi helstu
markmiðum:
1. Að tryggja óumdeild
yfirráð íslensku þjóðarinn-
ar á nytjastofnum á Ís-
landsmiðum.
2. Að gera tímabundna nýt-
ingasamninga um nýtingu
fiskistofna.
3. Að sanngjarnt gjald verði
greitt fyrir nýtingu sjávar-
auðlinda.
4. Að rjúfa meint eignaréttar-
legt samband útgerða á
nytjastofnum
5. Að auka enn frekar
byggðatengingar aflaheim-
ilda og auka atvinnu.
6. Að tryggja að aflaheimildir
verði ekki veðsettar.
7. Að stöðva varanlegt fram-
sal aflaheimilda og tak-
marka framsal aflamarks .
8. Að koma í veg fyrir frekari
samþjöppun aflaheimilda.
9. Að tryggt verði jafnræði
við úthlutun og viðskipti
með aflaheimildir með
opinberum markaði og
þannig bregðast við áliti
Mannréttindanefndar Sam-
einuðu þjóðanna.
Frumvörpin fara nú í með-
ferð Alþingis og leggur sjáv-
arútvegsráðherra áherslu á að
svokallað minna frumvarp
verði afgreitt á yfirstandandi
þingi, þ.e. nú í júní. Þar er
meðal annars að finna breyt-
ingar og aukningu á strand-
veiðum, aukningu heimilda í
byggðatengdar aðgerðir og
breytingu á fyrirkomulagi
þeirra, þ.e. svokallaða potta.
Frumvarpið fjallar ennfremur
um hækkun veiðigjalds.
Stærra frumvarpið fjallar
um samningaleiðina, þ.e.
handhafar aflahlutdeildar og
krókaleyfa fá heimild til að
uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum til að gera 15 ára
samning um nýtingarleyfi og
rétt til að leita eftir framleng-
ingu þess samnings til næstu
8 ára.
Breytingar á fiskveiðistjórnun boðaðar í
tveimur nýjum frumvörpum:
„Enginn fullkom-
lega sáttur“
„Hér er ráðist í grundvallarbreytingar á því kerfi sem nú er við lýði,“ segir sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytið um frumvörp um fiskveiðistjórnun sem nú eru
komin til Alþingis.