Fréttablaðið - 16.09.2015, Side 31
METOD-eldhúslína IKEA, sem kom á markað fyrir rúmum tveimur árum,
er mjög fjölhæf og sveigjanleg.
Línunni má í raun líkja við ein-
ingakubba sem hægt er að raða
saman nokkurn veginn hvern-
ig sem er. Grunneiningarn-
ar, skápar og skúffur, eru fest-
ar á veggbrautir sem veitir bæði
mikið frelsi í skipulagningu og
svo einfaldar það uppsetning-
una til muna.
„Frelsið var í raun sett í fyrsta
sæti við hönnun línunnar,“ segir
Auður Gunnarsdóttir sölustjóri.
„Samkvæmt grunnhugmynda-
fræði IKEA á fyrirtækið að bjóða
upp á húsbúnað fyrir sem flesta
og það á bæði við um breitt
úrval sem hentar mismunandi
þörfum og svo auðvitað verð-
ið. Verðið á að vera þannig að
allir geti fundið fallega gæða-
vöru sem hæfir fjárhagnum og
sú er líka raunin með METOD.“
Til dæmis fáist tvær tegundir af
skúffum; FÖRVARA og MAXI-
MERA. Þær fyrrnefndu upp-
fylla allar gæðakröfur en þær
síðarnefndu eru með ljúflokum
og kosta því meira. Eins sé mis-
jafnt hvort fólk vilji heldur skápa
eða mikið af skúffum og jafnvel
skúffur inni í skápum. METOD-
einingarnar gera fólki kleift að
stjórna ferðinni og velja út frá
fjárhag og plássinu sem það
hefur frekar en að þurfa að fylgja
fyrirfram ákveðnum skorðum.
„Möguleikarnir eru í raun ótelj-
andi. Bak við hurðirnar í eldhús-
skápunum geta verið hillur eða
hillur og skúffur, bara skúffur
eða einn eða fleiri skápar. Frels-
ið er mjög mikið.“
Gott úrval
Auður segir auðvitað tísku-
strauma í eldhúsum eins og
öðru en að úrvalið sé breitt og
stílf lokkarnir nokkrir. „Hvort
sem verið er að innrétta eldhús-
krók í sumarbústaðnum í sveita-
stíl eða stórt nútímalegt eldhús
í nýbyggingu, þá eru grunnein-
ingarnar þær sömu og svo velur
fólk hurðir og skúffuframhliðar
í þeim stíl sem það vill. Heim-
ilistækin okkar hafa endurnýj-
ast mikið undanfarið og úrvalið
af orkunýtnum heimilistækjum
er glæsilegra en nokkru sinni.
Þau fást svo í mismunandi stíl,
þannig að þau passi við eldhús-
ið, hvort sem útlitið er sígilt eða
nútímalegt.“ Auður segir þrjár
nýjar línur hafa bæst í úrval-
ið undanfarna mánuði. „EKE-
STAD er úr eik, sem er mjög
vinsæl núna. Svo hafa bæst við
tvær hvítar línur; MÄRSTA, sem
er mjög stílhrein með innbyggð-
um höldum, og HITTARP, sem er
í hlýlegum sveitastíl.“
Snjallt að utan sem innan
Auður segir svo afar mikilvægt
að huga að smáatriðunum líka.
„Þegar eldhúsinnréttingin er til-
búin og uppsett, kemur að litlu
hlutunum sem við erum frek-
ar upptekin af í IKEA núna.
Litlu hlutirnir geta nefnilega
skipt sköpum og í eldhúsinu er
það innvolsið sem setur punkt-
inn yfir i-ið í skipulagningunni.
Þegar allt er á sínum stað í skúff-
unum og skápunum þarf enginn
að eyða tíma í að leita eða lenda
í því að kaupa eitthvað sem
þegar var til aftast í skápnum,“
segir Auður. „Eins og sjá má er
ekkert því til fyrirstöðu að byrja
að láta eldhúsdrauminn rætast.
Fyrsta skrefið er að skoða úrval-
ið og finna það sem heillar, ná
svo í Home Planner-teikniforrit-
ið á vefnum okkar og prófa sig
áfram. Viðskiptavinir geta svo
séð alfarið um hönnunina sjálf-
ir eða fengið aðstoð teiknaranna
okkar við að hanna draumaeld-
húsið!“
Algjört eldhúsfrelsi hjá IKEA
Eldhúsið er líklega vinsælasta herbergið á hverju heimili. Þar byrjar dagurinn, og um leið og fjölskyldumeðlimir snúa heim eftir
skóla- og vinnudaginn liggur umferðin aftur um eldhúsið. Við höfum auðvitað flest matarást á eldhúsinu, en það vill verða svo að
aðrar athafnir finni sér stað þar líka, eins og að læra, lesa, vinna eða bara spjalla. Því er mikilvægt að eldhúsið uppfylli ólíkar þarfir
og að allir hafi pláss fyrir sitt. Fjölbreytt úrval eldhúsinnréttinga hjá IKEA ætti því að henta hvaða fjölskyldu- og eldhússtærð sem er.
HITTARP-línan fellur fullkomlega inn í sveitastílinn ásamt tilheyrandi borðbúnaði og
heimilistækjum.
Nýju MÄRSTA-framhliðarnar skapa stílhreint eldhús sem fær hér hlýlegan blæ með bambusklæðningu
og -aukahlutum. Hægt er að velja á milli fjögurra lita af innbyggðum höldum, sem fylgja með.
BROKHULT-framhliðarnar eru með hnotuáferð. Hvítar HERRESTAD-hurðir með þrívíddaráferð gefa eldhúsinu svo skemmtilegan svip.
Nýju EKESTAD-eikarlínunnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda er eikin sígild og hlýleg. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
3EldhúsKynning − auglýsing16. SEPTEMBER 2015 MIÐVIKUDAGUR
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
5
-E
C
E
0
1
6
4
5
-E
B
A
4
1
6
4
5
-E
A
6
8
1
6
4
5
-E
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K