Fréttablaðið - 16.09.2015, Qupperneq 40
| 8 16. september 2015 | miðvikudagur
Áshildur Bragadóttir hefur
verið ráðin nýr forstöðumaður
Höfuðborgarstofu. Hún tekur
við starfinu þann 16. september
næstkomandi. Forstöðumaður
Höfuðborgarstofu ber ábyrgð á
verkefnum sem tengjast ferða
málum. Höfuðborgarstofa rekur
fjölþætta upplýsingamiðlun fyrir
ferðamenn, meðal annars í gegn
um aðalupplýsingamiðstöð höfuð
borgarinnar í Aðalstræti og sér
um framkvæmd stórra borgar
hátíða ásamt samráði og ráðgjöf
við skipuleggjendur annarra við
burða í borginni.
Áshildur var valin úr hópi 39
umsækjenda. „Það var mikið af
hæfu fólki með mikla reynslu
meðal umsækjenda. Þannig að
það var bara mjög gaman að vera
valin úr þessum góða hópi,“ segir
Áshildur. Áshildur segir aðspurð
starfið leggjast mjög vel í sig. „Að
mínu mati er þetta starf sem er
með sterkan prófíl og þetta eru
umfangsmikil verkefni. Við erum
í raun að markaðssetja höfuð
borgina fyrir ferðamenn. Þannig
að þetta eru gríðarlega spennandi
verkefni,“ segir Áshildur.
Áshildur er viðskiptafræðing
ur með M.Sc. í stjórnun og stefnu
mótun frá Háskóla Íslands. Frá
árinu 2012 hefur hún gegnt stöðu
framkvæmdastjóra Markaðs
stofu Kópavogs. Áshildur segir
að mörg tækifæri séu í að mark
aðssetja höfuðborgarsvæðið allt
gagnvart erlendum ferðamönn
um. „Við á Höfuðborgarstofunni
erum í samstarfi við sveitarfé
lögin á höfuðborgarsvæðinu um
að vinna saman að þessari mark
aðssetningu og búa til fleiri tæki
færi til að draga ferðamenn að
fleiri svæðum innan höfuðborgar
svæðisins,“ segir Áshildur.
Áshildur er gift Björgvini Snæ
björnssyni arkitekt og eiga þau
saman fjórar dætur á aldrinum
1020 ára. Utan vinnunnar stund
ar hún mikla hreyfingu, hleypur,
gengur á fjöll á sumrin og stund
ar skíði á veturna. Auk þess les
hún mikið og fylgist vel með
þjóðfélagsumræðunni. „Sömu
leiðis hef ég alltaf gaman af því
að bæta við mig nýrri þekkingu.
Ég hef verið síðustu tvö árin að
læra spænsku, og hef áður tekið
námskeið í frönsku. Að læra er
það skemmtilegasta sem ég geri,“
segir Áshildur og bætir við að í
ellinni, þegar hún er hætt að
vinna, dreymi hana um að setj
ast aftur á háskólabekk.
saeunn@frettabladid.is
Finnst skemmtilegast að læra
Áshildur Bragadóttir tekur við starfi forstöðumanns Höfuðborgarstofu 16. september. Hún hefur gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra Markaðsstofu Kópavogs frá árinu 2012.
Glaðlynd oG með húmorinn í laGi
Áshildur er mikil áhugamanneskja um þjóðmál og sam-
félagið. Hún er fréttafíkill og hefur skoðanir á samfélags-
málum. Hún er líka gríðarlega skipulögð og öflug í því
sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún er fljót að sjá stóru
myndina og góð í að tengja hluti saman, eins og hún
hefur gert hjá Markaðsstofu Kópavogs. Hún er alltaf mjög
glaðlynd og jákvæð og tekur öllum verkefnum með mikilli
gleði. Hún leysir öll verkefni, ekkert verkefni er of flókið.
Hún er höfðingi heim að sækja, býr til ofboðslega góðan mat og öll umgjörð
í kringum hana er glæsileg, hún hefur lag á að hafa allt smart og lekkert. Hún
er líka ein af þeim sem láta verkin tala.
Ragnheiður Guðmundsdóttir vinkona
Áshildur er einstaklega hugmyndarík, klár, dugleg og
drífandi, allt eiginleikar sem hafa nýst í vinnu hennar hjá
Markaðsstofu Kópavogs og munu pottþétt gera það hjá
Höfuðborgarstofu. Hún er ráðagóð og ráðholl þegar vinir og
starfsfélagar þurfa á að halda, en óttast heldur ekki að leita
ráða sem er ekki síður mikilvægur eiginleiki. Áshildur er
félagslynd og á sæg af góðum vinkonum, vinum og kunn-
ingjum, sem er ekki skrítið því hún er svakalega skemmti-
leg, hress og með húmorinn í lagi.
Sigríður Björg Tómasdóttir samstarfskona
bjartsýn í borginni Áshildur Bragadóttir segir að mörg tækifæri séu í að markaðssetja höfuðborgarsvæðið allt gagnvart erlendum ferðamönnum. Fréttablaðið/GVa
Ég hef verið
síðustu tvö árin
að læra spænsku, og
hef áður tekið nám-
skeið í frönsku.
Tækifæri Íslendinga til þess að
flytja út vörur til Kína eru vax
andi, að mati Ársæls Harðarson
ar, formanns Íslenskkínverska
viðskiptaráðsins. Viðskiptaráð
ið stóð fyrir stefnumóti íslenskra
fyrirtækja og fyrirtækja frá borg
inni Foshan í Kína á föstudaginn.
Þar tóku þátt sautján fyrirtæki frá
Kína og um 20 íslensk fyrirtæki.
Eins og fram kom í Markaðn
um í síðustu viku er rúmt ár liðið
frá því að fríverslunarsamning
ur milli Íslands og Kína tók gildi.
Enn sem komið er hefur útflutn
ingur íslenskra fyrirtækja ekki
aukist verulega. „Ég hef alltaf litið
svo á að þetta taki sinn tíma og
það muni falla hvert vígið á fætur
öðru í þessu með tímanum,“ segir
Ársæll. „Það er augljóst að það
hefur töluvert gerst í innflutningi.
En á útflutningshlutanum þurfa
fyrirtækin að sækja á. Og samn
ingurinn er þannig að ef það eru
hnökrar á honum þá er vilji á báða
bóga að laga það. Það þarf svolítið
að vinna það mál fyrir mál og það
hefur komið upp fullt af málum
sem hnökrar eru á og þá þurfa
menn að vinna það og það tekur
tíma,“ segir Ársæll.
Nú þegar Rússlandsmarkaðir
lokast fyrir sjávarafurðir telur
Ársæll mögulegt að hægt verði
að flytja út makríl til Kína. „Við
létum þau til dæmis vita í sendi
nefndinni frá Dalí að það væri
tækifæri á Íslandi og það kann að
vera að það sé mögulegt. En við
verðum líka að átta okkur á því að
makríllinn okkar, eins og komið
hefur fram í fjölmiðlum, hefur
verið sendur á Rússlands og Níg
eríumarkað og það bendir til þess
að hann sé kannski ekki í hæsta
gæðaflokki fyrir neytendamarkað.
Þannig að það getur verið að það
séu takmarkanir á því hvar eftir
spurnin er. En það er alveg aug
ljóst að það eru tækifæri.“
Ársæll bendir á að Kína sé
gífurlegur neyslumarkaður og
fari mjög hratt vaxandi. „Þann
ig að íslensk fyrirtæki eiga tæki
færi. Það er ekki spurning,“ segir
Ársæll, en bendir þó á að þetta
muni velta á öflugu markaðs
starfi. „Menn þurfa að taka vinn
una í sínar hendur og mér sýnist
það nú vera það sem er að gerast,“
segir hann.
Fyrirtækin sem komu til Íslands
í síðustu viku eru frá Foshanhér
aði á Kantonsvæðinu, nærri Hong
Kong. „Þetta er mjög stórt svæði
með mikinn iðnað og þeir eru að
fara með 17 fyrirtæki til Evrópu
og komu til Þýskalands í sam
bærilegum erindagjörðum og ósk
uðu eftir okkar aðstoð til að hitta
íslensk fyrirtæki hér.“
Ársæll segir að Íslenskkín
verska viðskiptaráðið hafi fengið
töluverðan fjölda af slíkum heim
sóknum. „Við höfum gert töluvert
af þessu og höfum fengið heim
sóknir frá Shenzhen og Dalian
héraði líka.“ Fyrirtækin eru flest
í framleiðslu á vélatækni og því
um líku. „Þetta eru gríðarlega stór
fyrirtæki og eru framarlega í Kína
hvert á sínu sviði. Og sum þeirra
eru framarlega á heimsvísu,“ segir
Ársæll. jonhakon@frettabladid.is
Íslensk fyrirtæki þurfa að sækja á í markaðsstarfi
Sautján fyrirtæki frá Foshan komu til Íslands í síðustu viku. Tækifærin til að flytja vörur til Kína eru að aukast,
að mati formanns Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins. Innflutningur Íslendinga á kínverskum vörum vex stöðugt.
Á grand hóteli Fundur Kínverjanna með fulltrúum íslenskra fyrirtækja fór fram á Grand hóteli
á föstudag í síðustu viku.
1
6
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
6
-2
8
2
0
1
6
4
6
-2
6
E
4
1
6
4
6
-2
5
A
8
1
6
4
6
-2
4
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K